Aðalfundur Halaleikhópsins
leikárið 2006-2007
19. maí 2007.
Dagskrá:
- Kosning fundarstjóra og fundarritari.
- Inntaka nýrra félaga.
- Skýrsla formanns.
- Afgreiddir endurskoðaðir reikningar
félagsins.
- Afgreiðsla tillagna sem borist hafa
fundinum s.s. lagabreytingar.
- Starfsemi næsta leikárs.
- Kosning stjórnar, varastjórnar
og 2 skoðunarmenn reikninga.
- Árgjald ákveðið.
- Afmælisnefnd kynnir þær
hugmyndir sem fram eru komnar.
- Önnur mál.
Mættir 28 félagsmenn með stjórn.
Formaður setur fund kl. 16:05.
- Jón Eiríksson var kosinn fundarstjóri
og Hanna Margrét Kristleifsdóttir
var kosin fundarritari.
- 7 nýjir félagar óskuðu
eftir inngöngu í félagið og
voru samþykktir með lófaklappi.
Engin sagði sig úr félaginu
og engir látist.
- Ásdís las skýrslu
formanns og var hún samþykkt
með einni
athugasemd. Hún var: Sýning
Halaleikhópsins
var ein af 6 ekki ein af 5, sem komu til
greina í kjöri
á Athyglisverðustu áhugaleiksýningu ársins.
- Kristín fer yfir reikninga félagsins.
Fundarstjóri bendir á prentvillu
að reikningsárið sé frá 1.
apríl 2006 – 31. mars 2007 ekki
1. apríl 2005 – 31. mars 2007
eins og er ritað á bls. 4. Tillaga
var borin upp varðandi reikninganna sem
er: Skammtímaskuldir
2006, krafa European City Guide verði
færð í afskriftir í næsta ársreikningi. Þessi
tillaga var samþykkt.
Umræður sköpuðust
um miðasölu,
aukningu tekna og fundargerðir á netinu.
Spurning kom um ástæðu þess
að hýsingin á vef Halans hækkaði.
Svarið var að við byrjuðum ekki
að borga fyrr en í desember. Reikningarnir
voru samþykktir samhljóða.
- Ása Hildur Kynnir og ræðir
tillögur stjórnar til lagabreytingar.
Umræður sköpuðust um þessa
tillögu. Tillagan borin fram til atkvæðagreiðslu
og samþykkt samhljóða.
- María kynnti hugmyndir um starfsemi
næsta leikárs. Stjórnin
er búin er að gera munnlegan samning
við Guðjón
Sigvaldason um að setja upp Gaukshreiðrið í hans
leikstjórn.Miklar og heitar umræður
sköpuðust. Þeir sem tóku
til máls voru: Árni Salomonsson, Ása
Hildur Guðjónsd., Jón Eiríkss.,
Jón Þór Ólafss.
Kristín
Magnúsd., Kristinn Sigurjónss.,
María Jónsd., Leifur Leifss.
og Örn
Sigurðss.
Hlé var gert kl. 17:26.
- Kosning stjórnar.
Kjósa skal í eftirfarandi
embætti:
Varaformann til 2 ára -
María Jónsdóttir gefur kost á sér.
Gjaldkera
til 2 ára – Kristín
R. Magnúsdóttir gefur kost á sér.
Meðstjórnandi til 1 árs vegna þess
að Helga Jónsd. ætlar að stíga
niður – Hanna M. Kristleifsd. Og Kristinn
Sigurjónss. gefa kost á sér.
2 í varastjórn – Helga
Jónsd., Stefanía B. Björnsd.
Kristinn Guðjónss. og Kristinn Sigurjónss.
gefa kost á sér.
2 skoðunarmenn
reikninga -
Grétar Pétur Geirss. Og Ragnar Gunnar Þórhallss.
gefa kost á sér.
Kosin voru:
María Jónsd. Varaformaður
Kristín R. Magnúsd.
Gjaldkeri
Hanna M. Kristleifsd. Meðstjórnandi
Stefanía B. Björnsd. 2. Varamaður
Kristinn
Guðjónss. 3. Varamaður
Ragnar Gunnar Þórhallss. og Grétar
Pétur Geirss. Skoðunarmenn reikninga.
- Árgjaldið ákveðið. Óbreytt
1500 kr.
- Jón Þór kynnti þær
hugmyndir sem Afmælisnefndin er komin
með.
Umræður spunnustu um hugmyndirnar. Þeir
sem tóku til máls voru Hanna
M. Kristleifsdóttir, Kristinn Sigurjónss. Ása
Hildur Guðjónsd. og Jón Eiríkss.
- Önnur mál.
- Ása Hildur las skýrslu um
aðalfund BÍL.
- Lesið var heillaóskaskeyti
sem Halaleikhópnum barst frá Sif
Ingólfsdóttur.
- Kristinn Sigurjónss. Leggur
fram tillögu til umhugsunar hún
er: Hvort
ekki sé rétt að haldinn
verði
félagsfundur framvegis áður
en gengið er til samninga við leikstjóra
um aðalsýningu hvers árs þar
sem félagsmenn geti tekið þátt í umræðu
um val hvers árs. Tillagan
vísað til stjórnar.
- Leifur tók til máls
og segir frá því að Hann
og Höskuldur séu að skrifa
leikrit og langar að vita hvort Halaleikhópurinn
hafi áhuga á samstarfi á einn
eða annan hátt. Til dæmis
húsnæði og leikara
með Ný-ungar
fólki líka. Hann var
beðinn um
að koma þessarri
hugmyndir til stjórnar.
- Árni tók til máls
og sagðist vilja hafa fund þar
sem rætt
er framtíð félagsins.
Farið í þankarok
um hvað við eigum að gera,
stórt
leikrit, stuttverk o.s.frv. Svótgreiningu.
Hugmynd kom um að hafa þetta á einum
degi í afmælisvikunni.
- Ása Hildur nefndi að DVD/Videó spólur
af Batandi manni eru tilbúnar
til afhendingar.
- Vilhjálmur Hjálmarss.
Er að vinna
að nýjum eintökum af
Pókók.
- Guðríður segir frá aðalfundi
Kvennahreyfingarinnar og að þar
hafi verið samþykkt
að koma að Halaleikhópnum á einhvern
hátt. Vilhjálmur segir
frá svipaðri
starfsemi á Austurlandi.
- Tillaga
var borin upp: að birta
fundargerðir aðalfundar og
félagsfundar á vef
félagsins. Samþykkt
samhljóða.
- Ása Hildur talaði um hugmynd
um málþing, pallborðsumræður
um stöðu fatlaðra í samfélaginu
- vísað til afmælisnefndar.
Fundi slitið kl. 18:58.
Fundarritari: Hanna Margrét
Kristleifsdóttir.
*Tillögur eru skáletraðar.
|
Síðast uppfært 9. júní
2008 |