Batnandi maður
eftir Ármann
Guðmundsson
í leikstjórn höfundar
Frumsýnt 24. feb. 2007
Um
leikritið: |
| |
Batnandi maður
fjallar á gráglettinn hátt
um sjómanninn Sigmar sem fengið hefur
nóg af sjómennsku og sér
tækifæri þegar hann lendir í vinnuslysi
til þess að láta úrskurða
sig öryrkja og njóta þannig
lífsins á kostnað skattborgaranna.
Hann sogast
brátt inn í heim sem var honum
að öllu ókunnugur, eignast
nýja vini og óvini, lendir í útistöðum
við kerfið og verður svo sannarlega
reynslunni ríkari. En þegar
upp er staðið er líf öryrkjans
kannski ekki alveg eins ljúft og hann
taldi í fyrstu. Hvernig getur hann
orðið 0% öryrki aftur? Dugir
eitthvað minna en kraftaverk?
Þetta
er ýkjukennt raunsæisverk með kaldhæðnum ádeilubroddi,
sem fjallar á ábyrgðarfullan
og fordómalausan hátt, bæði
um fordóma gagnvart öryrkjum
og fordóma gagnvart þeim sem
hafa fordóma gagnvart öryrkjum. |
|
Persónur
og leikendur eru:
|
 |
Sigmar
Ásgeirsson
Sjómaður:
Kristinn Þorbergur Sigurjónsson |
 |
Gunnar
Leifsson
Vinur hans:
Gunnar Gunnarsson |
 |
Jóhann
Jóhannsson
Nágranni Sigmars:
Jón Eiríksson
|
 |
Berglind
Kristjánsdóttir
Nágranni Sigmars:
Sóley Björk Axelsdóttir |
 |
Árný
Ósk Jónsdóttir
Þjálfari Boccialiðsins:
Hanna Margrét Kristleifsdóttir |
 |
Dr.
Bjarngeir Haraldsson
Tryggingalæknir:
Örn Sigurðsson
|
 |
Emelía
Löve
Fulltrúi hjá Tryggingastofnun:
Stefanía Björk Björnsdóttir |
 |
Sveinbjörg
Löve
Húsnæðisfulltrúi:
Guðríður Ólafsdóttir |
 |
Unnur
Guðbrandsdóttir
Leiðtogi trúfélagsins Fossins:
Ásdís Úlfarsdóttir |
 |
Dyravörður
og
Jeremiah B. Lightfoot
Bandarískur kraftaverkalæknir:
Þröstur Steinþórsson |
 |
Sporðdrekinn
foringi Hátúnsmafíunnar,
Gestur á diskóteki
:
Magnús Addi Ólafsson |
 |
Maskarinn
meðlimur Hátúnsmafíunnar:
Guðný Alda Einarsdóttir |
 |
Rakarinn
meðlimur Hátúnsmafíunnar:
Jón Freyr Finnsson |
 |
Naglhreinsarinn
meðlimur Hátúnsmafíunnar
og aðstoðarmaður í Fossinum
:
Þorkell Guðlaugur Geirsson |
 |
Sunna Ólafsdóttir
barn:
Hekla Bjarnadóttir, 9 ára
|
 |
Samkomugestur:
Kristinn S. Axelsson |
 |
Samkomugestur:
Björk Guðmundsdóttir |
|
|
Um
leikstjórann :
|
|
 |
Ármann
Guðmundsson |
| |
|
Ármann Guðmundsson er fæddur
25. október árið 1968 á Húsavík.
Afskipti sín af leiklist hóf Ármann í Menntaskólanum á Akureyri þar
sem hann m.a. samdi tónlist fyrir
sýningu LMA á Draumi á Jónsmessunótt.
Hann gekk til liðs við Hugleik árið 1991
og tók þátt í að skrifa
Fermingarbarnamótið sem sýnt
var veturinn '91-'92. Veturinn eftir sýndi
Hugleikur Stútungasögu sem Ármann
skrifaði ásamt Hjördísi
Hjartardóttur, Sævari Sigurgeirssyni
og Þorgeiri Tryggvasyni en þau
hafa síðan skrifað saman
fyrir Hugleik Fáfnismenn ('95) og Sirkus
('04).
Ármann er jafnframt
einn af höfundum verkanna Embættismannahvörfin
('97) og Ég sé ekki Muninn
('00) sem Hugleikur setti upp.
|
Þeir Ármann,
Sævar og Þorgeir hafa einnig
skrifað saman verkin Góðverkin
kalla! fyrir Leikfélag Akureyrar('93),
Bíbí og blakan, sem Hugleikur
og Höfundasmiðja Borgarleikhússins
settu upp ('96), Vírus fyrir Stoppleikhópinn
og Hafnarfjarðarleikhúsið ('99)
og Uppspuna frá rótum fyrir
Leikfélag Húsavíkur
('00). Einnig sömdu þeir og fluttu
kabarettinn Höfuðið af skömminni í Kaffileikhúsinu
('95). Síðast unnu þeir
saman að leikverkinu Klaufar
og kóngsdætur
fyrir Þjóðleikhúsið en það er
byggt á nokkrum af sögum HC Andersen
og var frumsýnt í byrjun mars
2005.
Ármann hefur á undanförnum árum
gert nokkuð af að leikstýra
hjá áhugaleikfélögum,
bæði eigin verkum og annarra. Frumsamin
verk eru Beðið eftir Go.com air hjá Leikfélagi
Mosfellssveitar ('02), Salka miðill hjá Leikfélagi
Hafnarfjarðar ('03) sem hann samdi með Gunnari
B. Guðmundssyni og leikhópnum
og nú síðast Álagabænum
('04) og Uppreisn Æru ('05) hjá Leikfélagi
Reyðarfjarðar.
Auk þess
hefur hann leikstýrt verkunum Herbergi
með útsýni
('01) og Hodja frá Pjort ('06)
hjá Leikfélagi
Hafnarfjarðar, Sex í sveit
hjá Leikfélagi
Dalvíkur ('02), Fróða
og öllum
hinum grislingunum hjá Leikklúbbnum
Sögu ('02), NÖRD hjá Leikfélaginu
Hallvarði súganda á Suðureyri
('04) og Jens og Risaferskjan hjá Leikfélagi
Sauðárkróks ('05).
Síðastliðinn
vetur hefur Ármann ásamt þeim
Sævari, Þorgeiri og Snæbirni
Ragnarssyni verið höfundar ævintýra
Stígs og Snæfríðar í Stundinni
okkar. Einnig skipa þeir fjórmenningar, ásamt
fleirum, hljómsveitina Ljótu
hálfvitarnir. |
| |
|
|
|
Aðrir
sem koma að sýningunni á einn
eða annan hátt
:
|

|
Handrit
og leikstjórn, samsetning tónlistar
og hönnun á leikmynd:
Ármann
Guðmundsson
|
 |
Aðstoðarleikstjóri, sýningarstjóri,
hvíslari á æfingatímabili, umsjón með heimasíðu,
miðapantanir, búningar ofl.:
Ása Hildur Guðjónsdóttir
|
 |
Ljósahönnun:
Vilhjálmur Hjálmarsson |
 |
Framkvæmdastjóri,
búningar,
förðun:
Helga Jónsdóttir |
 |
Fjármálastjóri,
miðasölustjóri ofl.:
Kristín R. Magnúsdóttir |
 |
Fjölmiðlafulltrúi:
María Jónsdóttir |
 |
Tæknistjóri,
málningarvinna
:
Árni Salomonsson |
 |
Tæknimaður:
Kristinn Guðjónsson |
 |
Tæknimaður:
Leifur Leifsson
|
 |
Altmuligtmand:
Einar Andrésson |
 |
Leikmyndahönnun
og smíði:
Þröstur Steinþórsson |
 |
Hönnun plakats
og leikskrár:
Andri Valgeirsson |
 |
Ljósmyndari:
Birgir Freyr Birgisson |
 |
Ljósmyndun á æfingaferlinu:
Kristinn Sigurjónsson |
 |
Málari,
búningar
ofl.:
Stefanía Björk Björnsdóttir |
 |
Málningarvinna:
Arnar Ágúst Klemensson |
 |
Vinna við leikmynd:
Ingimar Atli Arnarson |
 |
Vinna við leikmynd:
Bjarni Magnússon |
 |
Málningarvinna:
Hanna Margrét Kristleifsdóttir |
 |
Smíðar á leikpöllum:
Sigurgeir Baldursson |
 |
Miðasala
og sjoppa:
Anna Guðrún Sigurðardóttir |
 |
Miðasala
og sjoppa:
Guðný Guðnadóttir |
 |
Frumsýningarpartý:
Bára Jónsdóttir |
 |
Aðstoð í frumsýningarpartý:
Kristín Viðarsdóttir |
 |
Móttaka á sýningum:
Kristinn Guðmundsson |
|
|
|
|
 |
Ásdís Úlfarsdóttir
formaður |
| |
|
Halaleikhópurinn á fimmtán ára afmæli á þessu ári. Það voru
margar kvöldstundirnar sem ég hafði dvalið í hópi
vina og talið barst að leikhópnum áður en ég
gekk í hann.
Umræðunni fylgdi mikil gleði og kátína
er smitaði þannig út frá sér að í ársbyrjun
2000 mætti ég á mína fyrstu æfingu
alveg harðákveðin í því að byrja
sem varahvíslari. Endirinn varð hins vegar sá að ég
kom út sem ein af aðalleikurunum í leikverkinu „Jónatan“ eftir
Eddu V. Guðmundsdóttur.
Ég sé alls ekki eftir því þar sem ég
fékk tækifæri til að glíma við mikinn texta
sem að ég tel að sé einmitt mín sterka hlið.
|
Á grunnskólaárum
mínum hafði ég reyndar tekið þátt í hinum ýmsu
uppsetningum til d¿mis á „Nýju
fötin Keisarans“ en þar var ég í hópatriði
og með lítinn sem engan texta. En í hlutverki
mínu í „Jónatan“ fékk ég
meiri texta en ég hef áður þurft
að glíma við og fannst það frábært.
Þegar ég byrjaði í Halanum þótti
mér mjög ánægjulegt
að upplifa þá tilfinningu, að þó að maður
væri kannski suma daga illa fyrir kallaður,
með hárið allt út í loftið,
að þá gerði enginn athugasemd
við það. Mér finnst þetta
vera ein af mörgum jákvæðum
hliðum Halaleikhópsins.
Í uppfærslu síðasta árs „ Pókók“ eftir
Jökul Jakobsson upplifði ég mjög
sérstaka tilfinningu. Það að geta
gleymt sér svo algjörlega á sviði,
að gleyma sínu daglega amstri og áhyggjum,
með því að sökkva sér
niður í hlutverkið og einbeita
sér að því. Fyrir utan
hvað það getur verið þroskandi
að taka þátt í leiklist. Það eflir
umburðarlyndi, virðingu og traust og það að geta
sett sig í spor annarra, sem að er
lykilþáttur að góðum
samskiptum.
Eftir að hafa tekið þátt í fjórum
uppfærslum hjá Halaleikhópnum
er ég reynslunni ríkari og sé betur
hvar hæfileikar mínir liggja.
Það er von mín
að leikarar í uppfærslu afmælisársins „Batnandi
maður“ eftir Ármann Guðmundsson
finni þá sérstöku tilfinningu
að geta gleymt sér í hlutverkinu
og njóti stundarinnar á sviðinu
og þá munu áhorfendur án
efa njóta verksins.
Um leið vil ég óska
okkur öllum til hamingju með fimmtán árin
og megi framtíðin verða Halaleikhópnum
gæfurík.
Ásdís Úlfarsdóttir,
formaður Halaleikhópsins. |
| |
|
|
| |
|
|
Afmæliskveðja
frá Helga Seljan:
|
|
|
Það er mér einkar ljúft
að setja fáein orð á blað af því tilefni
að Halaleik-hópurinn verður
15 ára og hlýjar verða
heillaóskir mínar til ykkar
allra.
Þessi karski hópur framtakssamra
fullhuga hefur veitt mér ófáar ánægjustundir,
hvort sem leikið hefur verið á létta
strengi eða alvaran setið í öndvegi. Það eitt
skal fullyrt að margir glæsilegir
leiksigrar hafa verið unnir á þessum árum
og fólk virkilega notið þess
að bregða sér í annað gervi,
tileinka sér einkenni annarrar persónu
og með því móti fengið að túlka
hina sammannlegu eiginleika með hinum ýmsu
tilbrigðum.
Sá er sigurinn máske
mestur að sanna það svo rækilega,
að þegar kemur að leiksviðinu þá skiptir
fötlunin ekki máli hvað varðar
mannlegt innsæi og tjáningu
hinna ýmsu litbrigða lífs
okkar, svo sem raunar gildir einnig á sjálfu
leiksviði lífsins, þar sem
kraftar allra fá að njóta
sín ef rétta umgjörðin
er fyrir hendi svo og ytri aðstæður
allar.
|
Þau eru
mörg minnisstæðu hlutverkin í hinum
fjölmörgu sýningum Halaleikhópsins
sem nú bregður fyrir hugskotssjónum
og alltaf hefi ég farið ánægjunni
auðugri af hverri sýningu, stundum
geislandi glaður yfir góðri
skemmtan, stundum hugsi um lífið og
tilveruna, en alltaf hef ég getað dregið af
hverri sýningu dýrmætan
lærdóm.
Allra meina bót,
Gullna hliðið, Fílamaðurinn,
Nakinn maður og annar í kjólfötum
svo eitthvað sé nefnt, enda er það eitt
einkenna og í raun aðalsmerki Halaleikhópsins
að ráðast ekki á garðinn þar
sem hann er lægstur, heldur leggja þau ótrauð til
atlögu við sérhvert verkefni
og hafa ævinlega sigur.
Þakklátum
huga sendi ég ykkur hamingjuóskir í þeirri
einlægu fullvissu að enn eigið þið eftir
að reisa merkið hátt, vinna
sigra á sviðinu, finna mátt
ykkar og megin og eiga baráttuanda
bjartsýninnar, hæfileikana hafið þið sannarlega
sýnt og munuð sýna. Þið eruð birturík
rós í barmi okkar samfélags.
Megi sú rós blómgast
og blessast allur ykkar hagur.
Helgi Seljan |
| |
|
|
Afmæliskveðja
frá Guðmundi Magnússyni |
|
Halinn
15 ára
|
|
Það var síðsumars
1992 að við vorum staddir fyrir
framan símabúrið í Hátúni
12, undirritaður og Ómar Walderhaug,
en við símann sat Sigurður
Björnsson. Ég hafði bryddað uppá því að halda
leiklistarnámskeið þá um
haustið og við ræddum hver ætti
að borga og hvar væri húsnæði.
Umræðan fór um víðan
völl, en öllum bar saman um að gaman
væri að stofna leikfélag
fyrir alla, hver sem líkamsgeta
manna væri. Ómar hafði
spekúlerað í þessu áður
og sagði að til að komast í BÍL
(Bandalag íslenskra leikfélaga)
og þá fá styrki til
reksturs varð að stofna sjálfstætt
félag, sem ekki væri hluti
eða deild í öðru, t.d.
Sjálfsbjörg. Það er
ekki að orðlengja það,
en við ákváðum að boða
til fundar um stofnun slíks félags.
|
Það kom
skemmtilega á óvart
hve margir sýndu áhuga á málinu, á þriðja
tug manna mætti og eftir fjörugar
umræður vorum við kosin í undirbúningshóp. Á framhaldsstofnfundi
voru samþykkt lög og kjörin
stjórn í leikfélag sem
fékk nafnið Halaleikhópurinn.
Ekki man ég hver átti hugmyndina
að nafninu en mönnum fannst skemmtileg
hugmynd að „leika lausum hala“,
að gömlum íslenskum sið. Í fyrstu
stjórn voru kjörin: Ómar
Walderhaug, formaður, aðrir í stjórn
voru: Sigurjón Einarsson, Þórdís
Richter og að mig minnir Sigurður
Björnsson, en varamenn Valerie Harris
og Guðmundur Magnússon.
Fyrsta
verkefni félagsins var að halda
leiklistarnámskeið og fengum við til
afnota það húsnæði
sem nú er Þjónustumiðstöð Sjálfsbjargarheimilisins,
en það var þá nýtt,
ekki komið í notkun og stóð autt.
Námskeiðinu stjórnuðum
við feðgarnir, undirritaður og Þorsteinn
Guðmundsson leikari. Námskeiðið var
mjög vel sótt og endaði með að við sýndum
afraksturinn með nokkrum stuttum leikþáttum
(skrítlur í leikritsformi)
sem notaðir voru á námskeiðinu,
fyrir íbúa Sjálfsbjargarheimilisins
og ættingja og vini þátttakenda.
Almenn ánægja
var með starfið og
kom strax krafa um næstu skref. Eftir
nokkra umþóttun var ákveðið að ráðast í að setja
upp heilt leikrit og varð Aurasálin
eftir Moliére fyrir valinu. Leikritið var
valið með það í huga
að undirstrika þá stefnu
félagsins að ekki skildi lögð áhersla á fötlunina,
heldur jafnréttið og að það skipti
ekki máli hvort t.d. Hamlet eða
Skugga-Sveinn væru í hjólastól,
með hækjur eða alveg ófatlaðir
(hver er það annars?). Innihald
verkanna, hinn sammannlegi þáttur
var aðalatriðið!
Við fengum
aðstöðu til æfinga í kjallara
Hátúns 12, með því skilyrði
að við tækjum þar til
og nýttum aðeins fremri hlutann. Það var
samt mikill styrkur í að fá þessa
aðstöðu sem þáverandi
formaður Sjálfsbjargar lsf. Jóhann
Pétur Sveinsson bauð okkur, en
hann var alla tíð mikill stuðningsmaður
Halans. Æfingar gengu vel þó leikstjórarnir
væru tveir, þ.e.a.s. við Þorsteinn,
en það gat líka verið kostur þar
sem alltaf gat a.m.k. annar mætt á æfingu
og stundum hægt að æfa tvær
senur á sama tíma.
Svo var það 16.
janúar
1993 að frumsýnt var í félagsmiðstöðinni Árseli.
Húsnæðið fékkst án
leigu og var litið svo á að það væri
styrkur frá Reykjavíkurborg.
Minnstu munaði að fresta hefði þurft
frumsýningunni vegna veðurs, stórhríð og ófærðar
um borgina. Slíkt veður brast
svo á í hvert sinn sem Halinn
frumsýndi næstu ár og
var því farið að tala
um Halaveðrið nýja. Ekki gátum
við sýnt þarna nema tvisvar
eða þrisvar, en fengum því næst
inni hjá Snúð og Snældu,
leikfélagi aldraðra á Hverfisgötu
og sýndum þar þær
sýningar sem eftir voru. Þar
með lauk fyrsta leikári Halaleikhópsins.
Til
hamingju með fimmtán ára
afmælið í haust!
Þegar
kom fram á haust og
farið var að huga að næsta
verkefni kom Þorsteinn að máli
við okkur með drög að nýju
leikriti, sem hann hafði samið með leikhópinn í huga, „Rómeó og
Ingibjörg”. Nú vorum
við líka ákveðin í að laga
svo til í kjallaranum að við gætum
sýnt þar líka. Leikstjóri
að þessari sýningu var
Edda V. Guðmundsdóttir, sem
líka
var með frá upphafi. Og þar
með var boltinn farinn af stað og
hefur ekki hætt að rúlla
síðan.
Guðmundur
Magnússon |
| |
|
|
| Síðasta sýning var 22. apríl
2007. Sýningar urðu 11. |
| |
|
|
|
Halaleikhópurinn þakkar öllum,
sem hafa lagt honum lið við að koma
upp þessari sýningu.
Sérstakar þakkir til maka og nánustu aðstandenda fyrir þolinmæðina á tímabilinu. |
| |
Brot úr verkinu var einnig
sýnt í Borgarleikhúsinu 30.
apríl
í Leiklistarveislu í tengslum
við listahátiðina List án
landamæra.
|
Halaleikhópurinn Hátúni 12 105
Reykjavík
sími 552-9188 kt. 421192-2279
|

Leikskráin í pdf
formi

 Plakatið í A4
Umfjöllun Harðar Sigurðarsonar
um verkið á BÍL vefnum
Styrktarlínur:
Öryggismiðstöð
Íslands
hf
Alþýðusamband Íslands
Laugarneskirkja
Saxhóll ehf.
Sjúkraþjálfunin
Heil og sæl ehf.
Bílanaust hf.
Menntamálaráðuneytið
Verðbréfaskráning Íslands hf.
Blómabúð Kópavogs ehf.
Háskólinn í Reykjavík
Guðmundur Arason ehf. / Smíðajárn
Reykjavíkurborg
/ v. Sundlaugar í Laugardal
Fönix ehf
SÍBS
Rolf Johansen & Co ehf
Suzuki
bílar hf
Álafoss ehf.
Garðabær
Eignamiðlunin ehf.
Baltik ehf / Goldfinger
Höldur
Tryggingastofnun ríkisins
Kjaran ehf
Umslag
ehf
GlaxoSmithKline
Knattspyrnusamband Íslands
Vinnumálastofnun
Reynir bakari
ehf.
Plúsmarkaðurinn
Hátúni 10 b
Aðrir styrktaraðilar:
Sjálfsbjörg
lsf.
Sjálfsbjörg
félag fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu
Þjónustumiðstöð Sjálfsbjargarheimilisins
Félagsmálaráðuneytið
Bandalag Íslenskra
leikfélaga
Menningarsjóður
Glitnis
Minningarsjóður
Margrétar Björgólfsdóttur
Reykjavíkurborg
Fjársýsla
ríkisins
Litaver
|