|
Félagsfundur Halaleikhópsins
leikárið 2007-2008.
8. nóvember
kl. 20:00.
Dagskrá:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara.
- Síðasta félagsfundargerð lesin.
- Skipulagsskrá.
- Gaukshreiðrið.
- Önnur mál.
Mættir voru 21 félagsmaður með stjórn.
Varaformaður María Jónsdóttir
setur fundinn kl. 20:09.
- Guðríður Ólafsdóttir
var kosin fundarstjóri og Hanna Margrét
Kristleifsdóttir fundarritari.
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
las síðustu félagsfundargerð.
Hún var samþykkt án athugasemda.
- María Jónsdóttir kynnti
skipulagsskrána og sagði að hún
yrði sett á heimasíðu Halaleikhópsins.
Hún væri til lesningar fyrir þá sem
hefðu áhuga eftir fundinn. Umræður
sköpuðust um hana. Þeir sem tóku
til máls voru Ása Hildur Guðjónsdóttir,
Guðjón Sigvaldason og Vilhjálmur
Hjálmarsson. Guðjón og Vilhjálmur
hrósuðu þessu framtaki.
- Guðjón Sigvaldason kynnti næsta
verk Halaleikhópsins ,,Gaukshreiðrið”.
Umræður sköpuðust og Hanna
Margrét Kristleifsdóttir nefnir
að hjá þeim liggi blað þar
sem hægt væri að skrá sig
ef fólk hefði áhuga að taka þátt í verkinu.
Stefanía Björk Björnsdóttir
spurði hvenær fyrsti samlestur væri
og svarið var sem fyrst. Sigríður
Geirsdóttir ræddi handritið og
kvikmyndina. Ákveðið var að hafa
fyrsta samlestur sunnudaginn 10. nóvember
kl. 16:00, 2. samlestur mánudaginn 11.
nóvember kl. 20:00 og 3. samlestur 13.
nóvember kl. 20:00 með þeim
fyrirvara að meirihluti þeirra sem
skráðir voru kæmust, annars
fundinn betri tími.
- Önnur mál:
- Guðríður Ólafsdóttir
nefndi að hægt væri að fá ,,Batnandi
mann” afhent eftir fundinn einnig að skrifa
sig á pöntunarlista um DVD/VHS
af ,,Kaffileikhúskvöldi”.
- Guðríður minnti félagsmenn á að láta
ritara stjórnar, Ásu Hildi Guðjónsdóttur
vita um breytta hagi eins og heimilisfang,
síma og eða tölvupóst
og minnir á ógreidd félagsgjöld.
- Hanna Margrét Kristleifsdóttir
kynnti bíókvöldin og viðburði í tengslum
við alþjóðadag fatlaðra
3. desember. Viðburðirnir verða í Kringlunni
helgina 24. og 25. nóvember. Það verður
fundur laugardaginn 17. nóvember. Nánar
auglýst síðar.
- Örn Sigurðsson sagði frá því að þau
4 sem voru á uppistandsnámskeiðinu
og voru í Margt smátt eru búin
að skrá sig 3. desember á alþjóðadag
fatlaðra í Þjóðmenningarhúsinu þar
sem hvatningarverðlaun verða veitt
og verða með uppistand. Það er
jafnvel fyrirhugað að fara til Akureyrar í sumar
með uppistand og Kvennahreyfingin hefur
beðið þau að koma fram á fundi
hjá þeim.
- Vilhjálmur Hjálmarsson lét
vita að ,,Pókók” diskurinn
væri í lagfæringu og ljósin
væru á leiðinni.
Fundi slitið kl. 20:54.
Fundarritari Hanna Margrét
Kristleifsdóttir.
|
Síðast uppfært 9. júní
2008 |