Formaður
setur fundinn.
Kristinn Þorbergur Sigurjónsson
kosinn fundarstjóri.
Ása Hildur Guðjónsdóttir,
fundarritari.
1. Ágústa Skúladóttir
kynnti fyrirhugað uppistandsnámskeið.
Námskeiðið stendur yfir frá 1. sept. nk. og fram að afmælis
hátíð 29. sept. nk. Það mun ganga mikið út á sóló leik
(einleik) á sviðinu, þar sem nemendur verða þjálfaðir í að ná sambandi
við áhorfendur. Uppistand, þar sem lögð verður áhersla á eigin
texta. Karakterar skoðaðir. Möguleiki að vinna út frá smásögu
eða ljóði. Nemendur þjálfaðir í að vera öruggir í því sem þeir
taka sér fyrir hendur.
Námskeiðskostnaður er 2000 kr. fyrir skuldlausa félagsmenn
og þeir ganga einnig fyrir, ef fyllist á námskeiðið.
Hjá öðrum bætast ógreidd félagsgjöld
við.
Tímaplan verður unnið í samvinnu við þá,
sem skrá sig á námskeiðið. En líklega verður það tvö kvöld í viku
og um miðjan dag annan hvorn helgardaginn.
2. 15. ára
afmæli
Halaleikhópsins.
Ásdís Úlfarsdóttir
formaður, kynnti fyrirhugaða dagskrá.
Afmælið verður tvískipt. Annars
vegar verður vegleg
afmælisveisla 29. sept. kl. 15.00. Þar munu upphafsmenn Halaleikhópsins
verða gerðir að heiðursfélögum og ljósaborðið vígt,
og vonandi verður hljómsveit, óskað er eftir hljómlistaratriðum
frá félagsmönnum. Einnig verður afrakstur námskeiðsins
fluttur.
Hins vegar verða nokkur kaffihúsakvöld, þar sem við ætlum
að sýna nokkur stuttverk og afrakstur námskeiðsins. Óskað er
eftir leikurum í það.
Þegar er vitað að Vilhjálmur Hjálmarsson er með stuttverk
eða þátt, sem hann mun æfa upp með tveimur leikurum
og sjá alveg um.
Ármann Guðmundsson er að skrifa fyrir okkur 10 mín stuttverk,
fyrir tvo til þrjá leikara. Við ætlum að reyna að fá Eddu
V. Guðmundsdóttur til að leikstýra því.
Kristinn Þ. Sigurjónsson er með hugmyndir að tveimur atriðum,
annars vegar atriði úr Barpari og hins vegar atriði um tvo drengi
sem eru að koma úr landafræðiprófi. Hann hefur
hug á að leikstýra því sjálfur og er
að leita að höfundi seinna stykkisins. Afla þarf
sýningaleyfa ef af verður.
Þá er fyrirhugað að sýna upptökur af eldri verkum
félagsins, nokkur kvöld í október.
Önnur mál:
Ása Hildur greindi frá því að Guðjón
Sigvaldason kæmi í bæinn undir
mánaðarmót og vildi gjarnan hitta þann
hóp, sem hefur áhuga á að fara í hugarflug
varðandi Gaukshreiðrið. Æfingar
munu svo hefjast í byrjun nóvember í mánuð, þá verður
tekið æfingarhlé fram yfir áramót.
Fyrirhuguð frumsýning er svo um mánaðarmótin
janúar – febrúar. Hann biður
fyrir kveðju til hópsins.
Kristín R. Magnúsdóttir
minnti félagsmenn á ógreidd
félagsgjöld og ósóttar
pantanir á DVD á Batnandi manni.
Ásdís greindi frá því að stjórn
hefði sent Guðmundi Magnússyni heillaóskaskeyti
vegna 60 ára afmælis hans í sumar.
Ása Hildur skilaði kveðju frá Jóni
Frey Finnssyni sem er á sjúkrahúsi,
og Vilhjálmi Hjálmarssyni sem er
staddur í Mjóafirði.
Fundi slitið kl. 20.37 og boðið upp á kaffiveitingar
eftir fundinn.
Fundarritari: Ása Hildur
Guðjónsdóttir
Samþykkt á stjórnarfundi
8. nóv. 2007
|