
Hópurinn sem koma
að sýningunni ásamt höfundi Unni
Maríu Sólmundardóttur
|
Á tíunda
leikári
félagsins réðumst við í það stórvirki
að fá ungan íslenskan leikritahöfund,
Unni Maríu Sólmundardóttur,
til að skrifa fyrir okkur leikrit til að flytja á þessum
tímamótum. Nefnist verkið “Á fjölum
félagsins” það var frumsýnt
8. febrúar 2003 . Að sýningunni
komu um það bil 15 leikarar ásamt
4 manna hljómsveit en í leikritinu
eru hvorki meira né minna en 12 lög
með frumsömdum íslenskum texta
eftir Unni Maríu.
|
 |
En alls koma um þrjátíu manns að sýningunni á einn eða annan hátt, þegar teknir eru með sviðsmenn, ljósamenn, búningahönnuðir svo fátt eitt sé talið. Til að halda utanum þetta og stýra hinni faglegu hlið málsins réðum við til okkar Eddu V. Guðmundsdóttur sem leikstjóra. Er það von okkar að þetta framtak okkar geti nýst sem gott innlegg á ári fatlaðra 2003.
| Jón Þór Ólafsson, Jón Stefánsson, Ásdís Úlfarsdóttir og Árni Salomonsson |
|
|
| |
|
Um leikritið
Á fjölum félagsins fjallar um fyrirlestur frú Þorgerðar Kvaran leikhússpekúlants um það hvernig ber að standa að (eða kannski öllu heldur hvernig ætti ekki að standa að) stofnun áhugaleikhópa. Hún rekur feril Félagsins, frá stofnfundi fyrstu félagsmannanna til stjórnarskiptanna í lok fyrsta starfsársins og styðst við myndskeið úr einkasafni sínu, en af eigin frumkvæði gerðist hún persónulegur verndari þessa hóps.
|
|

| Árni Salomonsson, Jón Stefánsson og Ásdís Úlfarsdóttir |
|
 |
| Þorgerður
fjallar um sorgir og sigra félagsmanna,
fjáraflanir, leikritaval, ráðningu
leikstjóra, leikhúsrómantíkina
og sex vikna æfingatímabilið sem
einkennist af fyrirsjáanlegum
uppákomum s.s. leikstjórakastið, áfalli í leikarahópnum
o.fl. Þorgerður nýtur
aðstoðar nemenda í salnum
sem sjálfviljugir greiddu fyrir
fyrirlesturinn auk þess sem hún,
líkt og góðum fyrirlesara
sæmir,
kryddar lestur sinn með söng
og öðrum uppákomum. |
|
Alveg
sérstakar þakkir fær Björgunarhundasveit Íslands sem
tók virkan þátt í sýningunni
með því að lána
einn hund og björgunarsveitarmann
til að leika í sýningunni |
Hér
má sjá Susanne Elisabeth
Götzinger og Sám sem
fór
með stórt hlutverk í sýningunni
og stóð sig með mikilli
prýði
|
|
|
Höfundur leikrits og söngtexta:
Unnur María Sólmundardóttir, f.
1973, lauk sjúkraliða- og stúdentsprófi
við FB 1993, framhaldsnám í Geðhjúkrun
við FÁ 1995 og B.ed. prófi
við KHÍ 2002. Hún tók þátt í nemendasýningu
FVA á "Ímyndunarveikinni" eftir
Moliere í leikstjórn Helgu Brögu
Jónsdóttur, uppsetningu Skagaleikflokksins á ,,19.
júní” eftir Iðunni og Kristínu
Steinsdætur auk þess að starfa
með Halaleikhópnum í "Trúðaskólanum", "Jónatan" og
nú, „Á Fjölum Félagsins“.
Vorið 2002 fór hún til Svíþjóðar ásamt
hóp er nefnist Vinir Villa og tók þátt í uppfærslu á "Storminum" eftir
William Shakespeare. Á annað hundrað kennaranemar
af Norðurlöndunum fluttu verkið á frummálinu
undir stjórn Donyu Foyer. Unnur María
starfar við námsefnisgerð fyrir
Slysavarnarfélagið Landsbjörg
auk þess að vinna að fræðsluefni
fyrir Íslenska Lögregluforlagið ehf.
Hún hefur fengist við textagerð fyrir árshátíðir
og aðrar samkomur, en verkið á "Fjölum
Félagsins" er frumraun hennar í leikritagerð og
samið í tilefni af tíu ára
afmæli Halaleikhópsins. |
Um leikstjórann: Edda V. Guðmundsdóttir leikstjóri, f. 1943 útskrifaðist úr Leiklistaskóla Íslands 1977. Hefur m.a. unnið með Alþýðuleikhúsinu, Leikfélagi Reykjavíkur og Leikfélagi Akureyrar auk Halaleikhópsins. Einnig leikið í sjónvarpi og stuttmyndum og leikstýrt á ýmsum stöðum bæði úti á landi og í Reykjavík.
Edda V. Guðmundsdóttir
er að leikstýra Halaleikhópnum
núna í sjötta
sinn. Hún leikstýrði "Rómeó og
Ingibjörgu" eftir Þorstein Guðmundsson,
,,Allra meina bót" eftir Patrek og
Pál, Gullna hliðinu eftir Davíð Stefánsson, "Jónatan" sem
var eftir hana sjálfa og samið sérstaklega
fyrir Halaleikhópinn, Dagskrá í kaffileikhúsi
sl. vor og svo núna "Á Fjölum
félagsins" eftir Unni Maríu
Sólmundardóttur en Unnur samdi
einmitt söngtextana í leikriti Eddu "Jónatan" svo
að nú vinna þær öðru
sinni saman með Halaleikhópnum. |
| Persónur og leikendur: |
| Frú Þorgerður |
Kolbrún D. Kristjánsdóttir |
| Geiri: |
Árni Salomonsson |
| Böddi: |
Jón Þór Ólafsson |
| Stebbi: |
Jón Stefánsson |
| Signý: |
Hanna Margrét Kristleifsdóttir |
| Gunnur: |
Ásdís Úlfarsdóttir |
| Áhorfandi 1: |
Stefanía Björk Björnsdóttir |
| Vilhelmína: |
Kristín R. Magnúsdóttir |
| Jens: |
Örn Sigurðsson |
| Leikstjóri 2: |
Haraldur Haraldsson |
| Ritari á stofnfundi: |
Arndís H. Guðmarsdóttir |
| Teiknari: |
Sigríður Ósk Geirsdóttir |
| Leitarhundar og Björgunarsveitarmenn: |
Skoti / Hildigunnur Haraldsdóttir |
|
Sámur / Susanne E. Götzinger |
|
Frosti / Ingimundur Magnússon |
| Hljómsveitin SJER á báti: |
Sigurður Einarsson |
|
Jón Eiríksson |
|
Einar Þórður Andrésson |
|
Ragnar Gunnar Þórhallsson |
| Leikmynd : |
Unnur María Sólmundardóttir |
| |
Edda V. Guðmundsdóttir |
| Búningar : |
Bára Jónsdóttir |
| Hvíslari: |
Ása Hildur Guðjónsdóttir |
| Hönnun Lýsingar: |
Vilhjálmur Hjálmarsson |
| Ljósamenn: |
Fannar Örn Karlsson |
|
Alexander Harðarsson |
Leikmunavörður og Sviðsmaður: |
Stefanía Björk Björnsdóttir |
Brellumeistarar: |
Andri Valgeirsson |
|
Höskuldur Þór Höskuldsson |
Förðun: |
Alda Lilja Sveinsdóttir |
Hönnun Plakats: |
Lóa Dís Finnsdóttir |
Miða og Kaffisala: |
Guðbjörg Halla Björnsdóttir |
|
Helga Bergmann |
|
Sigurveig Buch |
|
Halaleikhópurinn: Leikhópur þessi var stofnaður í september 1992 og hefur starfað óslitið síðan. Fyrsta verkið var frumsýnt 16.janúar 1993 og eru því 10 ár núna frá fyrstu frumsýningu. Settar hafa verið upp sýningar á hverju ári og stundum fleiri en ein. Leikhópurinn hefur þannig fyrir löngu sannað tilverurétt sinn. Kjörorð hópsins „leiklist fyrir alla“ eru orð að sönnu, því að félagið beitir sér að leiklist með þátttöku fatlaðra og ófatlaðra í huga.
Fötlun er eitthvað sem oft á tíðum gleymist í þessu áhugaleikfélagi.
|
| |