|
Aðalfundur Halaleikhópsins
sunnudaginn 28.
maí 2006
Hanna M. Kristleifsdóttir
formaður félagsins, bauð fundarmenn
velkomna.
- Kosning fundarstjóra
Grétar Pétur Geirsson, var kosinn
fundarstjóri. Anna G. Sigurðardóttir
var kosinn fundarritari. Grétar Pétur þakkaði
traustið sem honum var sýnt með því að vera
kosinn fundarstjóri en hann las síðan
yfir dagskrá fundarins.
- Inntaka nýrra félaga
Ása Hildur Guðjónsdóttir,
las upp nöfn nýrra félaga. 89
félagar eru í félaginu. Nýjir
félagar voru samþykktir með lófaklappi
og með því voru félagarnir
orðnir 104 talsins.
- Skýrsla stjórnar
Hanna
Margrét Kristleifsdóttir,
formaður Halaleikhópsins las upp skýrslu
stjórnar.
22 stjórnarfundir voru haldnir á tímabilinu.
Annan hvern miðvikudag. 1 félagsfundur
var haldinn. Nú var orðið gefið laust
um skýrslu stjórnar. Árni
Salómonsson
tilkynnti að 330 manns sáu Pókók.
Vel gekk að safna styrktarlínum í leikskrána.
- Afgreiddir endurskoðaðir reikningar
félagsins
Reikningarnir eru
ekki tilbúnir. Samþykkt
var að halda framhalds aðalfund 12. júní n.k. þar
sem reikningarnir verða lagðir fram.
- Afgreiðslna
tillagna, sem borist hafa fundinum, svo sem lagabreytingar
Ása
Hildur Guðjónsdóttir
og Árni Salómonsson kynntu.
Lagabreyting á 5.
málsgrein 3.
greinar var samþykkt með öllum greiddum
atkvæðum.
Lagabreyting á 4. málslið 4.
greinar var samþykkt með 18 greiddum
atkvæðum, 1 vará móti
Lagabreyting á 6
málslið 4
greinar var samþykkt samhljóða.
Lagabreyting á 8 málslið 4
greinar var samþykkt samhljóða.
Lagabreyting á 7 málslið 5
greinar var samþykkt samhljóða.
Lagabreyting á 8. málslið 5.
greinar var samþykkt með 14 atkvæðum
tveir á móti.
Lagabreyting á 1.
málslið 12.
greinar var samþykkt með 16 atkvæðum.
Lögin voru samþykkt í heild
sinni með 18 greiddum atkvæðum,
1 á móti.
- Starfsemi næsta
leikárs Hanna
M. Kristleifsdóttir kynnti. Ármann
Guðmundsson hefur verið ráðinn
til að skrifa leikrit fyrir Halann vegna næsta leikárs
en stórafmæli er á næsta ári.
- Kosning; formaður, ritari, meðstjórnandi
og 1 varamaður til 2ja ára og 2
skoðunarmenn samkvæmt lögum
félagsins
Í formannskjörinu
komu uppástungur
um Helgu Jónsdóttur. Einnig kom uppástunga
um Ásdísi Úlfarsdóttir.
Kosið var á milli Helgu og Ásdísar. Ásdís
fékk 9 atkvæði og Helga 8 atkvæði. Ásdís
er því réttkjörin formaður
Halaleikhópsins næstu 2 árin.
1 seðill
var auður.
Helga
gaf kost á sér sem varaformaður
og uppástunga kom um Maríu Jónsdóttur.
Kosið var á milli Maríu
og Helgu. Jafnt var á milli þeirra í fyrstu
atrennu – hvor þeirra fékk 18
atkvæði. Kosið var aftur – Helga
fékk í það skiptið 8
atkvæði en María fékk 10.
María er því réttkjörinn
varaformaður Halans til 1 árs.
Ása
Hildur Guðjónsdóttir
gaf kost á sér sem ritari og var það samþykkt
samhljóða og verður hún ritari í 2 ár.
Sóley B. Axelsdóttir gaf kost á sér
sem meðstjórnandi til 2ja ára.
Uppástunga kom um Helgu sem meðstjórnanda.
Helga hlaut 14 atkvæði en Sóley
4 atkvæði. Helga er því réttkjörinn
meðstjórnandi.
Guðríður Ólafsdóttir
var kosin í varastjórn til 2ja ára.
Ragnar Gunnar Þórhallsson gaf kost á sér áfram
sem skoðunarmaður, Unnur M. Sólmundardóttir
gaf ekki kost á sér. Uppástunga
kom um Grétar Pétur
Geirsson og var það samþykkt samhljóða.
- Árgjald ákveðið
Stjórn félagsins
leggur til að árgjaldið verði
1500 kr. Samþykkt samhljóða.
- Önnur mál
Þröstur
Steinþórsson
lagði til að fráfarandi formaður
fengi mikið og gott klapp vegna góðra
starfa.
Hanna skýrði frá því að Haladagar
yrðu í Krika í sumar. 3 dagar
hafa verið ákveðnir – 18.
júní – 22. júlí og
12. ágúst.
Ása Hildur Guðjónsdóttir
las upp skýrslu Sóleyjar Axelsdóttur,
en hún er ein þeirra fulltrúa
sem sóttu aðalfund BÍL.
María
Jónsdóttir sagði
frá því að sigurleikverkið í samkeppninni
um áhugaverðustu sýninguna yrði
sýnt í “Kassanum” við Þjóðleikhúsið,
föstudagskvöldið 2. júní n.k.
Ásdís þakkaði það traust
sem henni var sýnt með því að vera
kjörin formaður.
Grétar Pétur þakkaði
fyrir góðan fund og óskaði
nýrri stjórn til hamingju og þakkaði
fráfarandi stjórn fyrir góð störf.
Fundarritari; Anna Guðrún Sigurðardóttir.
|
Síðast uppfært 9. júní
2008 |