banner

adalsida sagan leikverk stjorn log felagar tenglar Frettir

16. apríl 2012

Aðalfundur Halaleikhópsins 2012
verður haldinn 19. maí nk.

Dagskrá aðalfundar:

1.              Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2.              Inntaka nýrra félaga.
3.              Skýrsla stjórnar.
4.              Afgreiddir endurskoðaðir reikningar félagsins.
5.              Afgreiðsla tillagna sem borist hafa fundinum, svo sem lagabreytingar.
6.              Starfsemi næsta leikárs.
7.              Kosning stjórnar, varastjórnar, tveir skoðunarmenn reikninga.
8.              Önnur mál

Í ár þarf að kjósa formann - Hanna Margrét gefur ekki kost á sér áfram, ritara Ása Hildur Guðjónsdóttir gefur ekki kost á sér áfram. Meðstjórnandi og einn í vara stjórn Stefanía Björnsdóttir gefur kost á sér í það embætti. Hægt er að gefa kost á sér á fundinum en gott er að hafa samband við stjórn og láta vita af fyrirhuguðum frambjóðendum.

Á félagsfundi 22. mars sl. voru teknar ýmsar skemmtilegar ákvarðanir um næstu skref hjá leikhópnum.

Stofnuð var ljósmyndanefnd sem undirbýr ljósmyndasýningu í tengslum við 20 ára afmæli Halaleikhópsins. Í henni eru Sóley B. Axelsdóttir, Stefanía B. Björnsdóttir, Örn Sigurðsson og Einar Andrésson.

Bíónefnd var formlega mönnuð, hún ætlar að sjá um bíókvöld í Halanum. Hana skipa Gunnar Gunnarsson, Örn Sigurðsson, Stefanía B. Björnsdóttir, Árni Salomonsson og Einar Andrésson.

Hópur mannaður sem ætlar að þróa áfram hugmynd um miniráðstefnu með þankaroki og SVÓT greiningu um stöðu Halaleikhópsins og leita nýrra leiða í starfinu. Í hópnum eru Árni Salomonsson, Þröstur Jónsson og Kristínn S. Axelsson.

Einnig hópur sem ætlar að setja eitthvað skemmtilegt á svið með vorinu. Í þeim hóp eru Einar Andrésson, Árni Salomonson og Silja Kjartansdóttir. Þau ætla svo að lóðsa fleiri inn með sér.

Í sumar ætla Guðríður Ólafsdóttir og Kristinn S. Axelsson að bregða á leik í Krika og jafnvel víða.

Óskað er eftir fólki til að taka að sér að halda utan um Krikadaga í sumar og helst hafa þá þrjá.

Upp komu hugmyndir hvernig ætti að leita að verki fyrir næsta leikár og leikstjórum og er stjórn búin að koma þeirri framkvæmd í verk og niðurstaða í því fæst í júní.

Þannig að óhætt er að segja að ýmislegt er í bígerð hjá Halaleikhópnum.

 

   
Styrktaraðilar:  
     
 
Sjálfsbjörg
Öryrkjabandalag Íslands
 
Selecta
Reykjavíkurborg

 

Halaleikhópurinn, Hátúni 12, 105 Reykjavík, sími 897-5007, kt. 421192-2279 info@halaleikhopurinn.is 

 

Hassið hennar mömmu :

Plakatið

Halaleikhópurinn er með leikhús í
Hátúni 12
sjá kort hér

Gjafabréf

Halaleikhópurinn hefur látið útbúa gjafabréf sem tilvalin eru til jólagjafa og við öll tækifæri. Hægt er að fá gjafabréf fyrir einn eða tvo, eða eftir nánari óskum.

Bandalag íslenskra leikfélaga

Halaleikhópurinn er aðili að Bandalagi íslenskra leikfélaga

Hugmyndabanki vegna 20 ára afmælis Halaleikhópsins

Kærleikskúlan

Halaleikhópurinn er handhafi Kærleikskúlunnar 2008

Þjóðleikhúsið


Skipurit Halaleikhópsins

Efst á síðu

 

 
   

Síðast uppfært 16. apríl 2012