banner

adalsida sagan leikverk stjorn log felagar tenglar Frettir

 

Aðalfundur Halaleikhópsins

28. maí 2009

Fundargerð aðalfundar Halaleikhópsins,

haldinn að Hátúni 12, fimmtudaginn 28. Maí 2009, kl. 20.00

 

Ása Hildur Guðjónsdóttir, formaður hóf fundinn með því að stinga upp á Grétari Pétri Geirssyni sem fundarstjóra og Guðbjörgu Kristínu Eiríksdóttur sem fundarritara. Voru þau samþykkt.

Var þá gengið til dagskrár. Um 30 félagmenn voru viðstaddir þennan aðalfund.

Inntaka nýrra félaga . Ása sagði frá því að 13 nýir félagar höfðu sótt um inngöngu í félagið frá síðasta aðalfundi. Las hún upp nöfnin; voru þau í heild sinni borin upp til samþykktar. Þau voru samþykkt með lófataki og bauð Ása hina nýju félaga hjartanlega velkomna í félagið. Voru félagar þá orðnir 85 talsins.

Höskuldur Höskuldsson, varaformaður las síðan skýrslu stjórnar fyrir síðasta starfsár. Fylgir hún sem viðhengi við fundargerðina. Var hún samþykkt einróma með handauppréttingu af fundarmönnum þegar hún var borin upp til samþykktar.

Afgreiddir endurskoðaðir reikningar félagsins. Kristín R. Magnúsdóttir gerði grein fyrir þeim. Grétar Pétur benti á að þó svo að tekjur væru minni, þá kæmi á móti að gjöldin hefðu verið minni; hafnaður hefði þess vegna verið af rekstri félagsins. Því bæri að fagna. Reikningarnir voru samþykktir af fundarmönnum.

Næsti dagskrárliður: tillögur sem höfðu borist fundinum. Engar tillögur höfðu borist.

Ása Hildur bað um orðið um félagsgjaldið. Stjórnin lagði til að félagsgjald yrði óbreytt, kr. 1.800.- og var það samþykkt.

Starfsemi næsta árs . Ása Hildur sagði frá því að Ágústa Skúladóttir hefði verið ráðin leikstjóri leikársins 2009-2010. Stæði til að annast uppsetningu á leikgerð Ágústu á „Svartfugli“ eftir Gunnar Gunnarsson. Ása reiknaði ekki með því að leiklistarnámskeið yrði haldið um haustið; félagið hefði ekki fjárhagslegt bolmagn til þess. Bauð hún fundarmönnum að koma með hugmyndir um hvað félagið gæti gert annað. Var ýmislegt rætt af fundarmönnum. M.a. var spurt um „Svartfugl“ og sagði Ása Hildur frá því að til væri á vef RÚV upptökur af upplestri Gunnars Gunnarssonar á bókinni.

18. júlí var ákveðinn sem Haladagurinn 2009.

Kosning stjórnar, varastjórnar og tveggja skoðunarmanna reikninga. Grétar Pétur kynnti hvaða embætti þyrfi að kjósa fólk í og hverjir væru í kjöri. Kjósa þurfti á þessum aðalfundi: varaformann, gjaldkera og tvo varamenn til tveggja ára, ritara til eins árs; svo og skoðunarmenn reikninga til tveggja ára.

Höskuldur Höskuldsson gaf kost á sér til varaformanns áfram og var hann samþykktur einróma. Kristín R. Magnúsdóttir gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu sem gjaldkeri næstu tvö árin, en í hennar stað gaf kost á sér Kristín M. Bjarnadóttir sem var samþykkt af fundarmönnum.

Ekkert formlegt framboð hafði borist til ritara félagsins. Anna Guðrún Sigurðardóttir hafði þó tjáð Ásu Hildi að hún væri tilbúin að gegna embætti ritara félagsins ef enginn annar gæfi kost á sér. Var hún samþykkt sem ritari félagsins til eins árs.

Tveir varamenn höfðu verið kosnir til eins árs á aðalfundi 2008, þeir Einar Andrésson og Magnús Addi Ólafsson. Gáfu þeir báðir kost á sér áfram til tveggja næstu ára og þar að auki Elísa Ósk Halldórsdóttir. Var gengið til kosninga og féllu atkvæði þannig: Elísa fékk 24 atkvæði, Einar 16 og Magnús 14. Elísa taldist þá annar varamaður stjórnar og Einar þriðji varamaður.

Grétar Pétur Geirsson og Kristín R. Magnúsdóttir gáfu kost á sér sem skoðunarmenn reikninga og voru þau samþykkt. Ragnar Gunnar Þórhallsson hafði verið skoðunarmaður en gaf ekki kost á sér áfram. Voru honum þökkuð góð störf fyrir félagið, svo og þeim sem ekki héldu áfram í þeim störfum sem þau höfðu verið í.

Önnur mál.

Ása Hildur sagði frá því að hún hafði sótt aðalfund Bandalag íslenskra leikfélaga – BÍL – og las hún upp samantekt sína frá þeim fundi. Nefndu hún í lokin hversu mikilvæg þátttaka félagsins væri á slíkum fundum, m.a. til þess að minna á sérstöðu Halaleikhópsins.

Kaffileikhús hafði verið skipulagt 1. júní. Hvatti Ása fólk til að koma og sjá uppfærsluna.

Beiðni um samstarf við Götuhernaðinn . Ása las upp beiðni sem hafði borist frá 5 ungmennum innan Sjálfsbjargar um samstarf og einhverskonar vinnuskipti við Halaleikhópinn. Var þetta erindi rætt af fundarmönnum, hentaði þessi tími (júní/júlí) mörgum illa. Eftir nokkrar umræður var þessu erindi vísað til stjórnar.

Afmælisgjöf „Allra átta“ , fyrirtækisins sem hýsti vef Halans. Þeir höfðu átt afmæli og gæfu af því tilefni viðskiptavinum sínum afmælisgjöf í formi 60 mínútna vinnu, eftir mottóinu „fyrstir koma, fyrstir fá“. Átti Ása Hildur hafði strax haft samband við fyrirtækið og ætluðu þeir að liðsinna Halanum að endurbæta heimasíðuna.

Kristín R. Magnúsdóttir bað í lok fundar um orðið og þakkaði öllum þeim höfðu verið með henni í stjórn á liðnum árum fyrir gott samstarf.

Grétar Pétur sleit síðan fundi kl. 22.00.

Guðbjörg Kristín Eiríksdóttir, Fundarritari

 

Viðhengi: skýrsla stjórnar.

 

 
Til baka á aðalsíðu Efst á síðu Póstur til Halaleikhópsins

Síðast uppfært 2. nóv. 2008