banner

adalsida sagan leikverk stjorn log felagar tenglar Frettir

 

Fílamaðurinn

 

eftir Bernard Pomerance
Frumsýnt 27. feb. 2004
Leikstjóri Guðjón Sigvaldason

 
Vilhjálmur Jón Guðjónsson í hlutverki Fílamannsins á dauðastundu sinni
 

„Fílamaðurinn“ fjallar um þekkta persónu, John Merrick, sem uppi var á Englandi í lok nítjándu aldar. Hann var svo afskræmdur af ákveðnum beinasjúkdómi að hann gekk undir nafninu Fílamaðurinn. John kemst undir læknishendur og fjallar leikritið að mestu um samskipti hans og læknis hans dr. Frederic Treves eftir komu hans á Lundúnaspítala. Á spítalanum dvaldi hann síðustu æviárin. Meðan á dvöl hans þar stóð varð hann þekktur meðal heldra fólksins í London, en áður hafði hann verið hafður til sýnis á ýmsum markaðssýningum.

Leikhópurinn kýs í þessari uppfærslu sinni að snúa við gildunum, allir eru fatlaðir nema Fílamaðurinn, og fær áhorfandinn þannig aðra sýn á verkið en hefur verið í fyrri uppfærslum hérlendis. Að sýningu Halaleikhópsins koma að þessu sinni um 30 manns. Tónlist er ýmist frumsamin af Ragnari Gunnari Þórhallssyni og Einari Andréssyni eða byggð á þekktum stefum úr kvikmyndum.

  Vilhjálmur Guðjónsson og Stefanía B. Björnsdóttir í hlutverkum sínum
   
Vilhjálmur Guðjónsson og Stefanía B. Björnsdóttir í hlutverkum sínum
 
 

Molar um höfundinn og leikritið:

Það var í rauninni ekki fyrr en að Bandaríkjamaðurinn Bernard Pomerance fluttist til London að hann náði heimsfrægð í leikhúsheiminum. Þegar hann svo kom aftur til New York 1979 tóku landar hans á móti honum með viðhöfn.

Leikritið ,,Fílamaðurinn” gekk linnulaust fyrir fullum leikhúsum í hartnær þrjú ár. John Merrick (Fílamaðurinn), maðurinn með ,,fötlunina miklu”, snerti strengi í hjörtum allra. Kannski þó mest vegna þess að allir könnuðust að einhverju

Stefanía Björnsd., Pálína Benjamínsd., Örn Sigurðss., Jón Eiríkss., Vilhjálmur Guðjónss., Hanna M. Kristleifsd., Guðný Alda Einarsd. og Björk Guðmundsd. í hlutverkum sínum.
 
leyti við hann. Flest allir sáu sjálfan sig í honum!
     
Halaleikhópurinn hefur nú gert þá tilraun að að ,,snúa hlutverkum við” þannig að allar aðrar persónur leikritsins eiga við einhverja fötlun að stríða nema fílamaðurinn...
     
Persónur og leikendur:
 

John Merrick, Fílamaðurinn:

Vilhjálmur Guðjónsson

Frederick Treves, skurðlæknir og kennari:

Jón Eiríksson

Carr Gomm, stjórnarmaður Lundúnaspítala o.fl.

Örn Sigurðsson

Ross, umboðsmaður Fílamannsins:

Stefanía Björk Björnsdóttir

Frú Kendal, leikkona:

Sóley Björk Axelsdóttir

Urður ( örlaganorn ):

Sigríður Ósk Geirsdóttir

Verðandi ( örlaganorn ):

Björk Guðmundsdóttir

Skuld ( örlaganorn ):

Guðný Alda Einarsdóttir

Lestarstjóri o.fl.:

Margrét Edda Stefánsdóttir

Walsham How, biskup o.fl.:

Jóhannes Ingólfur Jónsson

Burðarþjónn á Lundúnaspítala:

Jón Freyr Finnsson

Hertogaynja o.fl. :

Hulda Magnúsdóttir

Alexandra prinsessa o.fl.:

Pálína Benjamínsdóttir

John lávarður o.fl.:

Gunnar Gunnarsson

Ungfrú Sandwich, yfirhjúkrunarkona o.fl.:

Hanna Margrét Kristleifsdóttir

 

Leikstjóri, hönnun leikmyndar og búninga:

Guðjón Sigvaldason

Leikmynd:

Einar Andrésson, Ólöf G. Helgadóttir, Heimir Einarsson, Stefanía B. Björnsdóttir, Pálína Benjamínsdóttir, Hinrik J. Magnússon, Bernharður Sturluson, Kristín R. Magnúsdóttir o.fl.

   

Búningar:

Bára Jónsdóttir, Jónína Ragnarsdóttir, Stefanía Björk Björnsdóttir, Kristín R. Magnúsdóttir, Ása Hildur Guðjónsdóttir o.fl.

Tónlist :

Flytjendur tónlistar: Hljómsveitin SJER á báti, Sigurður Einarsson, Jón Eiríksson, Einar Andrésson og Ragnar Gunnar Þórhallsson. Söngkona: Anna Sigríður Helgadóttir. Upptaka fór fram í Lúkarnum

   

Upptaka tónlistar:

Davíð Andrésson

Hönnun veggspjalds :

Samúel Ingi Þórarinsson

Leikskrá :

Fannar Örn Karlsson

Bakstur og kaffi á frumsýningu :

Sigurveig Buch, Jónína Ragnarsdóttir, Helga Bergmann

Leikmunir:

Stefanía Björk Björnsdóttir, Ása Hildur Guðjónsdóttir, Kristín R. Magnúsdóttir, Hanna M. Kristleifsdóttir o.fl.

Miðasala og sjoppa:

Arndís Hrund Guðmarsdóttir og Jósef Gunnar Gíslason

Hönnun lýsingar:

Vilhjálmur Hjálmarsson

Ljósamenn:

Árni Salomonsson og Kristinn Guðjónsson

Hljóðmenn:

Einar Andrésson og Ragnar Gunnar Þórhallson

Förðun:

Hanna Margrét Kristleifsdóttir

Aðstoð við förðun:

Jóninna Harpa Ingólfsdóttir

Sýningarstjóri og hvíslari á æfingum:

Ása Hildur Guðjónsdóttir

 

 

Móttökustjóri:

Kristinn G. Guðmundsson

 

Aðstoðarmenn:

Valerie Harris, Jóninna Harpa Ingólfsdóttir, Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir og Unnur María Sólmundardóttir.

Ljósmyndavinna:

Rósa Jóhannsdóttir

 
Guðný Alda Einarsd, Björk Guðmundsd. og Sigríður Ósk Geirsdóttir í hlutverkum sínum  
Guðný Alda Einarsd, Björk Guðmundsd. og Sigríður Ósk Geirsdóttir í hlutverkum sínum   Jón Freyr Finnsson, Hulda Magnúsd., Margrét E. Stefánsd., Jóhannes I. Jónss. og Sóley B. Axelsd. í hlutverkum sínum.
 

Um leikstjórann:

Guðjón Sigvaldason útskrifaðist frá Mountview Theatre School í Bretlandi 1987. Hann starfaði fyrstu árin jafnt sem leikari og leikstjóri, en hefur hin síðari ár nær eingöngu starfað sem leikstjóri, jafnframt því að skrifa en eftir hann hafa verið sýnd ýmis leikrit, auk þess að hann hefur gefið út þrjár ljóðabækur og skáldsöguna Ungfolahroka. Hann hefur aðallega starfað með áhugaleikfélögunum og sjálfstæðu leikhópunum, auk þess að stjórna götuleikhópum víðsvegar um landið. En sýningar hans þykja oft bera keim af götuleikforminu. Hann hefur sett á svið á fimmta tug leiksýninga, víðs vegar um landið, t.d. Djöflaeyjuna bæði á Hornafirði og Siglufirði, Ég er hættur farinn, ég er ekki með í svona asnalegu leikriti, Önnu Frank og Rocky Horror á Egilsstöðum, Stræti, Bugsy Malone, Hróa Hött, Bangsímon, Kardimommubæinn, Bróðir minn Ljónshjarta, Emil í Kattholti, Í Tívolí, Grease, Svartklædda Konan, og Oliver! svo eitthvað sé nefnt. Hans síðasta uppfærsla var einleikur um Stein Steinarr.

 
Halaleikhópurinn þakkar öllum, sem hafa lagt honum lið við að koma upp þessari sýningu. m.a.
 

Sjálfsbjörg lsf.

Sólvangur

Sjálfsbjörg fél.fatl.á höfuðb.sv.  

Össur hf

Sjálfsbjargarheimilið  

Menntamálaráðuneytið

Öryrkjabandalag Íslands   

Harpa/Sjöfn

Félagsmálaráðuneytið

Reykjalundur

Þjóðleikhúsið  

Delta

Gleraugnasmiðjan 

Helga Rún Pálsdóttir

Kristján Bragi Þorsteinsson      

Guðmundur A. Þorvarðarson

o.fl. o.fl., bæði fyrirtæki og einstaklingar.

A T H markaðslausnir ehf

 
Sérstakar þakkir til maka og nánustu aðstandenda fyrir þolinmæðina á tímabilinu.
 
Til baka á Á fjölum félagsins
Til baka á aðalsíðu Efst á síðu Póstur til Halaleikhópsins

Síðast uppfærð 1. maí 2008