í Halanum,
Hátúni 12 kl. 20.00
Formaður Ása
Hildur Guðjónsdóttir
setti fundinn.
Guðríður Ólafsdóttir
kosin fundarstjóri og Magnús Addi Ólafsson
kosinn fundaritari.
DAGSKRÁ:
- Kaffileikhús i vor ?
- Margt smátt 23. maí 2009
- Nýráðinn leikstjóri
kynntur og hugmynd að verkefni fyrir næsta
leikár.
- Framtíð Halaleikhópsins
- Önnur
mál
Fundur settur.
Kveðju var skilað frá Stefaníu
Björk Björnsdóttur.
Guðríður Ólafsdóttir
kosin fundarstjóri. Magnús Addi Ólafsson
kosinn ritari.
Ása Hildur talaði um þá hugmynd
að halda Kaffileikhús, til þess
að styrkja fjárhagsstöðu Halaleikhópsins!
Minnt var á styrk frá BÍL
upp á ca. 500.000 kr. fyrir síðasta
Kaffileikhús.
Ásu þakkað fyrir og orðið gefið út í sal.
Daníel Þórhallsson segist
hafa áhuga á að leika og Gunnar
Gunnarsson (Gunsó) segist alveg vilja leikstýra.
Höskuldur Höskuldsson segist vilja fá Gunsó til
að leikstýra og að fá Daníel
til að leika í frumsömdu leikverki
hans og Leifs Leifssonar.
Ása Hildur minnti
fundargesti á að Halaleikhópurinn ætti
helling af stuttverkum og segir frá Margt
Smátt hátíðinni, sem fyrirhuguð er
23. maí n.k.
Krístín R. Magnúsdóttir
biður fólk um að tala hærra.
Gunsó spyr hvort að Kaffileikhúsið verði
sýnt í sal Halans eða á kaffihúsi
?
Höskuldur stingur upp á Kaffi Hljómalind
en það er ekki samþykkt, sökum
aðgengismála.
Gunsó tekur undir
hugmynd um að halda
Kaffileikhúsið á kaffihúsi.
Allir fundargestir taka vel í hugmynd
um Kaffileikhús.
Ása Hildur útskýrir
hvernig Kaffileikhús gengur fyrir sig.
Gunsó er
ekki laus fyrr en eftir páska.
Möguleikar ræddir um Margt smátt,
hvaða verk væri hægt að sýna þar
og hvort við ættum að sýna á hátíðinni.
Og hvort við fengjum borgað fyrir það?
Guðríður
kynnir Ágústu
Skúladóttur, nýráðinn
leikstóra Halaleikhópsins. Segir
frá námi hennar, hvernig hlutverk
hún hefur leikið og hvaða verk hún
hefur sett upp á Íslandi s.s. í Þjóðleikhúsinu, Íslenku Óperunni
og svo hjá hinum ýmsu áhugaleikhópum. Ágústa
hefur áðursett upp
Kaffileikhús hjá Halanum, verið með námskeið og
er formaður Hjólastólasveitarinnar.
Ása
Hildur fær orðið og
segir frá verkinu, sem
hefur verið í umræðu hjá stjórn.
Verkið heitir Svartfugl og er eftir Gunnar
Gunnarsson, það er morðsaga og mjög
dramatísk. Ása Hildur segir frá söguþræðinum.
Gunsó sýnir þessu mikinn áhuga.
Fundargestir taka þessu með áhuga
og “gleði”
Samþykkt er að taka
fyrir Svartfugl, næsta
leikár.
Framtíð Halaleikhópsins
rædd:
Ása
Hildur fær orðið. Segir
frá List án landamæra, sem
heldur málþing í haust . Hátíðin
er haldin í samvinnu við norrænu
ráðherranefndina og leikhópum
frá Norðurlöndunum, sem
hafa farið um allan heim. Norskir og danskir
leikhópar ásamt lúðrasveit.
Málþing verður haldið í september.
Spáð í stefnu Halaleikhópsins.
Upp voru taldir Leikhópar fatlaðra á Íslandi.
Orðið gefið út í sal:
Fólk ánægt með Halaleikhópinn.
Talað um sérstöðu Halaleikhópsins. Þurfum
að sýna sérstöðu
okkar til hins “venjulega manns”.
Talað um
auglýsingastefnu Halaleikhópsins.
Spáð í að nota nútíma
auglýsingar, að kveikja þörf
hjá fólki til að koma í leikhús.
Önnur
mál:
Magnús talar um ljósaveisluna.
Kristín R. M. talar um upptökur á leikritum
til sölu og biður um að félagar
komi með flöskur og dósir.
Ásu
Hildi formanni gefið orðið og
hún þakkar fyrir fundinn og bendir á hrúgur
af leikritum.
Býður fundargestum kaffi
og veitingar og slítur fundi með fundarhamri.
Fundarritari: Magnús
Addi Ólafsson