banner

adalsida sagan leikverk stjorn log felagar tenglar Frettir

2. feb. 2011

Góðverkin kalla!
eftir Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason.
Leikstjórar Oddur Bjarni Þorkelsson og Margrét Sverrisdóttir

Frumsýnt 4. feb. 2011

 

Góðverkin kalla! er gamanleikrit sem gerist á Gjaldeyri við Ystunöf þar sem lífið snýst um góðverk. Allir sem ekki hafa tapað glórunni, lifa fyrir starfsemi góðgerðafélaga sem eru mörg á Gjaldeyri við Ystunöf. Segja má frá því að ný hjúkrunarkona kemur til bæjarins, og er tekið opnum örmum af ýmsum íbúum sveitarfélagsins. Sjúkrahúsið á afmæli og það þarf að finna veglega gjöf handa því, a.m.k. veglegri en það sem hin félögin gefa.

 
Bína er ekki alltaf frýnileg á svipinn
Ný hjúkka komin í bæinn
Formennirnir fara í hár saman
Drífa og Nonni hefill
 

Persónur og leikendur eru:


Ólöf I. Davíðsdóttir

Drífa, formaður kvenfélagsins Sverðliljurar:

Ólöf Ingibjörg Davíðsdóttir

Daníel Þórhallsson

Lúðvík, maður Drífu, formaður Lóðarís:

Daníel Þórhallsson

Gunnar Gunnarsson, Gunsó

Jónas, formaður Dívans:

Gunnar Gunnarsson, Gunsó

Dagbjört, kvenfélagskona og eiginkona Jónasar:

Hanna Margrét Kristleifsdóttir

Sóley Björk Björnsdóttir

Bína, móðir Drífu og Jökuls Heiðars:

Sóley Björk Axelsdóttir

Kristinn Sveinn Axelsson

Björn, héraðslæknir:

Kristinn Sveinn Axelsson

Árni Salomonsson

Jökull Heiðar, bróðir Drífu:

Árni Salomonsson

Úlfhildur Þórarinsdóttir

Ásta, ný hjúkrunarkona:

Úlfhildur Jóna Þórarinsdóttir

Nonni hefill:

Gunnar Freyr Árnason

Kolbeinn Jes Vilmundarson

Skátakórinn, sölumaður og blaðburðardrengur:

Kolbeinn Jes Vilmundarson

Jón Freyr Finnsson

Hjálmar, skátakórinn:

Jón Freyr Finnsson

Silja Kjartansdóttir

Skátakórinn, r ækjusölukona:

Silja Kjartansdóttir

Skátakórinn:

Stefanía Björk Björnsdóttir

Telma Kjartansdóttir

Skátakórinn, bókasölukona:

Telma Kjartansdóttir

 

Leikstýrin
Margrét Sverrisdóttir og Oddur Bjarni Þorkelsson

Þau Oddur Bjarni og Margrét eru bæði vel menntuð á sviði leiklistarinnar en þau lærðu í Bretlandi. Hún sem leikkona og hann sem leikstjóri.

Þau hafa meðal annars starfað með leikhópnum  Kláusi og leikstýrt saman viða um landið sem og leikið. Upp á síðkastið hefur Margrét til dæmis  leikið í Heilsugæslunni með Kómedíuleikhúshópnum. Einnig hefur hún farið um víðan völl með  Bólu – Hjálmar en sú sýning hlaut Grímu – verðlaunin.

Oddur Bjarni hefur hinsvegar bæði leikstýrt og aðstoðarleikstýrt  í Borgarleikhúsinu og Þjóðleikhúsinu. Hann hefur einnig verið ötull í starfi áhugaleikhópa og sett upp á þriðja tug sýninga.

     

Höfundar

Það voru stressaðir þremenningar sem settust niður sumarið 1993 til að skrifa leikrit að beiðni Leikfélags Akureyrar. Ekki síst vegna þess að þeir höfðu nú mest lítið skrifað leikrit áður. Tóku þátt í því tveimur árum áður að skrifa revíuna Fermingarbarnamótið fyrir Hugleik, ætluðu reyndar bara að semja tónlist og söngtexta en leiddust inn í að setja saman leiktexta líka. Og árið eftir settust þeir niður með einni Hugleiksmaddömmunni og skrifuðu sitt fyrsta "alvöru" leikrit. 
Alvara hefur samt aldrei hentað okkur vel sem viðfangsefni. Þannig að þegar Leikfélag Akureyrar bað okkur að skrifa skemmtunarleik í kjölfar velgengni Stútungasögu og Fermingarbarnamótsins þá var einboðið að skrifa um þann skrípaleik sem félög á borð við Lions og Rotary og Kiwanis og JC og það alltsaman er. Já og smábæjarmóralinn.

En þessi skrítnu litlu frímúrarafélög eru ekki bara skrípó. Þau bæta nefnilega heiminn. Beina orku fólks í jákvæðan farveg. Eins er með leikfélögin sem spandera ómældri orku í að búa til sýningar til að gleðja fólk. Gera heiminn betri, litríkari, skrítnari og áhugaverðari. Þannig að ég segi: Húrra fyrir Halanum, leikstjórunum og okkur höfundunum!

Þorgeir Tryggvason

     
Jökull Heiðar er skrítin skrúfa

Aðrir sem koma að sýningunni á einn eða annan hátt nú þegar:

Stefanía Björk Björnsdóttir

Aðstoðarleikstjóri:

Stefanía Björk Björnsdóttir

Framkvæmdastjóri, búningar og ritstjóri leikskrár:

Ása Hildur Guðjónsdóttir

Vilhjálmur Hjálmarsson

Ljósahönnun

Vilhjálmur Hjálmarsson

Sigvaldi Heiðarsson

Ljósamaður:

Sigvaldi Heiðarsson

Einar Andrésson

Leikmyndasmíði ofl.:

Einar Andrésson

vantar mynd

Förðun:

Guðríður Ólafsdóttir

vantar mynd

Fjölmiðlafulltrúi, ljósmyndari o.fl.:

Höskuldur Höskuldsson

Friederike Andrea Hesselmann

Kynningarmál, leikmyndarmálari ofl.:

Friederike Andrea Hesselmann

Hljóðmaður ofl.:

Þröstur Jónsson

vantar mynd

Leikmyndasmiður:

Þröstur Steinþórsson

Örn Sigurðsson

Hvíslari á æfingatímabilinu:

Örn Sigurðsson

Miðasölustjóri:

Kristín M. Bjarnadóttir

 

Persónulýsingar úr handritinu:

Dagbjört: Miðaldra heimavinnandi húsmóðir og kvenfélagskona. Jákvæð, góðlynd, hreinlynd, bjartsýn, réttsýn, útsýn og úrval annara kvenna.

Jónas: Maður hennar. Geðstirður besservisser og pípusvælir. Fyrrverandi barnakennari og formaður Dívansklúbbsins. Ívið eldri en frúin.

Drífa: Nágranni þeirra hjóna. Formaður kvenfélagsins Sverðliljurnar. Dugnaðarforkur með driffjaðrir á öllum. Kaldhæðin og hörð í horn að taka.

Lúðvík: Maður hennar. Formaður Lóðarísklúbbsins. Löglærður leiðindapúki með Dale-Carnegie og co. á hreinu. Óttarlega...æi já!

Jökull Heiðar: Bróðir Drífu. Sparisjóðsstjóri. Klofinn persónleiki. Ískaldur, frjálshygginn markaðs- og maurapúki að atvinnu en gjafmilt og hjálpsamt góðmenni með blæðandi hjarta í frístundum.

Ásta: Nýaðflutt hjúkrunarkona. Áhugamaður um íslenska smábæinn.

Bína: Móðir Jökuls og Drífu. Hraðlygin kellingarálft, viðsjálsgripur.

Björn: Héraðslæknir, góðgjarn og trúgjarn. Hvers manns hugljúfi.

Nonni: "Just a gigolo" Nei, bara grín. Smiður og áhyggjulaust kvennagull. Félagi í Dívans.

Skátakórinn þar kennir ýmissa grasa :-)

Gagnrýni um verkið birtist á leiklistarvefnum sjá HÉR

Sérstakar þakkir fá:

Sjálfsbjörg lsf. Sjálfsbjargarheimilið, Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu, Leikfélagið Hugleikur, Þorgeir Tryggvason, Jón Gunnar Axelsson, Bára Jónsdóttir, Þröstur Jónsson, Guðjón Sigvaldason, Sigrún Ósk Arnardóttir, Jens Pétur Kjartansson, Svavar Sigurðsson, Davíð Andrésson, Fjarðarkaup, Halldóra og Kristín R. Magnúsdóttir.

Einnig fá makar og nánustu aðstandendendur sérstakar þakkir fyrir þolinmæðina á tímabilinu.

Sýningar urðu 14 sú síðasta 25. mars 2011

Styrktaraðilar:  
     
  Sjálfsbjörg
Öryrkjabandalag Íslands
Reykjavíkurborg
 

 

 

Halaleikhópurinn, Hátúni 12, 105 Reykjavík, sími 897-5007, kt. 421192-2279 info@halaleikhopurinn.is 

 

 

 

 

Efst á síðu

 

 

Síðast uppfært 27. mars 2011