Haldinn í húsnæði
Halaleikhópsins
fimmtudaginn 11. September klukkan 20.
Mættir: 21 félagi
Dagskrá:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Kynning á nýráðnum
leikstjóra, Þresti Guðbjartssyni
3. Verkefni leikársins kynnt
4. Námskeið í Október
5. Önnur mál
Formaður býður fundarmenn velkomna
og setur fundinn.
- Kolbrún Stefánsdóttir
kosin fundarstjóri og tekur við fundarstjórn.
Sóley Björk Axels kosin fundarritari.
- Leikstjóri leikársins, Þröstur
Guðbjartsson, kynnir sig og fer yfir helstu
verkefni sem hann hefur fengist við á leikstjóraferli
sínum.
- Þröstur leikstjóri
kynnir verkið sem fyrirhugað er að setja
upp í vetur. Hann kallar það Shakespear – Karnival.
Hann gerir grein fyrir söguþræði
verksins ofl. Líflegar umræður.
- Ása skýrir frá því að ákveðið hafi
verið að halda leiklistarnámskeið áður
en æfingar byrja á leikverki vetrarins
og mun Þröstur kenna á því. Það mun
kosta kr. 3.000.- fyrir skuldlausa félaga
en kr. 5.000.- fyrir aðra. Þröstur
gerði síðan grein fyrir fyrirkomulagi
námskeiðsins í stuttu máli.
Listi settur fram svo áhugasamir geti
skráð sig.
- Önnur mál:
- Ása skýrir frá því að áhugi
sé hjá stjórn að fá Ágústu
Skúladóttur til að leikstýra
okkur á næsta leikári og þar
sem Ágústa er mikið bókuð fram í tímann
ber hún fram tillögu stjórnar
um að stjórn fái heimild
frá fundinum til að gera samning
við hana um að leikstýra hjá okkur
leikárið 2009 – 2010. Samþykkt
samhljóða.
- Einar Andrésson
stakk upp á að haldið yrði
Halapartý í október til
að hrista hópinn saman fyrir verkefni
vetrarins. Samþykkt og vísað til
stjórnar að ákveða nánari
dagsetningu.
Fundarstjóri kveður og formaður
slítur fundi kl.20:45
Fundarritari: Sóley Björk
Axelsdóttir.