Félagsfundur nr. 2. var haldinn í Halaleikhópnum í Hátúni
12.
Fimmtudaginn 17 október 2002 og
hófst hann kl. 20.15
Það voru 15 félagsmenn sem sóttu
fundinn. Örn Sigurðsson varaformaður
setti fundinn, Edda Guðmundsdóttir var
fundarstjóri og Stefánía Björnsdóttir
var fundarritari.
Dagskrá fundarins er:
Lesa stjórnarskýrslu árið 2001.
- Lesa fundargerð árið 2001
- Kjósa í skemmtinefnd.
- Kjósa í fjáröflunarnefnd.
- Önnur mál.
1 . Stjórnarskýrsla
2001 var lesin af Stefaníu og var hún
samþykkt af fundinum.
2 . Fundargerð var lesin
af Árna Salómonssyni og var hún
samþykkt af fundaraðilum.
3 – 4. Það var
samþykkt af fundaraðilum að kjósa í skemmtinefnd
og fjáröflunarnefnd á næsta
fundi. Fundi sem verður haldinn þann
2. nóvember 2002 kl. 16.00 í Hátúni
12.
Önnur mál það var ákveðið að fara í Reykjadal
aðra helgina í janúar og vera
yfir eina nótt þeir sem vilja. Það á að kynna
leikritið á næsta félagsfundi
sem verður 2. nóvember 2002.
Stjórnin verður að taka að sér
að skoða þrifamálin.
Gugga og Sigga sjá um kaffið og ganga
frá eftir fundinn.
Félagsmenn komi saman í desember
og föndra og hafa gaman af.
Fundi var slitið kl. 21.30.
Fundarritari Stefánía