Gaukshreiðrið
One Flew Over the Cuckoo's Nest
eftir
Dale Wasserman, byggt á skáldsögu
Ken Kesey (1962), í þýðingu
Sonju B. Jónsdóttur og leikstjórn
Guðjóns Sigvaldasonar.
Frumsýnt
9. feb. 2008 og sýndar 11 sýningar. Var svo sýnt á Stóra sviði Þjóðleikhússins
4. júní 2008 eftir að hafa unnið keppnina um Athyglisverðurstu
áhugaleiksýningu leikársins 2007 - 2008.
|
| |
| Um leikritið: |
| |
Gaukshreiðrið endurspeglar á óviðjafnanlegan
hátt þann uppreisnaranda sem ríkti í vestrænum
heimi á seinni helmingi sjöunda áratugar
síðustu aldar. Það gerist á ríkisreknu
geðsjúkrahúsi þar sem
einn vistmaður æsir sjúklinga á stofnuninni
með sér í uppreisn gegn því sem
hann telur vera miskunnarlaust harðstjórnarkerfi.
Kerfið bregst ókvæða við og
ekkert er látið ógert til
að brjóta uppreisnina á bak
aftur, hún fær vægast sagt óvæntan
og óhugnanlegan endi og verður upphafsmanni
hennar dýrkeypt.
Það fjallar
um eðli geðveikrahæla, stöðu
sjúklinganna innan þeirra og hvað felist
raunverulega í geðveiki. Kannski á sumt
við enn þann dag í dag. Í verkinu
er velt upp spurningunni hvort raunveruleg
andleg heilun fáist með því að húka
inni á geðveikrahæli fjarri
venjulegu lífi og láta kerfið ákveða
hvað komi sjúklingunum best.
Gaukshreiðrið er í senn ógnvekjandi,
grátbroslegt og sprenghlægilegt
og þetta samspil er fyrst og fremst ástæðan
fyrir hinum feikimiklu vinsældum þessa
heimsfræga verks.
|
|
 |
| Gunnar Gunnarsson,
Gunsó sem McMurphy |
| |
|
| |
Persónur og leikendur eru:
|
 |
Randle
P. McMurphy:
Gunnar Gunnarsson,
Gunsó
|
 |
Ratchet
hjúkrunarkona:
Sóley Björk Axelsdóttir
|
 |
Bromden höfðingi:
Pétur Orri Gíslason
|
 |
Flinn
hjúkrunarkona og Sandra:
Stefanía Björk Björnsdóttir
|
 |
Warren
sjúkraliði:
Gunnar Freyr Árnason
|
 |
Williams
sjúkraliði:
Guðmundur G. Hreiðarsson
|
 |
Dale
Harding :
Örn Sigurðsson
|
 |
Billy Bibbit:
Tobias Hausner
|
 |
Scanlon:
Kristinn Sveinn Axelsson
|
 |
Cheswick:
Arnar Ágúst Klemensson
|
 |
Ruckly:
Daníel Þórhallson
|
 |
Martini:
Jón Freyr Finnsson
|
 |
Fredericks:
Kristinn Guðjónsson
|
 |
Spivey læknir:
Gunnar Gunnarsson, Neddi
|
 |
Turkle næturvörður:
Guðný Alda Einarsdóttir |
 |
Candy Starr:
Elísa Ósk Halldórsdóttir |
 |
Nakamura
hjúkrunarkona:
Björk Guðmundsdóttir
|
 |
Ellis hjúkrunarkona:
Silja Kjartansdóttir
|
 |
Sefelt
hjúkrunarkona:
Telma Kjartansdóttir
|
|
|
| |
|
|
 |
|
|
| Gunnar Gunnarsson, Neddi,
Gunnar Gunnarson, Gunsó og Kristinn
S. Axelsson í hlutverkum
sínum |
|
Guðný Alda
Einarsdóttir, Elísa Ósk
Halldórssdóttir,
Gunnar Gunnarsson, Gunsó og Kristinn
S. Axelsson
í hlutverkum sínum |
| |
|
|
|
| Um leikstjórann: |
| |

Guðjón Sigvaldason |
| Guðjón
Sigvaldason útskrifaðist
frá Mountview Theatre School í Bretlandi
1987. Hann starfaði fyrstu árin
jafnt sem leikari og leikstjóri, en
hefur hin síðari ár aðallega
starfað sem leikstjóri, jafnframt
myndlist og skriftum en eftir hann liggja ýmis
leikrit og myndverkasýningar auk þriggja
ljóðabóka og skáldsögunnar
Ungfolahroka. Hann hefur
aðallega starfað með áhugaleikfélögunum
og sjálfstæðu leikhópunum,
auk þess að stjórna götuleikhópum
víðsvegar um landið. En sýningar
hans þykja oft bera keim af götuleikforminu.
Hann hefur
sett á svið á níunda
tug leiksýninga, víðs vegar
um landið, t.d. Djöflaeyjuna bæði á Hornafirði
og Siglufiði, Ég er hættur
farinn, ég er ekki með í svona
asnalegu leikriti, Önnu Frank og Rocky
Horror á Egilsstöðum, Stræti,
Bugsy Malone, Hróa Hött, Bangsímon,
Kardimommubæinn, Bróðir
minn Ljónshjarta, Emil í Kattholti, Í Tívolí,
Grease, Svartklædda konan, og Oliver!
svo eitthvað sé nefnt.
Hann stofnaði og rekur ásamt öðrum
atvinnuleikhús Austfirðinga „Frú Normu“ og
vann þar sýningarnar Nátthrafna
og barnaleikritið Bara í draumi,
sem hann samdi einnig. |
|
| |
Hér
hjá Halaleikhópnum hefur hann sett
upp Fílamanninn og Kirsuberjagarðinn
en Gaukshreiðrið er þriðja
leikritið sem hann vinnur með okkur. Auk þess
hefur hann verið með leiklistarnámskeið hjá okkur
2003 og 2004. |
| |
|
| |
| |
|
|
 |
|
|
| Sóley B. Axelsdóttir
og Gunnar Gunnarsson, Gunsó í hlutverkum
sínum |
|
Örn Sigurðsson
og Gunnar Gunnarsson, Gunsó í hlutverkum
sínum |
| |
|
|
|
Um
höfund sögunnar Ken Kesey:
|
|
Ken Kesey höfundur „Gaukshreiðursins“ fæddist árið 1935 í Bandaríkjunum.
Hann innritaðist í blaðamannadeild
háskólans í Oregon og útskrifaðist þaðan úr
ræðu- og samskiptatækni árið 1957. Árið 1958
fékk hann styrk á námskeið í skapandi
skrifum við Stanford háskóla,
sem hann sótti. Þar hóf
hann að skrifa handritið sem síðar
varð að bókinni „Gaukshreiðrinu“.
Á meðan hann stundaði nám í Stanford
gerðist hann tilraunadýr fyrir
CIA þar sem verið var að rannsaka áhrif
ofskynjunarlyfja, s.s. LSD, Meskalíns
og Kókaíns á hegðun
fólks og geðslag. Hann skrifaði
mikið um upplifun sína af vímunni,
greindi hana í smáatriðum,
og í rauninni urðu áhrifin
sem hann upplifði honum kveikja fyrstu
skáldsögu sinnar „Gaukshreiðrinu" (1962).
|
Innblásturinn fékk hann við að starfa á næturvöktum á geðsjúkrahúsi. Þar
eyddi hann tímanum oft í að spjalla
við sjúklingana, á stundum
undir áhrifum ofskynjunarlyfja. Hann
setti fram þá skoðun sína
að sjúklingarnir væru í raun
ekki geðveikir, það væri
samfélagið sem hefði hafnað þeim
vegna þess að þeir gætu
ekki fylgt viðteknum hugmyndum þess
um það hvernig fólk ætti
að haga sér.
„Gaukshreiðrið” sló rækilega í gegn.
Dale Wasserman skrifaði síðar
leikgerð upp úr skáldsögunni
sem einnig sló í gegn. Þá leikstýrði
Milos Forman kvikmynd byggða á sömu
bók árið 1975, þar
sem Jack Nicholson lék aðalhlutverkið og
hlaut hún margvísleg verðlaun. Auk „Gaukshreiðursins" skrifaði
Ken fjölmargar greinar, bækur og
smásögur.
Hans síðasta birta verk, var grein
sem hann ritaði í tímaritið The
Rolling Stone þar sem hann hvatti til
friðar eftir árásirnar á Tvíburaturnana þann
ellefta september árið 2001.
Hann lést úr
lifrarkrabbameini síðar sama ár.
|
| |
|
|
 |
|
 |
| |
|
|
| Kristinn S. Axelsson,
Daníel Þórhallsson, Örn
Sigurðsson og Gunnar
Gunnarsson , Gunsó og í hlutverkum
sínum |
|
Gunnar Gunnarsson, Gunsó og
Gunnar Freyr Árnason í hlutverkum
sínum |
| |
|
|
|
|
Um
höfund leikgerðarinnar Dale Wasserman: |
|
| |
Dale
Wasserman höfundur leikgerðarinnar
fæddist árið 1917 í Bandaríkjunum.
Lauk formlegri skólagöngu eftir
aðeins eitt ár í menntaskóla.
Frá nítján ára
aldri vann hann hin margvíslegustu
störf innan leikhússins, og byrjaði
eftir það feril sinn sem sjálflærður
ljósahönnuður, leikstjóri
og framleiðandi. Í miðri uppfærslu
söngleiks á Broadway hætti
hann, fullviss þess að geta varla
skrifað verri verk en bullið sem
hann var að leikstýra, annað hvert
hlutverk biði aðeins upp á túlkun
en að starf höfundar væri
sköpun.
Hann ákvað því að gerast
rithöfundur, sem slíkur hefur
hann náð miklum árangri,
hefur skrifað yfir þrjátíu „sjónvarpsdrama“ sem
gerðu hann að einum best þekkta
rithöfundi „gullára“ bandaríska
sjónvarpsins. |
|
Tvær leikgerðir hans eru þó þekktastar, „Man
of La Mancha” (byggt á sögu
Cervantes um Don Kíkóta) og „Gaukshreiðrið”,
en þær leikgerðir setja hann í hóp
með vinsælustu leikritahöfundum
um heim allan. „Man of La Manca” var
sýnt stanslaust í fimm ár á Broadway
og var þýtt á yfir 30
tungumál. „Gaukshreiðrið” gekk
t.d. í sex ár í San
Fransisco og hefur verið sýnt
um allan heim, m.a. í Bretlandi, Frakklandi,
Svíþjóð, Japan og á Íslandi.
Sögupersónur Wasserman eru
líkar honum sjálfum, drukknir
uppreisnarseggir, æðislega sjálfstæðir
kjánar, skáld, brjálæðingar
og utangarðsmenn - félagsleg úrhrök
sem bjóða yfirvöldum birginn,
nauðugar hetjur (stundum andhetjur) sem
kallaðar eru til að færa miklar
fórnir til að vernda og varðveita þeirra
eigið frelsi eða annarra.
Leikgerðin
að „Gaukshreiðrinu” er
frá árinu 1963.
Dale Wasserman skrifaði auk þessa
fjöldann allan af leikritum, söngleikjum,
kvikmyndahandritum, bókum og hefur
unnið til margvíslegra verðlauna
fyrir verk sín.
|
| |
|
|
|
Aðrir
sem koma að sýningunni á einn
eða annan hátt : |

|
Leikstjóri,
hönnuður leikmyndar og búninga:
Guðjón Sigvaldason |
 |
Aðstoðarleikstjóri, sýningarstjóri,
hvíslari á æfingatímabili, umsjón með heimasíðu,
miðapantanir, búningar o.fl.:
Ása Hildur Guðjónsdóttir |
 |
Ljósahönnun,
o.fl.:
Vilhjálmur Hjálmarsson |
 |
Ljósahönnun,
ljósamaður, aðstoð við gerð leikmyndar
o.fl.:
Magnús Addi Ólafsson |
 |
Tónlist
- áhrifahljóð:
Svavar Knútur |
 |
Tónlist
- barnavísa:
Pétur S. Jónsson |
 |
Framkvæmdastjóri,
leikmunir, aðstoð við gerð leikmyndar
o.fl.:
Kristín R. Magnúsdóttir |
 |
Leikmyndasmiður:
Sigurður Pálsson |
 |
Leikmyndasmiður:
Einar Jörgensen |
 |
Leikmyndasmiður,
ræstingar o.fl.:
Einar Andrésson |
 |
Stálsmíði:
Gunnar Gunnarsson, Gunsó |
 |
Fjölmiðlafulltrúi:
Guðríður Ólafsdóttir |
 |
Umsjón leikskrár:
Ásdís Úlfarsdóttir |
 |
Ljósmyndari,
hönnun
plakats og leikskrár:
Andri Valgeirsson |
 |
Förðun,
Miðasölustjóri, aðstoð við leikmynd
o.fl.:
Hanna Margrét Kristleifsdóttir |
 |
Umsjón
með
gerð leikmyndar, tæknimaður o.fl.:
Kristinn Guðjónsson |
 |
Ljósmyndari:
Höskuldur Þ. Höskuldsson |
 |
Hljóðmaður
og ljósmyndari
:
Árni Salomonsson |
 |
Hljóðmaður:
Kristinn Þ. Sigurjónsson |
 |
Aðstoð við gerð leikmyndar:
Ingimar Atli Arnarson |
 |
Aðstoð við
gerð leikmyndar,
búningar, kaffiumsjón o.fl.:
Stefanía Björk Björnsdóttir |
 |
Aðstoð við gerð leikmyndar:
Arnar Ágúst Klemensson |
 |
Aðstoð við gerð leikmyndar:
Björn Björnsson, Póló |
 |
Aðstoð við gerð leikmyndar:
Bjarni Magnússon |
 |
Aðstoð við gerð leikmyndar
o.fl.:
Elísa Ósk Halldórsdóttir
|
 |
Aðstoð við gerð leikmyndar
o.fl.:
Tobias Hausner |
 |
Aðstoð við gerð leikmyndar
o.fl.:
Daníel Þórhallsson |
 |
Saumakona,
kokkur og miðasala:
Bára Jónsdóttir |
 |
Söngur barnavísu:
Sigríður Ósk Sigurrósardóttir |
 |
Söngur barnavísu:
Tómas Sigurrósarson |
 |
Söngur barnavísu:
Matthías
Másson |
 |
Söngur barnavísu:
Þorbjörg Erna Mímisdóttir |
 |
Hár
og aðstoð við förðun o.fl.:
Guðbjörg K. Sigurðardóttir |
 |
Aðstoð við leikmyndasmíði
Friðfinnur Árni Kjærnested |
 |
Móttaka á sýningum:
Kristinn Guðmundsson |
 |
Miðasala og
sjoppa:
Anna Guðrún Sigurðardóttir |
 |
Móttaka á
frumsýningu:
Gunnlaugur Ingimarsson |
 |
Miðasala
og sjoppa:
Þröstur Steinþórsson |
|
| |
| |
|
|
 |
Ásdís Úlfarsdóttir
formaður |
| |
|
Nú er Halaleikhópurinn á sextánda
aldursári og dafnar vel. Hef ég
verið formaður í á annað ár
og margt hefur á daga hópsins
drifið síðan ég tók
embættið að mér. Sýning
síðasta leikárs, Batnandi
maður eftir Ármann Guðmundsson
sem frumsýnd var 24. febrúar
2007, gekk prýðisvel og fékk ágæta
aðsókn. Í framhaldi af
sýningunni hófst síðan
undirbúningur fyrir 15 ára
afmæli Halaleikhópsins, en hann
var stofnaður 27. september 1992. Afmælisnefnd
var sett á laggirnar og kom hún ásamt
stjórn og félögum með ýmsar
hugmyndir um hvað gera ætti í tilefni
afmælisins.
Ákveðið var m.a. að gera þrjá forvígismenn
leikhópsins að heiðursfélögum
hans, þá Guðmund Magnússon,
Sigurð Björnsson heitinn og Ómar
Braga Walderhaug.
|
Halda uppistandsnámskeið og
var Ágústa Skúladóttir
fengin í það verkefni sem
heppnaðist vel. Þá var ákveðið að fá fyrrum
leikstjóra til að vinna með okkur
að afmælisdagskrá og síðast
en ekki síst að halda veglega afmælisveislu. Í tilefni
af afmælinu ákvað stjórn
Halaleikhópsins að láta gamlan
draum rætast um að gefa sjálfum
sér nýtt tölvustýrt
ljósaborð, breyta og ljósabúnað í afmælisgjöf.
Nýja ljósaborðið er aðgengilegt
og gerir öllum kleift, fötluðum
sem ófötluðum að stýra því.
Einnig stendur til að setja þannig
kerfi upp í loftið, að lítið þurfi
að færa ljósin til heldur
aðeins að snúa þeim og
forrita tölvuborðið. Við þessar
breytingar ættu fleiri félagsmenn
að geta unnið stærri hluta af
tæknivinnunni við uppsetningar verka
sjálfir.
Á vordögum 2007
var ákveðið að setja upp
Gaukshreiðrið eftir Ken Kesey í leikgerð Dale
Wasserman. Guðjón Sigvaldason
leikstjóri var fenginn til að leikstýra
verkinu en hann er hópnum að góðu
kunnur eftir uppsetningar á Fílamanninum árið 2004
og Kirsuberjagarðinum árið 2005. Æfingar á Gaukshreiðrinu
hófust í nóvember 2007
og verkinu hefur undið vel fram. Að verkinu
koma um tuttugu leikarar auk allra annarra
sem leggja hönd á plóg.
Uppsetning á leikverki sem þessu
krefst mikillar vinnu og skipulagningar þar
sem margar hendur vinna saman. Ánægjulegt
er að geta þess að hópurinn
fékk úthlutað styrk frá Félagsmálaráðuneytinu í tengslum
við Evrópuár jafnra tækifæra
vegna uppsetningar á Gaukshreiðrinu.
Það er von mín
að leikarar sem og aðrir sem hafa
komið að uppsetningu þessari
eigi góðar minningar frá æfingatímabilinu
og hugsi af hlýhug til þess
og Halaleikhópsins um ókomin ár. Ég
vil þakka öllum þeim sem
komið hafa að verkefnum og uppsetningum
hópsins undanfarin tvö leikár
fyrir gott og gjöfult samstarf. Ég
er stolt af veru minni í hópnum
og því sem ég hef áorkað á hans
vegum í gegnum tíðina.
Ásdís Úlfarsdóttir,
formaður |
| |
|
|
| |
 |
|
Myndirnar úr leikritinu eru teknar
á æfingu af Höskuldi Höskuldssyni |
| |
|
|
| Sóley B. Axelsdóttir,
Jón Freyr Finnsson og Gunnar Gunnarsson,
Gunsó í hlutverkum sínum |
|
|
Umfjöllun á
Vísir.is 10. feb. 2008
|
Umsögn áhorfenda:
„Þar þótti
mér takast einkar vel til, leiktilþrif
með ágætum, framsögn öll
jafn góð, leikið af lífi
og sál, hin ýmsu tilbrigði sjúkdómsins
dregin í dagsljós fram” Helgi
Seljan. Velvakandi,
Morgunblaðinu 27. feb. 2008
„Þið toppið ykkur
alltaf á hverju ári" Halldóra
Malin Pétursdóttir |
|
|
|
Aðalbjörg Gunnarsdóttir:
Mér finnst þetta frábært
verk og vel leikið, leikmyndin æðisleg
og bara allt svo metnaðarfullt! Meira
hér |
|
Halaleikhópurinn þakkar öllum,
sem hafa lagt honum lið við að koma upp þessari
sýningu.
Sérstakar þakkir til maka og nánustu aðstandenda fyrir þolinmæðina á tímabilinu. |
|
Þakkir:
Sérstakar þakkir fær
Jói í Vagnasmiðjunni
vegna járnsmíðar, Auður Birgisdóttir
vegna söngæfinga barnanna, foreldrar
barnanna fyrir lánið á þeim,
Halldór Axelsson og Nói Steinn Einarsson
fyrir stjórn upptöku, Ryan
Parteka fyrir aðstoð við hljóðforrit, Sólvangur,
Jón Eiríksson, Þröstur
Steinþórsson og Oddný I. Fortesque |
| |
| Sýningar
urðu 11. Síðasta
sýning í Halanum var 15. mars 2008.
Sýningin vann keppnina um athyglisverðustu áhugaleiksýningu
ársins 2008 og sýndi fyrir fullum sal á Stóra
sviði Þjóðleikhússins
miðvikudaginn 4. júní
2008 kl. 20.00.
Umsögn dómnefndar má sjá HÉR
|
|
|
| |
| |
Halaleikhópurinn,
Hátúni 12, 105 Reykjavík,
sími 552-9188, kt. 421192-2279
|
|

Athyglisverðasta áhugaleiksýning
leikársins 2007 - 2008




Halaleikhópurinn er aðili
að Bandalagi íslenskra
leikfélaga

Evrópuár jafnra tækifæra
er styrktaraðili að uppsetningunni
Styrktaraðilar:
Sjálfsbjörg
lsf.
Sjálfsbjörg
félag fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu
Þjónustumiðstöð Sjálfsbjargarheimilisins
Akkur
Félagsmálaráðuneytið
Bandalag Íslenskra
leikfélaga
Reykjavíkurborg
Fjársýsla
ríkisins
Pokasjóður
Slippfélagið
Jói í Vagnasmiðjunni
Sólvangur
Styrktarlínur:
D H L Hraðflutningar
hf. Efling stéttarfélag
Eignamiðlunin
ehf.
Endurvinnslan
hf.
Félagsbústaðir
hf.
Fönix ehf.
Guðmundur Arason
ehf. Smíðajárn
Knattspyrnusamband Íslands
Landssamtökin Þroskahjálp
Laugarneskirkja
Móðir
Náttúra ehf.
Nói-Síríus hf.
Plúsmarkaðurinn
Hátúni 10-B
Rarik ohf.
Rolf Johansen & Co
ehf.
Saxhóll ehf.
SÍBS
Suzuki-bílar hf.
Tryggingastofnun ríkisins
Umslag ehf.
VR
Verðbréfaskráning Íslands
hf. Vinnumálastofnun
Öryggismiðstöð
Íslands
hf.
Félagsþjónusta Kópavogs
Íslandsspil
sf.
Garðabær
Stoðtækni
ehf.
Fasteignasala Mosfellsbæjar
ehf.
|