Fundargerð
Ásdís Úlfarsdóttir,
formaður Halaleikhópsins bauð fundarmenn
velkomna og setti fundinn.
- Kosning fundarstjóra og fundarritara.
Uppástunga kom um Grétar Pétur
Geirsson sem fundarstjóra. Samþykkt
samhljóða.
Fundarstjóri þakkaði traustið og
las upp dagskrá fundarins.
Uppástunga kom um Önnu G. Sigurðardóttur
sem fundarritara. Samþykkt samhljóða.
Ása Hildur Guðjónsdóttir
las upp eftirtalda einstaklinga sem hafa óskað eftir
inngöngu í félagið;
Daníel Halldór Guðmundsson,
Elísa Ósk Halldórsdóttir,
Eyrún Ósk Sigurjónsdóttir,
Guðmundur G. Hreiðarsson, Gunnar Freyr Árnason,
Gunnar Gunnarsson, Hafsteinn Þ. Hafsteinsson,
Höskuldur Höskuldsson, Kristín
M. Bjarnadóttir, Pétur O. Gíslason,
Silja Kjartansdóttir, Telma Kjartansdóttir
og Tobías Hausner. Samþykkt
samhljóða.
Tveir hafa sagt sig úr félaginu
og eru það Vilborg Þorvaldsdóttir
og Gunnar Ó. Kristleifsson. Sex hafa dottið úr
félaginu þar sem þeir hafa ekki
greitt félagsgjöld.
3. Skýrsla
stjórnar.
Ásdís Úlfarsdóttir
kynnti.
„Skýrsla stjórnar leikárið 2007-8
Alls voru haldnir 32 stjórnarfundir á liðnu
starfsári. Sú regla frá árinu á undan
að hafa fasta stjórnarfundi annan hvern
miðvikudag kl. 18.15 var höfð áfram.
Síðastliðið sumar var haldinn
einn Haladagur í „Krikanum”.
Sú stjórn sem kosin var á aðalfundinum
2007 er að miklu leyti skipuð sama fólki
og hafði verið skipað í stjórn á aðalfundi árið áður.
Sú stjórn hafði þegar hafist
handa við undirbúning 15 ára
afmælis Halaleikhópsins 27.september
2007 og haldið var áfram þar sem
frá var horfið með þann undirbúning
strax að loknum stjórnarskiptum.
Sent var út bréf til Halafélaga
og óskað eftir hugmyndum um hvað gera ætti í tilefni
af afmælinu. Nokkrar tillögur bárust,
s.s. að halda uppistandsnámskeið.
Fjórir félagar höfðu gefið kost á sér í afmælisnefnd
fyrir síðasta aðalfund og fundaði
nefndin reglulega með stjórninni. Í afmælisnefnd
voru: Gunnlaugur Ingimarsson, Margrét Edda
Stefánsdóttir, Kristinn Guðmundsson
og Jón Þór Ólafsson.
Ekki gafst tími til að framkvæma
allar hugmyndir sem bárust en þær
bíða betri tíma.
Leitað var til allra leikstjóra sem
unnið höfðu með Halaleikhópnum
frá upphafi, og óskað eftir samstarfi
vegna 15 ára afmælis hópsins. Þeir
hefðu frjálsar hendur með hvaða
hætti þeir kæmu að afmælinu,
hvort sem það væri að leikstýra
stuttverki eða eitthvað annað. Þeir
sem sáu sér fært að vinna
með okkur á þessum tímapunkti
voru: Ármann Guðmundsson, sem gaf okkur
stuttverk til uppsetningar, Edda V. Guðmundsdóttir
sem leikstýrði, Guðjón Sigvaldason
var stjórn innan handar til ráðgjafar
vegna afmælisins
og Vilhjálmur Hjálmarsson en hann
var bæði kynnir á afmælishátíðinni
og sá um hönnun á ljósasjóvi í tilefni
af kaupum leikhópsins á nýju
tölvuljósaborði og viðbót
við ljósabúnaðinn sem fyrir
var. Nýja ljósaborðið var
afmælisgjöf leikhópsins til sjálfs
sín og var það vígt á afmælishátíðinni.
Með því rættist gamall draumur því ljósaborðið er
tölvustýrt, þannig að nú er
tæknihlið leikhússins okkar líka
aðgengileg fötluðum. Nú ættu því allir
félagsmenn að geta unnið mun stærri
part af tæknivinnunni sjálfir. Þess
má geta að Vilhjálmur Hjálmarsson
og Ása Hildur Guðjónsdóttir
fóru á fund Þórólfs Árnasonar
og hann gekk í lið með okkur til
að afla fjármagns til þessara
kaupa.
Stjórn leist vel á þá hugmynd
að halda uppistandsnámskeið og hafði
samband við nokkra aðila sem mögulega
gætu haft umsjón með námskeiðinu.
Allir bentu þeir á Ágústu
Skúladóttur og var hún fengin
til verksins.
Uppistandsnámskeiðið hófst þann
1.september 2007 og hafði það yfirskriftina „Sólóstund
leikarans“. Þrettán félagar
skráðu sig á námskeiðið. Út úr
uppistandsnámskeiðinu kom
Hjólastólasveitin sem tók þátt í Margt
smátt 2007 og hefur víða verið fengin
til að skemmta síðastliðið leikár.
Haldið var uppá 15 ára afmæli
Halaleikhópsins með glæsibrag,
laugardaginn 29.september 2007. Gestum var boðið uppá skemmtidagskrá í Halaleikhúsinu
og að henni lokinni var farið upp í félagsheimili
Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu
og þar var boðið upp á tertur
og fínerí. Á afmælishátíðinni
voru þrír frumkvöðlar að stofnun
félagsins gerðir að heiðursfélögum þess,en þeir
eru: Guðmundur Magnússon og Ómar
Bragi Walderhaug og heiðruð var minning
Sigurðar heitins Björnssonar.
Kaffileikhús var haldið 12. og 14.október
sl. Þar var endurtekin skemmtidagskráin
frá afmælishátíðinni.
Sýnt var stuttverkið „Hvað drap
asnann?“ eftir Ármann Guðmundsson,
flestir þátttakenda uppistandsnámskeiðsins
fóru með gamanmál og Hanna Margrét
Kristleifsdóttir las ljóðið „Breikkið hliðið“ eftir
Tor Ottar Kvam í þýðingu
Steinunnar Harðardóttur.
Ákveðið var að halda nokkur „bíókvöld“ á tímabilinu
frá afmæli leikhópsins til
upphafs æfinga á „Gaukshreiðrinu“.
Sýndar voru upptökur af nokkrum af
eldri uppfærslum Halaleikhópsins.
Í október vann stjórn félagsins
skipulagsskrá upp úr skipulagsskrám
annarra leikfélaga , sem
henni áskotnaðist á námskeiði í stjórnun
leikfélaga á vegum BÍL. Komandi
stjórnum er í sjálfsvald sett,
hvort þær vinni eftir þessu plaggi.
Skipulagsskrána má nálgast á heimasíðu
félagsins. Stjórnin hafði þessa
skipulagsskrá til hliðsjónar
við uppsetninguna á „Gaukshreiðrinu“.
Húsreglur fyrir Halaleikhópinn
voru unnar í nóvember sl. og hanga þær
uppi á vegg í eldhúsinu í Halanum.
Húsreglurnar voru unnar með hliðsjón
af húsreglum Sjálfsbjargarhússins
og aðlagaðar að okkar starfsemi.
Í tilefni af Evrópuári jafnra
tækifæra 2007 veitti Félags-og
tryggingamálaráðuneytið hópnum
styrk að upphæð 200 þúsund
krónur. Þessi styrkur var veittur
vegna Gaukshreiðursins. Við vorum þar í góðum
félagsskap,því aðrir
sem fengu styrk voru m.a. Mannréttindaskrifstofa Íslands
og Kvennaathvarfið.
Eitt fréttabréf, Hala-Fréttir,
var gefið út í vetur.
Ákveðið var að fara aftur í samstarf
við Miðlun (áður PSN-samskipti)
um fjáröflun fyrir Halaleikhópinn, þar
sem góð reynsla var af því frá árunum áður.
Í vetur var keyptur og tekinn í notkun
tónmöskvi í húsnæði
Halaleikhópsins.
Stjórn leikársins 2006-7 hafði þegar
gert munnlegt samkomulag við Guðjón
Sigvaldason um leikstjórn á „Gaukshreiðrinu”,
eftir Dale Wasserman, leikárið 2007-8.
Leikstjórasamningur við hann var síðan
undirritaður þann 5.september 2007, og
haldinn þankaroksfundur vegna fyrirhugaðrar
uppsetningar sama kvöld, þar sem 20
manns mættu og létu hugann reika.
Æfingatímabilið hófst í byrjun
nóvember, en tekið var frí í desember.
Aftur var hafist handa í byrjun janúar
og frumsýning var þann 9.febrúar
sl. Sýningar voru 11 talsins og
komu 408 sýningargestir á sýninguna. Þar
af voru 137 frí- og boðsmiðar.
Við, ásamt öðrum áhugaleikfélögum,
fundum fyrir áhugaleysi fjölmiðla
og erfitt reyndist að fá birta umfjöllun
um sýninguna.
Í vetur hefur gengið vel að fá styrki úr
hinum ýmsu sjóðum. Við minnum á að gjafabréf
Halaleikhópsins eru til sölu hjá félaginu.
Við tókum þátt í keppninni
um Athyglisverðustu áhugaleiksýningu ársins , sem
haldin er á vegum Þjóðleikhússins.
Skemmst er frá því að segja
að við unnum val Þjóðleikhússins
um Athyglisverðustu áhugaleiksýningu
leikársins 2007 – 2008. Tilkynnt var
um það á aðalfundi BÍL í Skagafirði
4. maí sl.. Þetta hefur það í för
með sér að okkur er boðið að sýna í Þjóðleikhúsinu
4. júní nk. á Stóra
sviðinu. Stjórn Halaleikhópsins
hvetur félaga eindregið til að mæta.
Aðalfundur BÍL árið 2008
var haldinn í Skagafirði fyrstu helgina í maí og
stjórn ákvað að senda 2 fulltrúa á fundinn.
Þess má geta að nú mun í fyrsta
skipti félagi úr Halaleikhópnum , fara í Leiklistarskóla
Bandalags íslenskra leikfélaga og ákveðið var á stjórnarfundi
að styrkja hann til fararinnar.
Að lokum vil ég, fyrir hönd stjórnar,þakka
ykkur öllum fyrir samstarfið í vetur “.
Orðið gefið laust, enginn kvaddi
sér hljóðs. Samþykkt
samhljóða.
4. Afgreiddir
endurskoðaðir reikningar félagsins.
Kristín R. Magnúsdóttir.
(sjá framlögð fundargögn)
Fundarstjóri sagði ánægjulegt
að styrkjum hefði fjölgað milli ára
um tvær milljónir.
Nokkur umræða var um reikningana en
fundarmenn voru mjög ánægðir
með reikningana og uppsetningu þeirra.
Reikningar samþykktir
samhljóða
5. Afgreiðsla
tillagna sem borist hafa fundinum, svo sem lagabreytingar.
Ása Hildur Guðjónsdóttir
kynnti.
„5. grein laganna í núverandi
lögum.
„ 5.
grein.
Aðalfundur fer með æðsta vald í félaginu.
Hann skal haldinn í maí ár
hvert.
Dagskrá aðalfundar:
1. Kosning
fundarstjóra og fundarritara.
2. Inntaka
nýrra félaga.
3. Skýrsla
stjórnar.
4. Afgreiddir
endurskoðaðir reikningar félagsins.
5. Afgreiðsla
tillagna sem borist hafa fundinum, svo sem lagabreytingar.
6. Starfsemi
næsta leikárs.
7. Kosning
stjórnar, varastjórnar, tveir skoðunarmenn reikninga.
8. Önnur
mál
Aðalfund skal boða bréflega með minnst
viku fyrirvara. Þó skal vera heimilt
að boða fundinn með tölvupósti,
en æskja um leið staðfestingar að hann
hafi verð móttekinn og skal þá sami
fyrirvari gilda. Aðalfundur er lögmætur,
ef löglega er til hans boðað” .
Tillaga var um að 3. liður dagskrár
aðalfundar breytist úr „skýrslu
formanns“ í „skýrsla
stjórnar“. “
Samþykkt samhljóða.
Lögin voru þessu næst borin
upp í heild sinni
Lögin samþykkt samhljóða
með áorðnum breytingum.
6. Starfsemi
næsta leikárs.
María Jónsdóttir kynnti.
Ekki hefur gefist tími til að ræða
hugmyndir að verkefni næsta árs
og var orðið gefið laust um tillögur.
Fundarstjóri spurði hvort ekki væri
eðlilegast að vísa þessu til
nýrrar stjórnar.
Magnús Addi Ólafsson kom með tillögu
um kynningu og námskeið um lýsingu
og hljóðstjórnun hjá Halaleikhópnum.
Rætt var m.a. um óánægju á síðasta
aðalfundi þar sem þá hafði
verið ákveðið fyrirfram hvaða
sýningu ætti að setja upp síðastliðið haust
en þrátt fyrir þá gagnrýni
hafi sýningin vakið mikla athygli og
m.a. fengið verðlaun sem Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins.
Tillaga kom fram um að vísa þessu
máli til stjórnar með þeim
fororðum að hugmyndir sem ræddar
voru á aðalfundi, s.s. að óska
eftir leikstjóra og að sá aðili
velji leikrit til uppsetningar næsta vetur ásamt
tillögu um að haldið verði námskeið um
lýsingu og hljóðstjórnun. Samþykkt
samhljóða að vísa málinu
til stjórnar.
7. Kosning
stjórnar, varastjórnar, tveir skoðunarmenn
reikninga.
Þeir einu mega kjósa sem eru skuldlausir
og hafa fengið afhenta græna miða.
Enginn hafði gefið kost á sér
sem formaður. Ása Hildur sem var í framboði
til ritara ákvað að gefa kost á sér
sem formaður ef aðrar tillögur kæmu
ekki fram.
Kosning formanns til tveggja ára.
Ása Hildur Guðjónsdóttir
gaf kost á sér til formanns. Samþykkt
með lófaklappi.
Kosning varaformanns til eins árs.
Höskuldur Þ. Höskuldsson gaf
kost á sér til varaformann í eitt ár þar
sem María Jónsdóttir sagði
af sér. Samþykkt með lófaklappi.
Ritari til tveggja ára.
Þar sem Ása Hildur færðist
upp í embætti formanns var Kristín
Bjarnadóttir ein í framboði sem
ritari. Samþykkt með lófaklappi.
Meðstjórnandi
til tveggja ára.
Í framboði var Stefanía B.
Björnsdóttir. Samþykkt
með lófaklappi.
Varamaður til tveggja ára
Guðríður Ólafsdóttir
gaf áfram kost á sér. Samþykkt
með lófaklappi.
Tveir varamenn til eins árs.
Þar sem Stefanía færðist
upp í embætti meðstjórnanda
gaf Einar Andrésson kost á sér. Samþykkt
með lófaklappi.
Þar sem Kristinn
Guðjónsson
gaf ekki kost á sér áfram
sem varamaður gaf Magnús Addi Ólafsson
kost á sér sem varamaður til
eins árs. Samþykkt með lófaklappi.
Árgjald
Tillaga stjórnar var um að árgjald
hækki í kr. 1800. Ef greitt er fyrir
1. ágúst n.k. fæst 300 kr.
afsláttur og verður árgjaldið því kr.
1500. Eftir 1. ágúst verða sendir út
greiðsluseðlar til þeirra sem ekki
hafa þá greitt árgjaldið.
Samþykkt samhljóða.
8. Önnur
mál
Stefanía B. Björnsdóttir gerði
grein fyrir aðalfundi BÍL 2008.
„Aðalfundur BÍL 2. – 4.
maí 2008
Halaleikhópurinn sendi tvo fulltrúa á aðalfundinn Ásu
Hildi Guðjónsdóttur og Stefaníu
Björk Björnsdóttur. Fundurinn
var haldinn í félagsheimilinu Árgarði í Skagafirði
og gist var og snætt að Bakkaflöt í Skagafirði.
19 félög sendu 36 fulltrúa
sem sátu þingið auk stjórnar
BÍL og starfsmanna.
Fyrirhuguð einþáttungahátíð sem
halda átti í tengslum við aðalfundinn
var aflýst vegna ónægrar þátttöku.
En á föstudagskvöldinu fórum
við á Sauðárkrók og
sáum „Viltu finna milljón?“ Hjá Leikfélagi
Sauðárkróks í Bifröst.
Var það hin mesta skemmtun.
Eiginleg fundarstörf hófust svo kl.
9.00 á laugardagsmorgun með hefðbundnum
aðalfundarstörfum, og stóð linnulítið til
kl. 17.00. Helstu málin sem rætt var
um voru td.: Skortur á gagnrýni fyrir áhugaleikfélög
og svo sem engar patentlausnir uppi í því máli. Þó var því beint
til BÍL að halda námskeið í því að skrifa
gagnrýni svo hægt væri að fá fleiri
til að skrifa og birta á vef BÍL.
Varðandi Leiklistarskólann þá er
mikil gróska í honum en húsnæðismál
hans vandamál. Enn er verið að skoða
hvort Hallormsstaður verði framtíðarkostur,
en ekki náðist að ganga frá því fyrir þetta
skólaár.
Handritasafnið er enn í vinnslu og
aðalfundurinn samþykkti að kaupa
nýja ljósritunarvél og skanna
fyrir það verkefni, sem og tölvu
og afritunarbúnað. Talsvert vantar af
upplýsingum um leikritin sem eru inná vefnum.
Og fólk kvatt til að senda inn smá lýsingu
ef það þekkti leikritin. Lestrarhestafélag
var sett á stofn, það er hópur
fólks sem tekur að sér að lesa
yfir handrit og gera stuttan útdrátt
og lýsingu til að setja á vefinn
til að auðvelda leit að leikritum.
Ekkert er að gerast í málefnum
búningasafnsins. Þjóðleikhúsið segist
tilbúið til að lána út
búninga ef það hefði mannskap í það sem það hefur
ekki.
Saga BÍL er að verða tilbúin,
búið er að hanna kápuna.
Verið er að safna nöfnum í gradule
lista gegn skuldbindingu til að kaupa bókina.
Bókin mun kosta 5600 kr í smásölu
og 4900 kr. í forsölu fyrir þá sem
eru á listanum.
Talsvert var rætt um Margt smátt
og mikill áhugi fyrir að halda hana
aftur í haust sem var svo samþykkt.
Halaleikhópnum voru færðar þakkir
fyrir gott partý eftir Margt smátt.
Breyting var gerð á reglum um úthlutun
styrkja þar sem tímalengd á verki í fullri
lengd var stytt úr 90 mín í 80
mín. Árgjaldið var samþykkt óbreytt.
Minnt var á NEATA hátíðina á Akureyri
2010, leikfélög þurfa að hafa
hana í huga við val á verki næsta
leikárs ef þau hafa áhuga á að sækja
um.
Tillaga stjórnar að starfsáætlun
var samþykkt sem er í meginatriðum:
Rekstur þjónustumiðstöðvarinnar,
Leiklistarskólans, vefsins og annarra fastra
liða. Leita eftir hækkuðum framlögum úr
opinberum sjóðum og frá einkaaðilum.
Halda áfram samstarfi við Þjóðleikhúsið um
Athyglisverðustu áhugaleiksýningu ársins.
Sérverkefni starfsársins verða
að halda áfram undirbúningi fyrir
NEATA 2010 og hefja fjármögnun hennar,
ma. með umsókn í menningarsjóð ESB.
Hefja skönnun á handritasafninu. Margt
smátt haust 2008, halda haustfund 2008, þar
sem verða tengd við námskeið og
hugsanlega endurskoðaðar úthlutunarreglurnar.
Á laugardagskvöldinu var svo hátíðarkvöldverður þar
sem Leikfélag Selfoss kom með einþáttung,
og Leikfélag Sauðarkróks var
með hin ýmsu skemmtiatriði ma. kom
Geirmundur Valtýsson og spilaði og söng
fyrir okkur. Herdís Þorvaldsdóttir
kom og flutti okkur erindi um hvernig hafi verið að starfa í áhugaleikfélögum
fyrir 50 árum. Hápunktur kvöldsins
var svo þegar Tinna Gunnlaugsdóttir
kynnti val Þjóðleikhússins á Athyglisverðustu áhugaleiksýningu
leikársins 2007 – 2008. Í ár
hrepptum við titilinn fyrir Gaukshreiðrið og
fengum að auki viðurkenningu fyrir gott
og öflugt starf undanfarin ár. Fögnuðurinn
var gríðarlegur í okkar hópi.
Svo skemmtilega vildi til að Gunnar Gunnarsson
var staddur á þinginu líka á vegum
leikfélagsins Peðsins og gat tekið við viðurkenningunni
með okkur.
Á sunnudagsmorgninum kl. 9.00 var svo
fundi haldið áfram og samþykktar þær
tillögur sem kynntar voru daginn áður,
farið var í hópastarf og sköpuðust
líflegar umræður.
Stjórnarkjör:
Ingólfur Þórsson var kosinn
varaformaður er frá Freyvangsleikhúsinu
Guðfinna Gunnarsdóttir Leikfélagi
Selfoss og Hörður Sigurðarson Leikfélagi
Kópavogs voru kosin sem meðstjórnendur.
Í varastjórn voru kosin: Sigríður
Lára Sigurjónsdóttir frá Hugleik,
Halla Rún Tryggvadóttir frá Leikfélagi
Húsavíkur og Elva Dögg Gunnarsdóttir
frá Leikfélagi Hafnarfjarðar.
Fundi lauk undir hádegi. Þá var
snæddur hádegisverður áður
en lagt var í hann.
Aðgengi var ekki í lagi fyrir hjólastóla á báðum
stöðunum en þó tiltölulega
litlir agnúar nema að það var
ekki neitt aðgengilegt klósett sjáanlegt á staðnum.
Við fórum í pontu í lok
fundar og mótmæltum þessu og
báðum um að betur verði hugað að þessu í framtíðinni.
Nánari upplýsingar um fundinn og ályktanir
og kjör verður hægt að nálgast á vef
BÍL fljótlega.
Ása Hildur Guðjónsdóttir
Stefanía Björk Björnsdóttir “.
Ása Hildur minntist á Tabula gratulatoria
sem er þátttökulisti yfir félög
innan BÍL en gefin verður út
bók um 50 ára sögu BÍL þar
sem leikfélögum er gefinn kostur á að nafn
sitt komi fram.
Samþykkt var að Halaleikhópurinn
léti nafn sitt í bókina.
Ása Hildur þakkaði traustið að vera
valin formaður og þakkaði hún þeim
sem gengu úr stjórn fyrir vel unnin
störf.
Kristinn Guðjónsson þakkaði
samstarfið á liðnu ár og óskaði
nýrri stjórn til hamingju.
Kristín R. Magnúsdóttir þakkaði
fyrrverandi stjórn fyrir góð störf
og óskaði nýrri stjórn
til hamingju.
Ásdís Úlfarsdóttir óskaði
nýrri stjórn til hamingju með kjörið og þakkaði
fyrri stjórn samstarfið.
Ásdís þakkaði fyrir góðan
fund og þakkaði fundarstjóra og
fundarritara fyrir þeirra störf.
Fundarritari; Anna Guðrún Sigurðardóttir
Samþykkt á stjórnarfundi
9. júní 2008.