Fundur settur.
Ásdís Úlfarsdóttir
bauð fundarmenn velkomna og setti fundinn.
Uppástunga kom um Vilhjálm Hjálmarsson
sem fundarstjóra. Samþykkt samhljóða.
Fundarstjóri þakkaði traustið og
bar upp uppástungu um Önnu Guðrúnu
Sigurðardóttur sem ritara, samþykkt
samhljóða. Fundarstjóri las nú upp óformlega
dagskrá fundarins.
- Fundargerð síðasta
fundar lesin og borin upp til samþykktar.
Kristín Magnúsdóttir las
upp fundargerð síðasta félagsfundar.
Samþykkt samhljóða.
- Ármann Guðmundsson kynnir
leikrit vetrarins 2006-2007.
Ármann sagði frá því að leikritið muni
vera gamanleikrit. Fjallar um sjómann sem
verður fyrir óhappi í vinnunni
en rekja má slysið til hans sjálfs. Þá tekur
hann upp á því ráði
að verða öryrki en sér síðan
eftir því og vill komast til baka
til fyrra lífs/starfa.
Nú voru Vilhjálmur og Gunnar beðnir
um að leiklesa eitt atriði úr leikritinu.
Ármann kynnir fyrirhugað leiklistarnámskeið í október.
Markmiðið er að námskeiðið verði
til þess að fólk læri að gera
hluti fyndna sem ekki eru endilega fyndnir. Yfirskriftin
verður „Hvað er svona fyndið við það?”.
Fundarmenn voru beðnir um að skrá sig á blað ef
vilji væri fyrir því að taka þátt í námskeiðinu.
Verð er 1000 kr. fyrir skuldlausa félaga
og 3600 kr. fyrir þá sem skulda eða
eru utanfélags.
Kaffileikhús
María Jónsdóttir kynnti.
Hugmyndin er að búa til Kaffileikhús,t.d.
eftir leiklistarnámskeiðið og að eiga
stuttverk t.d. í tilefni af afmælinu árið 2007.
Afmælisnefndin
Helga Jónsdóttir kynnti og hvatti
fólk til að taka þátt í að undirbúa
afmælisárið árið 2007.
Skráningarblað í nefndina lá frammi á fundinum.
Haustfundur BÍL
Ása Hildur Guðjónsdóttir
kynnti haustfund BÍL sem haldinn verður
29. september til 1. október n.k. Fjórir
stjórnar meðlimir fara og einn sem er
ekki í stjórn.
Hugmynd kom fram frá Hjördísi
Vilhjálmsdóttir um að Halafélagar
myndu mæta og ekki segja neitt og mótmæla
slæmu aðgengi á þann hátt.
Fundarstjóri bar upp ályktun vegna
slæms aðgengis þar sem hátíðarkvöldverður
verður.
“Ályktun:
Félagsfundur í Halaleikhópnum
23. september 2006, beinir þeim tilmælum
til Leiklistarskóla Bandalags íslenskra
leikfélaga að námskeið á vegum
skólans verði ávallt haldin á stöðum,
sem eru aðgengilegir öllum. “
Ályktun var samþykkt samhljóða
og verður athent Stjórn Leiklistarskóla
BÍL. á málþingi um leiklistarskólann á Selfossi í tengslum
við haustfund BÍL:
Önnur mál
Ásdís Úlfarsdóttir
kynnti. Listi lá frammi til að fólk
gæti skráð sig sem vilja taka þátt í verkefninu.
Klifur
Kristín Magnúsdóttir hvatti
fundarmenn til að taka eintök af Klifri
og dreifa því sem víðast þar
sem landssambandið lætur Halaleikhópinn
hafa afnot af aðstöðu sinni endurgjaldslaust
og er það þakkarvert.
Jón Þór Ólafsson kynnti
að það ætti að vera til
verk sem búið var til árið 1992.
Hanna Margrét kynnti einnig að það væru
til 2 frumsamin verk hjá Unni Maríu
Sólmundardóttur.
Fundarstjóri hvatti stjórn félagsins
að safna saman þeim leikverkum sem vitað er
um að séu til.
Fundi var nú slitið kl. 18:15.
Fundarritari; AGS.