Allra meina bót
eftir Patrik og
Pál
Frumsýnt 10. mars 1995
Leikritið Allra
meina bót er gamanleikrit, sem gerist á ónefndri
sjúkrastofu. Þar ræður
ríkjum ókrýndur konungur
allra skurðlækna, sem sker allt
sem hníf festir á. Þangað kemur
illa haldinn ungur maður með rannsóknarlögregluna á hælunum
vegna fjársvikamáls, en
hann átti
fyrirtæki, sem urðu gjaldþrota. Þegar á sjúkrastofuna
kemur lendir ungi maðurinn í atburðarás,
sem hefur ófyrirsjáanlegar
afleiðingar. Spenna, kímni, hasar
og mikill söngur er það sem
einkennir þetta leikrit. Þetta
mun vera fyrsti söngleikurinn, sem Halaleikhópurinn
spreytir sig á.
|
 |
Úr leikskrá:
Leikritið allra meina
bót er gamanleikrit sem gerist á sjúkrastofu í ónefndu
sjúkrahúsi. Þar ræður
ríkjum ókrýndur konungur
allar skurðlækna, Dr. Svendsen.
Hann tekur á móti sjúklingum
og sker þá upp við hvers
konar sjúkdómum.
Leikritið gerist á stofu
uppáhaldssjúklingsins dr.
Svendsen, sem er Andrés „ofskorni” !
Leikritið byrjar á því að hjúkrunarkonan
er að gera klárt fyrir næsta
sjúkling sem vill svo til að er
gamall elskhugi hjúkrunarkonunnar
og er hann að reyna að kveikja
upp gamlar ástir. |
Á hæla
honum er hinn „snjalli” rannsóknarlögreglumaður
Stórólfur Stórólfsson
sem hefur skipun frá saksóknaraembættinu
um að fylgja honum eftir hvert
fótmál.
Með skipun
um að fá uppúr sjúklingnum
hlaupareikningsnúmer í Færeyjum
sem hann á að hafa undir
höndum. Þarna blandast saman
söngur og leikhæfileiki
hvers einstaklings fyrir sig. En þetta
mun vera fyrsti söngleikurinn
sem þau spreyta sig á.

|
|

| Jón
Eiríksson og Baldvin Jón
Sigurðsson |
|
Doktor
Svendsen yfirlæknir: |
Kristinn
Guðmundsson |
Doktor
Jakob Jónsen aðstoðarlæknir: |
Jón Björn
Marteinsson |
Halla
hjúkrunarfræðingur: |
Kolbrún Dögg
Kristjánsdóttir |
Pétur
S. Bertúelsson: |
Baldvin Jón
Sigurðsson |
Andrés „ofskorni”: |
Jón Eiríksson |
Stórólfur
Stórólfsson rannsókarlögreglumaður: |
Árni Salomonsson |
Ingrid
Brun (dtland) hjúkrunarkona
frá Noregi: |
Ingólfur Örn
Birgisson |
Valdimar
Sveinsson alþingismaður að norðan
með höfuðkrankleika: |
Hrafn
Ragnarsson |
Stofugangur: |
María Ragnarsdóttir |
|
Sigríður Ósk
Geirsdóttir |
|
María Jóna
Geirsdóttir
|
|
Lilja Hrönn
Halldórsdóttir |
| Sviðsstjórn: |
Guðbjörg
Halla Björnsdóttir |
|
|
Leikstjóri:
|
| Edda
V. Guðmundsdóttir leikstjóri, útskrifaðist úr
Leiklistarskóla Íslands
1977. Hún hefur síðan
unnið með Alþýðuleikfélaginu,
Leikfélagi Reykjavíkur
og Leikfélagi Akureyrar. Einnig
hefur hún leikið í sjónvarpi
og myndböndum og leikstýrt
fjölda verka á ýmsum
stöðum, bæði úti á landi
og í Reykjavík. Hún
starfaði um skeið árið 1985
með félögunum sem nú skipa
Halaleikhópinn. Síðan
af og til þar til árið 1993,
en þá leikstýrði
hún leikritinu „Rómeo
og Ingibjörg” sem Halaleikhópurinn
frumsýndi. |
 |
| |
|
| Aðrir: |
|
| Tónlist: |
Jón Múli Árnason |
| Útsetning
tónlistar og hljómlistarflutningur: |
Hilmar Sverrisson |
| Ljósahönnun: |
Kári Gíslason |
| Förðun: |
Harpa Ingólfsdóttir |
| Miðasala
og kaffiumsjón: |
Guðbjörg
Halla Björnsdóttir |
| Saumakonur: |
Elín Jónsdóttir |
| |
Guðbjörg
Halla Björnsdóttir |
| |
|
| Frétt
um sýninguna og þegar
Steindór Hjörleifsson var
gerður að heiðursfélaga á vef
mbl.is |
| Fólk í fréttum
14. mars 1995 af vef mbl.is |
| Menningarlíf
8. mars 1995 af vef mbl.is |
| |
|
| Fleiri
myndir úr sýningunni
er að finna HÉR |
|
|
|