banner

adalsida sagan leikverk stjorn log felagar tenglar Frettir
22. des 2011

 

29. okt. 2011
Fyrsti samlestur á Hassið hennar mömmu eftir Dario Fo

Undirskrift samninga við leikstjórana

  Þriðjudaginn 1. nóv. nk. kl. 20.00 verður hafist handa við að leiklesa Hassið hennar mömmu eftir Dario Fo. Leikstjórar eru Margrét Sverrisdóttir og Oddur Bjarni Þorkelsson.

Hassið hennar mömmu var frumsýnt hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1982 í Iðnó og síðan flutt í Austurbæjarbíó og sýnt þar á miðnætursýningum og gekk þar að ýmsum hugstola eins og greint var fá í Vísi 3. jan. 1983. Þetta er farsi, afi og mamma Luigi eru farin að rækta og reykja hass og hann sér að það er eitthvað undarlegt á seiði hjá þeim gömlu. Mikill eltingarleikur hefst þar sem inní blandast prestur, eiturlyfjaeftirlitið, mafían, ung stúlka ofl. ofl.

Margrét Sverrisdóttir, Hanna Margrét Kristleifsdóttir og Oddur Bjarni Þorkelsson skrifa undir leikstjórasamninginn.

Allir Halar eru hvattir til að koma þetta kvöld og fræðast um verkefnið og endilega takið með ykkur gesti, nýjir félagar eru alltaf velkomnir.

Þegar setja á upp leikrit í fullri lengd þarf mikinn mannskap á hinu ýmsu pósta leikfélagsins. Við erum komin með tvo frábæra leikstjóra sem ætla að sameinast um leikstýra okkur. Nú vantar leikara, framkvæmdastjóra, fjölmiðlafulltrúa, ljósamenn, hljóðmenn og fólk til að sinna hinum ýmsu verkum eins og förðun, búningar, hárgreiðslu, kaffiumsjón, sviðsmenn, leikmunaverði, ljósmyndara, upptökufólk, leikmyndahönnuði, smiði, málara, tónlistarmenn, hvíslara, miðasölustjóra, miðasölufólk, leikskrárstjóra, einhvern til að brjóta um leikskrána, hanna plakat og kynningarefni, einhverja til að taka að sér þrif, aðstoðarfólk við hin ýmsu verk.

Upptalningin gæti verið endalaus enda eru handtökin við að þetta ansi mörg og því mikilvægt að allir sem vettlingi geti valdið komi að verkefninu. Launin eru svo tóm gleði og ánægja við að vinna saman að skemmtilegu verkefni ekki veitir af á þessum tímum. Við ætlum sem sagt að segja skammdeginu og kreppunni stríð á hendur og hefja vinnusaman vetur í Halanum, fullan af gleði.

Ef þú vilt taka þátt en kemst ekki þá hafðu samband við stjórn og láttu vita af þér. Allir eru velkomnir.

 

21. okt. 2011
Haustflensa_augl
Halaleikhópurinn verður með stuttverkadagskrá 21. og 23. okt. nk.


sýnd verða 7 stuttverk:
5 þættir úr Heilsugæslunni eftir Lýð Árnason, í leikstjórn Margrétar Sverrisdóttur og Odds Bjarna Þorkelssonar. Snyrting eftir Nínu Björk Jónsdóttur í leikstjórn Gunnars Gunnarssonar, Gunsó og Þanþol eftir Huldu Hákonardóttur líka í leikstjórn Gunsó.

Halabandið flytur tónlist milli atriða.

Sýnt verður föstudaginn 21. okt. kl. 20.00 og sunnudaginn 23. okt. kl. 17.00.
í Halanum, Hátúni 12.

UPPSELT

Nánari upplýsingar um dagskrána, leikara ofl. er að finna HÉR

   
Styrktaraðilar:  
     
  Sjálfsbjörg
Öryrkjabandalag Íslands
Reykjavíkurborg
 
ALCOA
Selecta
Akkur
 
     

 

22. sept. 2011

Leikstjórar ráðnir - Hassið hennar mömmu

Margrét Sverrisdóttir leikstjóri, Hanna Margrét Kristleifsdóttir formaður og Oddur Bjarni Þorkelsson leikstjóri takast í hendur eftir að undirskriftum var lokið.
 

Á félagsfundi 17. sept. sl. var skrifað undir leikstjórasamninga við Margréti Sverrisdóttur og Odd Bjarna Þorkelsson. Við réðum þau til að leikstýra, uppfæra og staðfæra leikritinu Hassið hennar mömmu eftir Dario Fo. Æfingar munu hefjast í nóvember og stefnt að frumsýningu kringum mánaðarmótin jan. / feb. 2012.

Hassið hennar mömmu var frumsýnt hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1982 í Iðnó og síðan flutt í Austurbæjarbíó og sýnt þar á miðnætursýningum og gekk þar að ýmsum hugstola eins og greint var fá í Vísi 3. jan. 1983. Þetta er farsi, afi og mamma Luigi eru farin að rækta og reykja hass og hann sér að það er eitthvað undarlegt á seiði hjá þeim gömlu. Mikill eltingarleikur hefst þar sem inní blandast prestur, eiturlyfjaeftirlitið, mafían, ung stúlka ofl. ofl.

11. sept. 2011

FÉLAGSFUNDUR OG PARTÝ

 

Laugardaginn 17. sept. nk. verður félagsfundur í Halanum, Hátúni 12. Kl. 20.00

Dagskrá:

  • Kosning fundarstjóra og fundarritara
  • Skrifað undir samning við leikstýrin okkar þau Margréti Sverrisdóttir og Odd Bjarna Þorkelsson
  • Hugmyndir að Kaffileikhúsi ræddar og fastsettar
  • Leikrit vetrarins kynnt
  • Önnur mál

Að loknum félagsfundinum verður svo Halapartý með hefðbundnu sniði þe. Halar koma með snarl til að leggja í púkk. Hver kemur með drykki fyrir sig. Kaffi og te er á staðnum.

Nýjir félagar eru velkomnir

VETRARSTARFIÐ FRAMUNDAN

Nú er búið að endurráða hin frábæru leikstýri Margréti og Odd Bjarna sem stýrðu okkur eftirminnilega síðasta leikár. Þau ætla að vera okkur til halds og trausts fram að 20 ára afmæli okkar þann 27. sept. 2012. Og mikil tilhlökkun til frekara samstarfs sem gekk svo vel sl. leikár.

Við erum enn að velta fyrir okkur tveim leikritum en það skýrist næstu daga. Fyrirkomulag æfingatímabilsins verður svipað og síðustu ár. Einnig er stefnt á stuttverkadagskrá / kaffileikhús síðustu helgina í október. Og svo áframhaldandi fjör í vor. Þannig að nú auglýsum við eftir hugmyndum og mannskap til að takast á við fjölbreytileg verkefni á öllum sviðum leikhússins, leikara, leikmyndasmiði, höfunda, tæknimenn, ljósamenn, búningahönnuði, framkvæmdastjóra, hreingerningafólk, málara, smiði, miðasölufólk, bakara, saumakonur og menn, hönnuði, fólki til að gera leikskrár og plaköt, halda úti vefsíðunni, facebook, fjölmiðlafólk, kynningarátök, ljósmyndara og fleira og fleira.

Fyrirhugað er að halda félagsfund laugardaginn 17. sept. kl. 20.00 í Halanum og partý á eftir J Frábært væri ef þið gætuð sent okkur línu áður og látið vita hverjir eru til í að taka þátt í kaffileikhúsinu og á hvaða sviði þá. Einnig ef þið erum með hugmyndir af stuttverkum. Sendið línu á info@halaleikhopurinn.is Þá er einnig mikilvægt að leiða nýtt fólk inn og bjóða því með ykkur á fundinn allir eru velkomnir.

 

DVD af eldri verkum:

Hægt er að panta upptökur af verkum síðastu ára hjá gjaldkera gjaldkeri@halaleikhopurinn.is og greiða inná reikning no. 0546 – 14 – 600440 og kennitalan er 421192-2279, munið að setja kennitölu ykkar og hvaða disk verið er að borga fyrir í skýringarreitinn. Diskarnir kosta: Góðverkin kalla 2000 kr. Haustleikarnir 1200 kr. Sjöundá 2000 kr. og Vorhristingur 1200 kr. Pókók, DVD og VHS verð 1500 kr. Kirsuberjagarðurinn, DVD og VHS verð 1800 kr. Batnandi maður, DVD verð 1800 kr. Kaffileikhús 2007, DVD verð 1800 kr. Gaukshreiðrið, DVD verð 1800 kr. Á fjölum félagsins, VHS verð 1200 kr. Ath. að örfá stykki eru til af sumum verkunum svo vissara er að panta eintök. Geta skal þess að diskurinn af Pókók er með galla í hljóði þe. hljóð og mynd passar ekki alveg saman.

Þeir verða svo afhendir á félagsfundinum. Vakin er athygli á því að nú eins og undanfarin ár mun allur ágóði af sölu diskanna renna í Steindórssjóð sem er sjóður sem er notaður til að byggja upp ljósa og tæknideildina okkar. Ath. erum ekki með posa á fundinum, svo best er ef hægt er að millifæra áður.

ÚTSENDING HALAFRÉTTA

Undanfarin ár hafa verið send út fréttabréf þegar þurfa þykir ýmist í tölvupósti eða bréfpósti, stundum bæði. Það hefur verið gert til þess að við séum örugg um að allir félagar fái nýjustu upplýsingar um hvað er á döfinni hjá leikhópnum. Sem ein að fjölmörgum sparnaðarleiðum okkar viljum við bjóða ykkur að afpanta bréfpóstinn með því að senda okkur tölvupóst á info@halaleikhopurinn.is Þeir sem það gera fá framvegis einungis send fréttabréf í tölvupósti.

FÉLAGATALIÐ:

Já til að pósturinn berist örugglega til ykkar þurfum við að fá allar upplýsingar um breytingar jafnóðum. Því viljum við biðja ykkur um að láta okkur vita ef netfang, heimilisfang eða símanúmer ykkar breytist. Sendið þær upplýsingar á ritarann okkar asahildur@gmail.com

INNHEIMTA FÉLAGSGJALDA:

Ha eru ekki allir búnir að borga? Smá skilaboð frá Jóakim Önd: Æi greyin mín borgið nú félagsgjöldin fyrir áramót

 

 

28. maí. 2011
Aðalfundur 2011 ný stjórn
 

Aðalfundur Halaleikhópsins var haldinn 28. maí í Rauða salnum Hátúni 12.

Fundirinn var ágætlega sóttur, á dagskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf sem öll gengu vel fyrir sig. Örn Sigurðson stýrði fundinum og Úlfhildur Þórarinsdóttir var ritari. Félagsmenn eru nú 85 þar af gengu 12 nýjir félagar í leikhópinn á starfsárinu. Kosið var í nokkur embætti í stjórn og skoðunarmenn reikninga.

Stjórn skipa nú:
Hanna Margrét Kristleifsdóttir formaður
Þröstur Jónsson varaformaður
Kristín Margrét Bjarnadóttir gjaldkeri
Ása Hildur Guðjónsdóttir ritari
Guðríður Ólafsdóttir meðstjórnandi

í varastjórn eru:
1. Gunnar Freyr Árnason
2. Einar Andrésson
3. Höskuldur Höskuldsson
Skoðunarmenn reikninga eru: Grétar Pétur Geirsson og Ásta Dís Guðjónsdóttir.

Fjárhagsstaða félagsins er nokkuð góð þrátt fyrir samdrátt í þjóðfélaginu. Ákveðið var að hafa árgjaldið óbreytt 2000 kr. Þá var rætt um verkefnin framundan en leikhópurinn á 20 ára afmæli á næsta ári. Búið er að ráða þau Margréti Sverrisdóttur og Odd Bjarna Þorkelsson til að leikstýra okkur næsta ár og hjálpa okkur við afmælisárið. Verið er að leita að leikritum. Ákveðið var að hafa Haladag í Krika í sumar. Flutt var skýrsla vegna aðalfundar BÍL að því loknu var fundi slitið og strákarnir í stjórn buðu fundargestum uppá rjúkandi heitar vöfflur með kaffinu.

 

23. maí. 2011
Aðalfundur 2011
 

Verður haldinn laugardaginn 28. maí kl. 14.00 í Rauða salnum, Sjálfsbjargarhúsinu Hátúni 12 gengið inn að vestanverðu á gaflinum.


Dagskrá aðalfundar skv. lögum félagsins:

1.              Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2.              Inntaka nýrra félaga.
3.              Skýrsla stjórnar.
4.              Afgreiddir endurskoðaðir reikningar félagsins.
5.              Afgreiðsla tillagna sem borist hafa fundinum, svo sem lagabreytingar.
6.              Starfsemi næsta leikárs.
7.              Kosning stjórnar, varastjórnar, tveir skoðunarmenn reikninga.
8.              Önnur mál

Ath. aðeins skuldlausir félagar hafa atkvæðisrétt á aðalfundi.

Strákarnir í stjórn hafa lofað að baka fyrir okkur vöfflur :-)

Núverandi stjórn :

Formaður: Hanna Margrét Kristleifsdóttir kosin til tveggja ára 2010.
Varaformaður: Höskuldur Höskuldsson kosinn til tveggja ára 2009. Gefur ekki kost á sér áfram.
Gjaldkeri: Kristín M. Bjarnadóttir kosin til tveggja ára 2009. Gefur kost á sér áfram.
Ritari: Ása Hildur Guðjónsdóttir. kosin til tveggja ára 2010.
Meðstjórnandi: Guðríður Ólafsdóttir kosin til tveggja ára 2010.

Varamaður 1: Einar Andrésson kosinn til tveggja ára 2009. Gefur kost á sér áfram
Varamaður 2: Elísa Ósk Halldórsdóttir kosin til tveggja ára 2009.
Varamaður 3: Þröstur Jónsson kosinn til tveggja ára 2010.

Skoðunarmenn reikninga:
Grétar Pétur Geirsson kosinn til tveggja ára 2009. Gefur kost á sér áfram
Kristín R. Magnúsdóttir kosin til tveggja ára 2009 Gefur ekki kost á sér áfram

Því er auglýst eftir framboðum í eftirfarandi embætti:
Varaformann til tveggja ára.
gjaldkera til tveggja ára.
tvo varamenn í stjórn til tveggja ára.
tvo skoðunarmenn reikninga.

Skv. lögum félagsins geta allir fullgildir félagsmenn gefið kost á sér í þessi embætti á fundinum. Nú er kjörið tækifæri fyrir nýtt fólk að gefa kost á sér í stjórn. Lög félagsins má finna á vefnum okkar www.halaleikhopurinn.is/log.htm

 

 

4. maí. 2011
 
Allir saman nú Kaffileikhús í maí.
 

Upp er komin sú hugmynd að vera með Kaffileikhús eða skemmtikvöld seinni hlutann í maí ef nægur mannskapur fæst. Þar sem hægt væri að sýna í Halanum nokkur tónlistaratriði og Gunsó er með nokkur handrit en vantar fólk, bæði leikara, ljósamann, propsara, hvíslar, búningaumsjón, kaffiumsjón, miðasala, framkvæmdastjóra og fl. o.fl. Allt veltur þetta á þátttöku félagsmanna. Kjörið tækifæri til að spreyta sig á nýjum póstum leikhússins. Það væri gott fyrir buddu Halaleikhópsins ef vel tækist til ;-)

Því verður vorhittingur í Halanum laugardaginn 7. maí kl. 14:00.Vonust til að hitta sem flesta.

Sumarkveðja

Stjórnin
 
27. mars 2011
 
Við þökkum áhorfendur fyrir góðar viðtökur á
Góðverkin kalla! Sýningum er lokið

 

 

Ávarp á Alþjóðlega leikhúsdeginum 27. mars 2011
eftir Stefán Baldursson, leikstjóra og óperustjóra
 

Það er merkilegt að í hinni efnahagslegu kreppu sem ríkt hefur á Íslandi síðustu misseri, hefur listin blómstrað sem aldrei fyrr. Aðsóknarmet eru sett í leikhúsunum, gestafjöldi á tónleika og myndlistarsýningar eykst og fleiri bækur seljast en nokkru sinni fyrr. Það hefur sýnt sig að fólk forgangsraðar öðruvísi en áður og leitar í vaxandi mæli á vit lista og menningar.

Í kreppu er mesta ríkidæmi þjóðarinnar fólgið í mannauðnum. Fólk hristir upp í eigin vanahugsun og veitir athygli verðmætum, sem stundum vildu gleymast í þeirri veraldlegu

  Stefán Baldursson

græðgisvæðingu, sem hér herjaði um árabil. Sterkt listalíf á atvinnugrunni hjálpar okkur meira en nokkuð annað að endurreisa ímynd okkar því það veitir fullnægju og raunverulega tilfinningu fyrir ríkidæmi sem mölur og ryð fá ekki grandað. Við erum nefnilega auðug þjóð í menningarlegu tilliti. Hér er atvinnumennska í listum á háu stigi enda grundvallaratriði. Hlúð hefur verið að listmenntun um áratuga skeið og með tímanum hefur uppskeran orðið ríkuleg.

Í flestum listgreinum erum við engir eftirbátar annarra þjóða. Íslensk leiklist er orðin gjaldgeng erlendis. Verk íslenskra leikskálda eru þýdd og leikin á erlendum tungum. Íslenskir leikstjórar og leikhúsfólk er eftirsótt í nágrannalöndunum. Þannig hefur hróður íslenskrar leiklistar borist víða síðustu ár enda íslenskt leikhús ótrúlega fjölbreytilegt og metnaðarfullt. Erlent leikhúsfólk, sem af og til ratar hingað á fundi og ráðstefnur undrast mjög gæði íslenskra leiksýninga og þær sýningar, sem sýndar eru á erlendri grund vekja oftar en ekki óskipta athygli og vinna iðulega til verðlauna. Á leiklistarhátíðum, þar sem kostur gefst á að bera leiklist okkar saman við list annarra þjóða, má ljóst vera að íslensk leiklist stendur leiklist stórþjóðanna síst að baki.

Það er aldrei mikilvægara en í kreppuástandi að listirnar bjóði upp á þá andlegu uppörvun, sem góðir listviðburðir fela í sér. Yfirvöld og almenningur hafa borið gæfu til að styðja og efla þróun hinna ýmsu listgreina. Í leikhúsinu hafa orðið stórstígar framfarir síðustu áratugi. Kannski er stærsti ávinningurinn af áratuga atvinnumennsku í leiklist sá, að augu bókmenntaþjóðarinnar hafa smámsaman opnast fyrir því að skáldverk sviðsins lýtur öðrum lögmálum en skáldverk orðsins. Leiklistin er nefnilega sjálfstæð listgrein.

Gott handrit er að vísu ómetanlegt og oft nauðsynlegur grunnur að góðri sýningu en er engu að síður aðeins einn þáttur af mörgum. Handrit höfundar er efniviður til úrvinnslu fyrir leikstjóra og listafólkið sem með honum starfar, hvati til frekari sköpunar sem ekki síður höfðar til sjónrænna og leikrænna þátta. Það er því ekki til nein endanleg sviðstúlkun á góðu leikverki – það tekur á sig nýjar myndir á mismunandi tímum.

Leikhúsið er bæði háskóli og fjölleikahús, sem opnar okkur innsýn í ótrúlegustu svið mannlífsins. Það sýnir okkur lífið eins og því var lifað, eins og því er lifaðog eins og hægt væri að lifa því. Leikhúsið er samviska okkar. Þegar best lætur getur það gert okkur að örlítið betri manneskjum. Leikhúsið er áttaviti sem hjálpar okkur að rata í lífinu. Þannig getur leikhúsið hjálpað ráðvilltum nútímamanninum að finna sjálfan sig. Við upplifum atburði leiksins á vitsmunalegum og tilfinningalegum forsendum og förum í gegnum þann sálarinnar hreinsunareld sem til forna var nefndur kaþarsis og grísku harmleikirnir stefndu að. Leikhúsið er því ekki síst mannræktarstöð.

Nýlegar rannsóknir sýna að hinar svokölluðu skapandi greinar, listir og menning, skila miklum fjárhagslegum hagnaði í þjóðarbúið og er það vissulega ánægjulegt. Það sem meira máli skiptir er þó að listafólk leggur til þjóðarbúsins annan og ómældan auð með frammistöðu sinni. Stærsti rekstrarhagnaður listastofnana og hinn eini sanni arður felst að sjálfsögðu í auknu manngildi okkar sjálfra, sem listarinnar fáum að njóta. Lista-og menningarstofnanir okkar eru traustasta vígið í baráttu gegn fáfræði, þröngsýni og vanafestu. Án listsköpunar færi lítið fyrir sjálfstæði okkar sem þjóðar. Notum listina í endurreisn íslensks samfélags, njótum hennar og eflum hana!

Stefán Baldursson

 

 

22. mars 2011
 

Allra síðustu sýningar á Góðverkin kalla!
eftir Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason.
Leikstjórar Margrét Sverrisdóttir og Oddur Bjarni Þorkelsson


Nú er hver að verða síðastur að sjá Halaleikhópinn sýna Góðverkin kalla!

Fullt hefur verið á flestar sýningar og áhorfendur verið kátir eins og sjá má af ummælum þeirra á facebook:

,,Takk fyrir frábæra sýningu, langt síðan ég hef hlegið svona mikið!“

,,Vildi óska ég hefði verið með vatnsheldan maskara í kvöld!!!“

,,Nú mega engir móðgast, en svei mér þá ef uppfærsla Odds og Margrétar á Góðverkin kalla! hjá Halaleikhópnum er ekki sú besta á því verki sem ég hef séð. Hún er í það minnsta sú fyndnasta. Allir í Halann!“

,,Snilldartaktar hjá þessum frábæra leikhóp“

 

Allra síðasta sýning:
       
           
Aukasýning
föstudaginn
25.
mars
kl. 20.30

Miðapantanir eru í síma 897-5007 og á midi@halaleikhopurinn.is
Miðasalan opnar 1 1/2 tíma fyrir hverja sýningu.
Miðaverð er 1500 kr. og 1000 kr. fyrir börn 12 ára og yngri.
Hópafsláttur fyrir 10 manns eða fleiri 1200 kr. miðinn. Greitt fyrirfram.
Ef keypt er heil sýning sem er 50 sæti þá kostar sýningin 50.000 kr.

,,Hló mig undir stólinn“

,,Hefði getað kyrkt eina leikkonuna!“

,,Sýning Halaleikhópsins var frábær eins og þeirra var von og vísa. Takk fyrir góða skemmtun.“

Gagnrýni um verkið eftir Hörð Sigurðarson birtist á leiklistarvefnum sjá HÉR

Umfjöllun Kolbrúnar Stefánsdóttur sjá HÉR

Umfjöllun Bjarna Karlssonar er HÉR

 

Sýnt er í Halanum leikhúsi Halaleikhópsins sem er í Sjálfsbjargarhúsinu Hátúni 12, 105 Reykjavík. Sjá kort hér

5. mars 2011
 

Góðverkin kalla!
eftir Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason.
Leikstjórar Oddur Bjarni Þorkelsson og Margrét Sverrisdóttir

Frumsýnt 4. feb. 2011

Hér eru leikarar í ham

Leikverkið:

Góðverkin kalla! er gamanleikrit sem gerist á Gjaldeyri við Ystunöf þar sem lífið snýst um góðverk. Allir sem ekki hafa tapað glórunni, lifa fyrir starfsemi góðgerðafélaga sem eru mörg á Gjaldeyri við Ystunöf. Segja má frá því að ný hjúkrunarkona kemur til bæjarins, og er tekið opnum örmum af ýmsum íbúum sveitarfélagsins. Sjúkrahúsið á afmæli og það þarf að finna veglega gjöf handa því, a.m.k. veglegri en það sem hin félögin gefa.

 

Sýnt er í Halanum leikhúsi Halaleikhópsins sem er í Sjálfsbjargarhúsinu Hátúni 12, 105 Reykjavík. Sjá kort hér

Gagnrýni um verkið eftir Hörð Sigurðarson birtist á leiklistarvefnum sjá HÉR

Og umfjöllun Kolbrúnar Stefánsdóttur sjá HÉR

 

18. jan. 2010
 
Fréttatilkynning
 

Halaleikhópurinn vinnur nú hörðum höndum að uppfærslu sinni á verkinu ,,Góðverkin kalla!“ eftir þá Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason, en allir eru þeir meðlimir Ljótu Hálfvitanna og ekki er þetta í fyrsta skipti þar sem meðlimir þeirra sveitar koma að uppsetningu leikverka fyrir Halaleikhópinn með einhverjum hætti. Þess má til gamans geta að leikstjórar þetta leikárið eru að þessu sinni tveir, þau Oddur Bjarni Þorkelsson meðlimur Ljótu Hálfvitanna og Margrét Sverrisdóttir.

Stefnt er að frumsýningu 4. febrúar. Góðverkin kalla! er gamanleikrit sem gerist á Gjaldeyri við Ystunöf þar sem lífið snýst um góðverk. Allir sem ekki hafa tapað glórunni, lifa fyrir starfsemi góðgerðafélaga sem eru mörg á Gjaldeyri við Ystunöf. Segja má frá því að ný hjúkrunarkona kemur til bæjarins, og er tekið opnum örmum af ýmsum íbúum sveitarfélagsins. Sjúkrahúsið á afmæli og það þarf að finna veglega gjöf handa því, a.m.k. veglegri en það sem hin félögin gefa.

Leikstýrin, þau Oddur og Margrét eru bæði vel menntuð á sviði leiklistarinnar en þau lærðu í Bretlandi. Hún sem leikkona og hann sem leikstjóri. Þau hafa meðal annars starfað með leikhópnum Kláusi og leikstýrt saman víða um landið sem og leikið. Upp á síðkastið hefur Margrét sem dæmi leikið í Heilsugæslunni með Kómedíuleikhúshópnum. Einnig hefur hún farið um víðann völl með Bólu – Hjálmar en sú sýning hlaut Grímu – verðlaunin. Oddur Bjarni hefur hinsvegar bæði leikstýrt, aðstoðarleikstýrt sem og leikið í Borgarleikhúsinu og Þjóðleikhúsinu. Hann hefur einnig verið ötull í starfi áhugaleikhópa og sett upp á þriðja tug sýninga.

Miðasalan hefst 1. feb. nk. og verður auglýst nánar hér.
 

 

10. des. 2010

jol

Halaleikhópurinn sendir ykkur sínar bestu óskir um Gleðileg jól og farsælt komandi ár.

Við þökkum samstarfið og hlýjuna á liðnu ári. Og hlökkum til að sjá ykkur á nýárinu í Halanum.

Við stefnum að frumsýningu í byrjun febrúar 2011 á Góðverkin kalla! eftir þá Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason. Leikstjórar eru þau Oddur Bjarni Þorkelsson og Margrét Sverrisdóttir.

jol
8. nov. 2010

Æfingar hafnar á Góðverkin kalla!
Framkvæmdastjóri óskast

Hlátrasköll glumdu um húsnæði Halaleikhópsins alla síðustu viku meðan verið var að leiklesa Góðverkin kalla. Leikritið þykir afar fyndið og aldrei þessu vant var offramboð af leikurum og því vandinn mikill sem lagður var á leikstjórana Odd Bjarna og Margréti. En í gær var valið í helstu hlutverk og spennan var mikil. Þegar aðeins verður liðið á æfingatímabilið verður bætt við leikurum í aukahlutverk ofl. Stjórn er líka búin að skipa í nokkur hlutverk en enn vantar framkvæmdastjóra og lýsum við eftir honum.Komin er sér síða fyrir Góðverkin kalla, þar inni má sjá hlutverkaskipanina.
 
Afmælisnefnd vegna 20 ára afmælis
Halaleikhópsins 27. sept. 2012
 
Stjórn hefur skipað þau Árna Salomonsson, Unni Maríu Sólmundardóttur og Örn Sigurðsson í afmælisnefnd vegna 20 ára afmælis Halaleikhópsins þann 27. sept. 2012. Nefndin er búin að hittast einu sinni, ekki er ráð nema í tíma sé tekið. Þau veltu upp hinum ýmsu hugmyndum en byrjuðu á að láta stofna netfangið hugmyndabanki@halaleikhopurinn.is og óskar eftir að félagar sendi inn tillögur eða hugmyndir sem þeir sjá fyrir sér að atburðum í tilefni afmælisins eða annarri starfsemi leikhópsins.

 

 
28. okt. 2010

Fyrsti samlestur á Góðverkin kalla!

Viltu starfa með glöðum hópi?. Nú er tækifærið að taka þátt í uppsetningu á bráðskemmtilegu leikriti með Halaleikhópnum. Mánudaginn 1. nóv. Kl. 19.30 til 21.30 verður fyrsti samlestur á Góðverkin kalla! eftir þá Þorgeir Tryggvason, Sævar Sigurgeirsson og Ármann Guðmundsson. Í leikstjórn þeirra Odds Bjarna Þorkelssonar og Margrétar Sverrisdóttur. Í Halanum Hátúni 12. Bæði höfundar og leikstjórar eru úr þeim kunnu gleðisveitum Ljótu Hálfvitunum og Túpílökum, svo þau kunna tökin á kátínunni...

Góðverkin kalla! er gamanleikrit sem gerist á Gjaldeyri við Ystunöf þar sem lífið snýst um góðverk. Allir sem ekki hafa tapað glórunni, lifa fyrir starfsemi góðgerðafélaga sem eru mörg á Gjaldeyri við Ystunöf. Segja má frá því að ný hjúkrunarkona kemur til bæjarins, og er tekið opnum örmum af ýmsum íbúum sveitarfélagsins. Sjúkrahúsið á afmæli og það þarf að finna veglega gjöf handa því, a.m.k. veglegri en það sem hin félögin gefa.

Þegar setja á upp leikrit í fullri lengd þarf mikinn mannskap á hinu ýmsu pósta leikfélagsins. Við erum komin með tvo frábæra leikstjóra sem ætla að sameinast um leikstýra okkur. Nú vantar leikara, framkvæmdastjóra, fjölmiðlafulltrúa, ljósamenn, hljóðmenn og fólk til að sinna hinum ýmsu verkum eins og förðun, búningar, hárgreiðslu, kaffiumsjón, sviðsmenn, leikmunaverði, ljósmyndara, upptökufólk, leikmyndahönnuði, smiði, málara, tónlistarmenn, hvíslara, miðasölustjóra, miðasölufólk, leikskrárstjóra, einhvern til að brjóta um leikskrána, hanna plakat og kynningarefni, einhverja til að taka að sér þrif, aðstoðarfólk við hin ýmsu verk.

Upptalningin gæti verið endalaus enda eru handtökin við að þetta ansi mörg og því mikilvægt að allir sem vettlingi geti valdið komi að verkefninu. Launin eru svo tóm gleði og ánægja við að vinna saman að skemmtilegu verkefni ekki veitir af á þessum tímum. Við ætlum sem sagt að segja skammdeginu og kreppunni stríð á hendur og hefja vinnusaman vetur í Halanum, fullan af gleði.

Ef þú vilt taka þátt en kemst ekki þá hafðu samband við stjórn og láttu vita af þér. Allir eru velkomnir. Næsti samlestur verður svo á miðvikudaginn 2. nóv. kl. 19.30 til 21.30. Við ætlum að haga æfingartímabilinu þannig að við æfum í nóvember, tökum svo frí í desember, en förum svo á fullt strax eftir áramót og stefnum að frumsýningu í lok janúar eða byrjun febrúar 2011.

Kveðja stjórn Halaleikhópsins

21. okt. 2010

Leiklistarnámskeið í fullum gangi

 
Margrét Sverrisdóttir og Oddur Bjarni Þorkelsson leikstjórar   Frá félagsfundi 2. okt. 2010

 

Nú er hafið námskeið hjá Halaleikhópnum með yfirskriftinni Hvernig skapar maður persónu?
Námskeiðið er hugsað til að hrista saman leikhópinn og búa undir vinnu vetrarins. Þátttakendur verða síðan leiddir gegnum æfingar og aðferðir við að skapa persónur, bæði frá grunni og eftir handriti. Farið verður í raddbeitingu, notkun á leikmunum, líkamsbeitingu og búningum. Metþátttaka er á námskeiðinu.

Í byrjun nóvember verður svo hafist handa við að setja upp Góðverkin kalla! eftir þá Þorgeir Tryggason, Sævar Sigurgeirsson og Ármann Guðmundsson. Í leikstjórn þeirra Odds Bjarna Þorkelssonar og Margrétar Sverrisdóttur. Fyrsti samlestur verður auglýstur hér á síðunni. Fyrirkomulag æfingatímabilsins verður svipað og síðustu ár.

Góðverkin kalla! er gamanleikrit sem gerist á Gjaldeyri við Ystunöf þar sem lífið snýst um góðverk. Allir sem ekki hafa tapað glórunni, lifa fyrir starfsemi góðgerðafélaga sem eru mörg á Gjaldeyri við Ystunöf. Segja má frá því að ný hjúkrunarkona kemur til bæjarins, og er tekið opnum örmum af ýmsum íbúum sveitarfélagsins. Sjúkrahúsið á afmæli og það þarf að finna veglega gjöf handa því, a.m.k. veglegri en það sem hin félögin gefa.

 

Félagsfundur og partý 2. okt. kl. 20.00

Margrét Sverrisdóttir, Oddur Bjarni Þorkelsson og Hanna Margrét Kristleifsdóttir undirrita samningana.

 

Laugardaginn 2. okt. nk. verður félagsfundur í Halanum, Hátúni 12. Kl. 20.00

Dagskrá:

  • Kosning fundarstjóra og fundarritara
  • Nýir leikstjórar Oddur Bjarni Þorkelsson og Margrét Sverrisdóttir kynna sig
  • Leiklistarnámskeið kynnt
  • Leikrit vetrarins “Góðverkin kalla„ kynnt
  • Önnur mál

Að loknum félagsfundinum verður svo Halapartý með hefðbundnu sniði.

Nýir félagar eru velkomnir

LEIKLISTAR NÁMSKEIÐ

Með yfirskriftinni Hvernig skapar maður persónu?
Námskeið til að hrista saman leikhópinn og búa undir vinnu vetrarins. Þátttakendur verða síðan leiddir gegnum æfingar og aðferðir við að skapa persónur, bæði frá grunni og eftir handriti. Farið verður í raddbeitingu, notkun á leikmunum, líkamsbeitingu og búningum. Einu skilyrðin eru að þáttakendur mæti óundirbúnir og tilbúnir að leika sér og hafa gaman. Nánar kynnt á félagsfundinum.

Námskeiðið hefst 20. okt. og stendur í 2 vikur eða 20 tíma alls. Verð kr. 3000 fyrir skuldlausa félagsmenn en 6000 kr. fyrir aðra. Allir velkomnir. Skráning á info@halaleikhopurinn.is eða í síma 897-5007

ÚTSENDING HALAFRÉTTA
 
Undanfarin ár hafa verið send út fréttabréf þegar þurfa þykir ýmist í tölvupósti eða bréfpósti, stundum bæði. Það hefur verið gert til þess að við séum örugg um að allir félagar fái nýjustu upplýsingar um hvað er á döfinni hjá leikhópnum. Sem ein að fjölmörgum sparnaðarleiðum okkar viljum við bjóða ykkur að afpanta bréfpóstinn með því að senda okkur tölvupóst á info@halaleikhopurinn.is Þeir sem það gera fá framvegis einungis send fréttabréf í tölvupósti. Einnig viljum við biðja ykkur um að láta okkur vita ef netfang, heimilisfang eða símanúmer ykkar breytist.

Vetrarstarfið að hefjast

Margrét Sverrisdóttir, Oddur Bjarni Þorkelsson og Hanna Margrét Kristleifsdóttir undirrita samningana.

 

Í gær var skrifað undir samninga við 2 leikstjóra sem ætla að vinna með okkur í vetur. Það eru þau Oddur Bjarni Þorkelsson og Margrét Sverrisdóttir. Ætlunin er að halda leiklistarnámskeið seinni partinn í október þar sem farið verður í karaktersköpun. Stóra verkefni vetrarins verður svo Góðverkin kalla eftir þríeykið Ármann Guðmundsson, Þorgeir Tryggvason og Sævar Sigurgeirsson. Æfingar hefjast í nóvember, svo verður tekið frí í desember og æft í janúar. Stefnt að frumsýningu í byrjun febrúar. Félagsfundur verður í byrjun október og partý :-) Allt verður þetta auglýst nánar á næstu dögum.

HALADAGUR Í KRIKA - Pikknikk og leikir

Laugardaginn 3. júlí nk. ætlum við að hafa Haladag í Krika við Elliðavatn. Undanfarin ár höfum við hist reglulega í sumarhúsi Sjálfsbjargar og skemmt okkur við leiklestur, grill, söng og ýmislegt fleira. Öll skemmtiatriði eru velkomin, stjórn kemur með einhver stuttverk úr kassanum góða til að leiklesa. Ef þið lumið á stuttverkum þá endilega komið með þau. Við stefnum á að hittast um kl. 14.00 og láta svo bara dagskrána ráðast af þeim sem mæta.

Seinni partinn drögum við fram grillið og borðum saman. Hver og einn kemur með á grillið fyrir sig og svo hjálpumst við bara að, en líka er hægt að kaupa pylsur til að grilla í Krikanum og gos. Ath. að það er ekki posi í Krika. Söngolíu koma þeir svo með sem vilja. Opið verður eins lengi og stemmingin verður góð. Ekki er verra ef fólk mætir í búningum og með hljóðfæri

Kriki stendur við Elliðahvammsveg. Þegar keyrt er upp Breiðholtsbrautina er farið fram hjá Fellahverfinu og áfram og beygt inn á Vatnsendaveg hjá Hestar og menn, þar er keyrt eftir honum eins og hann liggur í hlykkjum og þegar komið er að hringtorgi no. 3, þessu með stuðlabergssteinunum er beygt þar niður sem stendur Elliðahvammur. Sá vegur er keyrður eins langt og malbikið nær og aðeins lengra yfir smá þvottabrettishæð, þá birtist á vinstri hlið hvítt hús með sólpalli í kring, Þá ertu komin í Krikann. Strætó nr. 28 stoppar við hringtorgið, þaðan er um 700 m. gangur.

Á www.kriki.bloggar.is má sjá nánari leiðarlýsingu og ýmislegt um Krika. Allir velkomnir og takið með ykkur gesti

INNHEIMTA FÉLAGSGJALDA:

Á aðalfundi Halaleikhópsins 20. maí sl. var samþykkt að hækka árgjaldið í 2000 kr. og hafa svipað fyrirkomulag og síðustu ár. Það er að senda út greiðsluseðla í haust.

Ákveðið var jafnframt að veita 200 kr. afslátt til þeirra sem greiða fyrir þann tíma. Sem sagt ef þú greiðir með því að millifæra fyrir 15. ágúst er árgjaldið 1800 kr. Ath. að ef greitt er með greiðsluseðli leggst seðilgjald einnig á árgjaldið. Reiknisnúmer fyrir félagsgjöldin er 1175- 26 – 9976 og kennitalan 421192-2279. Vinsamlega setjið ykkar kennitölu í skýringareitinn.

DVD diskar

Enn hefur ekki unnist tími til að fara í gegnum eldir DVD diska en stjórn er með það á verkefnaskrá sinni að ljúka þeirri vinnu. Því biðjum við félagsmenn sem vantar inní safnið að sýna smá biðlund enn, við ætlum að taka okkur sumarfrí eftir annasamt leikár en förum í þetta með haustinu.

En það eru tilbúnir DVD diskar af því sem var gert síðasta leikár

Hægt er að panta þá hjá gjaldkera gjaldkeri@halaleikhopurinn.is og greiða inná reikning no. 0546 – 14 – 600440 og kennitalan er 421192-2279, munið að setja kennitölu ykkar og hvaða disk verið er að borga fyrir í skýringarreitinn. Diskarnir kosta: Haustleikarnir 1200 kr. Sjöundá 2000 kr. og Vorhristingur 1200 kr. Kristín ætlar að afhenda þá diska sem búið er að greiða fyrir í Halanum fimmtudaginn 8. júlí. Milli 18.00 og 20.00. Vakin er athygli á því að nú eins og undanfarin ár mun allur ágóði af sölu diskanna renna í Steindórssjóð sem er sjóður sem er notaður til að byggja upp ljósa og tækni deildina okkar.

 

Hanna Margrét Kristleifsdóttir nýr formaður

Á aðalfundi 20. maí sl. var Hanna Margrét Kristleifsdóttir kosin formaður Halaleikhópsins, Ása Hildur Guðjónsdóttir var kosin ritari, Guðríður Ólafsdóttir var kosin meðstjórnandi og Þröstur Jónsson var kosinn 1. varamaður. Stjórn vill þakka fráfarandi stjórn fyrir vel unnin störf.

Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar þar sem var farið yfir stöðu mála var meðal annars ákveðið að hafa tiltektardag í Halanum fimmtudaginn 3. júní kl. 17.00 og fram eftir kvöldi.

Einnig var ákveðið að hafa tvo Haladaga í Krika í sumar þann fyrri laugardaginn 3. júlí nk. og stefnt að því að halda hinn seinni líklega 21. ágúst. Það verður auglýst nánar þegar nær líður.

Núverandi stjórn :

trúður Formaður Hanna Margrét Kristleifsdóttir
Varaformaður Höskuldur Höskuldsson
Gjaldkeri Kristín M. Bjarnadóttir
Ritari Ása Hildur Guðjónsdóttir
Meðstjórnandi Guðríður Ólafsdóttir
Varamaður 1 Þröstur Jónsson
Varamaður 2 Einar Andrésson
Varamaður 3 Elísa Ósk Halldórsdóttir
   
Skoðunarmenn reikninga:  
  Grétar Pétur Geirsson
  Kristín R. Magnúsdóttir
 

 

Aðalfundur Halaleikhópsins
fimmtudaginn 20. maí 2010 kl. 20.00
í Rauða salnum Hátúni 12
gengið inn að vestanverðu

Dagskrá aðalfundar skv. lögum félagsins:

1.              Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2.              Inntaka nýrra félaga.
3.              Skýrsla stjórnar.
4.              Afgreiddir endurskoðaðir reikningar félagsins.
5.              Afgreiðsla tillagna sem borist hafa fundinum, svo sem lagabreytingar.
6.              Starfsemi næsta leikárs.
7.              Kosning stjórnar, varastjórnar, tveir skoðunarmenn reikninga.
8.              Önnur mál

Núverandi stjórn :

Formaður Ása Hildur Guðjónsdóttir kosin til tveggja ára 2008
Varaformaður Höskuldur Höskuldsson kosinn til tveggja ára 2009
Gjaldkeri Kristín M. Bjarnadóttir kosin til tveggja ára 2009
Ritari Anna Guðrún Sigurðardóttir kosin til eins árs 2009
Meðstjórnandi Stefanía B. Björnsdóttir kosin til tveggja ára 2008
Varamaður 1 Guðríður Ólafsdóttir kosin til tveggja ára 2008
Varamaður 2 Einar Andrésson kosinn til tveggja ára 2009
Varamaður 3 Elísa Ósk Halldórsdóttir kosin til tveggja ára 2009
     
Skoðunarmenn reikninga:    
  Grétar Pétur Geirsson kosinn til tveggja ára 2009
  Kristín R. Magnúsdóttir kosin til tveggja ára 2009

Því þarf að kjósa um formann, ritara, meðstjórnanda og einn varamann.

Því er auglýst eftir framboðum í eftirfarandi embætti:

Formann til tveggja ára.
Ritara til tveggja ára
Meðstjórnanda til tveggja ára
Varamann til tveggja ára

Skv. lögum félagsins geta allir fullgildir félagsmenn gefið kost á sér í þessi embætti á fundinum.
Nú er kjörið tækifæri fyrir nýtt fólk að gefa kost á sér í stjórn. Lög félagsins má finna á vefnum okkar www.halaleikhopurinn.is/log.htm

 

 
24. mars 2010
Þankaroksfundur
Mánudaginn 29. mars kl. 20.00 í Halanum
 

Nú er sýningum á hinni margrómuðu Sjöundá lokið og tími til að huga að næstu skrefum. Ákveðið var að boða til fundar þar sem félagsmenn geta komið hugmyndum sínum á framfæri við stjórn.

Í lokahófi Sjöundár komu fram sterkar tillögur um að halda fjáröflunar Kaffileikhús í vor. Ekki veitir af að hala inn peningum ef félagsmenn eru til í það. Einnig þarf að huga að næsta leikári, hvað viljum við gera, hvernig verk, hvaða leikstjóra og svo framvegis.

Þetta er frábært tækifæri til að koma handritum á framfæri og láta leiklesa td. Flott að fá að spreyta sig í leikstjórn, taka fyrstu skrefin á sviðinu, lýsa sýningu, hanna búninga, halda utan um verkefni, sinna kynningarmálum, flytja tónlist, ljóð, gjörning, uppistand eða hvaðeina sem félagsmenn eru að bauka.

Ljóst er að við förum ekki af stað með undirbúning undir Kaffileikhús nema manna fyrirfram alla pósta, leikstjórn, handrit, ljós, búninga, förðun, kynningarmál, og svo má lengi telja. Því er mikilvægt að sem flestir komi á fundinn og leggi í púkk hugmyndir fyrir stjórn að vinna eftir. Dagsetning yrði þá 8. og 9. maí eða 14. og 15. maí.

Einnig kom upp hugmynd um að halda Eurovision partý, gaman væri að heyra hvort áhugi er fyrir því líka. Lokakeppnin verður 29. maí. Og ýmislegt fleira má eflaust gera.

Sjáumst hress á mánudaginn og munið að við tökum við flöskum og dósum í sjóðinn okkar. Í þetta sinn verður fundarboðið bara sentí tölvupósti og birt hér svo endileg látið þetta berast og smalið á þankaroksfundinn.

Nýjir félagar eru velkomnir.

 

26. mars 2010
Alþjóðlegi leiklistardagurinn 27. mars

 

Ávörp á Alþjóðlega leiklistardeginum 27. mars

Leiklistarsamband Íslands hefur ávallt fengið íslenskan leikhúslistamann til að semja sérstakt ávarp í tilefni Alþjóðlega leiklistardagsins. Hefur sú hefð skapast að það hafi verið flutt af höfundi í útvarpi þann dag, sem og af stóra sviði Þjóðleikhússins fyrir sýningu. Þá hafa leikhúslistamenn um allt land stigið fram fyrir tjöld leikhúsa sinna og flutt ávarpið íslenska þetta kvöld. Ávarpið semur að þessu sinni Ragnheiður Skúladóttir, deildarforseti leiklistar- og dansdeildar Listaháskóla Íslands.

Frá árinu 1962 hefur Alþjóðlegi leiklistardagurinn verið haldinn hátíðlegur um allan heim. Þá hefur heimskunnur leikhúslistamaður verið fenginn til að semja ávarp í tilefni dagsins af Alþjóða leiklistarstofnuninni, ITI, sem hefur aðsetur í Unesco-byggingunni í París. Að þessu sinni er það Dame Judy Dench leikkona.

Íslenska ávarpið:

Er það ekki merkilegt að í samfélagi okkar, þar sem hinn svokallaði hvunndagur glottir við manni að morgni og æpir: „IceSave“! eða: „Eldgos“! ... já, er það ekki merkilegt að í okkar daglega amstri; þéttriðnu neti upplýsinga, álitamála, greinargerða, fésbókarfærslna, tölvuskeyta og smáskilaboða ... skuli leynast leiksvið?

Er það ekki undarlegt að við, sem reynum eftir fremsta megni að halda okkur í sömu vídd og okkur var úthlutað við fæðingu, skulum sammælast um að kóróna raunveruleikann með leikhúsum, sem eru til þess eins gerð að hýsa skáldlega úttekt á þeim flóknu og oft tröllvöxnu sendingum sem tíminn þeytir í átt til okkar hvort heldur sem er í vöku eða í draumi?  Eða hvað?

Við tölum um leiklist og eigum með því við athafnirnar sem áhorfendur verða vitni að í leikhúsi.  Þó á leiklistin sér ekki aðrar forsendur en skynjun og túlkun áhorfandans á hreyfingum og orðum þeirra sem standa á sviðinu í hvert sinn. Vegna þess að leiklistin er í raun átak áhorfenda og leikenda. Kjarni hennar felst í samkomulagi beggja aðila um að gera tilraun til þess að skapa sameiginlega reynslu, án þess að hafa nokkra tryggingu fyrir því að tilraunin takist, enda upplifun áhorfenda af atvikum á leiksviði – sjónarhorn og afstaða – bundin persónu þeirra og lífsreynslu. En þegar tilraunin ber árangur – og það gerist vissulega stundum – þá gerast lítil kraftaverk. Það sem virtist svo órætt og óljóst breytist í allt að því áþreifanlega staðreynd.

Þá skilur maður loks að ástæða þess að við höfum sammælst um að hafa sérstök leiksvið, leikhús og skapa leiklist er sú að það er í eðli okkar að vilja túlka veruleikann í kringum okkur og upplifun okkar af honum.  Við höfum þörf fyrir að líta um öxl, endurmeta stöðu okkar, gagnrýna gjörðir okkar og hegðun og við þráum að setja flókna og – að því er virðist – fullkomlega óskylda hluti í samhengi.  Til þess að skilja það sem sýnist óskiljanlegt.

Ragnheiður Skúladóttir
Deildarforseti leiklistar- og dansdeildar Listaháskóla Íslands

Alheimsávarpið:

Alþjóða leiklistardagurinn gefur okkur tækifæri til að fagna leiklist eins og hún birtist okkur í ógrynni mynda.
 Leiklist er uppsprettulind skemmtunar og andagiftar og gefur færi á að sameina ólíkar menningararfleifðir og þjóðir sem fyrirfinnast vítt og breitt um heiminn. En leiklist er líka meira en það, því með leiklistinni gefst tækifæri til að fræða og upplýsa.

Leiklist er flutt víðsvegar um heiminn og ekki alltaf í hefðbundnum leikhúsbyggingum. Leiksýning getur birst okkur í litlu þorpi í Afríku, í skjóli fjalls í Armeníu, á agnarsmárri eyju í Kyrrahafinu. Allt sem þarf er rými og áhorfendur. 
Leiklist kallar fram bros á andlitum okkar, fær okkur til að tárast, en ekki síst fær hún okkur til að hugsa og bregðast við.

Leiklist verður til í samvinnu. Leikararnir eru þeir sem sjást, en þeir eru undra margir sem ekki sjást og eru allir jafn mikilvægir og leikararnir. Það munar um þá og fyrir hæfileika þeirra verður leiksýning að veruleika. Þeir eiga líka allan heiður skilinn þegar við fögnum og gleðjumst yfir þeim sigrum sem leiklistin vonandi skilar í höfn í dagslok.

27. mars er hinn opinberi alþjóðadagur leiklistarinnar. Hver dagur ársins ætti skilið að vera sá dagur;  dagur leiklistarinnar. Því það er á okkar ábyrgð að viðhalda stöðugt hefðinni að skemmta, að fræða og upplýsa áhorfendur okkar, þá sem öll okkar tilvist byggir á.

Íslensk þýðing: Viðar Eggertsson.

Höfundur ávarps Alþjóða leiklistardagsins í ár er ein af virtustu og dáðustu leikkonum Bretlands, Dame Judith Olivia Dench, betur þekkt sem Judi Dench. Hún hefur borið hróður bresks leikhús um álfur heims og  hlotið margvíslegar viðurkenningar og verðlaun fyrir list sína á leiksviði, í sjónvarpi og kvikmyndum. Árið 1988 var hún öðluð af Englandsdrottningu og hlaut þá nafnbótina Lafði breska konungríkisins. Hún hefur hlotið tíu BAFTA verðlaun, Laurence Olivier verðlaunin sjö sinnum, tvisvar sinnum Screen Actors Guild verðlaunin, tvenn Golden Glope verðlaun, Tony verðlaun og Óskarsverðlaun fyrir list sína

 

24. mars 2010
Steinunn Sveinsdóttir kvödd

 

úr Hólavallakirkjugarði
 

Fyrir lokasýningu á Sjöundá fór hópur leikara að kveðja Steinunni Sveinsdóttur í Hólavallakirkjugarði og þakka henni fyrir. Við færðum henni rósir og sungum sálminn úr leikritinu.

Ef þig, manneskjan, mæðir.

Ef þið manneskjan, mæðir mótlætisbára,
Djöfull og heljan hræðir með hugraun sára.
Jesús gjörvalla græðir, guðs orð best þar um
Ræðir með kraptinn klára

 

23. mars 2010

Sjöundá - Svartfugl Gunnars Gunnarssonar

Leikgerð Ágústa Skúladóttir, Þorgeir Tryggvason og leikhópurinn
Leikstjóri Ágústa Skúladóttir
 

 

Sýningum á Sjöundá er lokið, sýningar urðu 12

Allra síðasta sýning:


Miðaverð er 1500 kr. fyrir fullorðna og 1000 kr. fyrir börn 12 ára og yngri.
Hópafsláttur er veittur fyrir 10 manns eða fleiri séu miðarnir greiddir fyrirfram.
Ef keypt er heil sýning, 50 sæti þá kostar sýningin 50.000 kr.

Miðasala er í síma 897-5007 og á midi@halaleikhopurinn.is

Ummæli frumsýningargesta:

Það var algerlega frábært og ég var nokkuð lengi að jafna mig á eftir. Þetta verk ættu allir að sjá “ . - Kolbrún Stefánsdóttir.

Stefán Baldursson  - Sá ótrúlega áhrifamikla sýningu Halaleikhópsins á Svartfugli í gærkvöldi. Einhver besta áhugaleiksýning síðari ára!“

Sálartetrið naut afar góðrar leiksýningar Halaleikhópsins í gær, Frábær leikhúsupplifun. Milli þessa verks og samtímans liggur strengur sem ýtir við manni. Látið þessa sýningu ekki fram hjá ykkur fara! ... “- Ragnar Gunnar Þórhallsson.

... „ Mjög fín sýning og stórvel leikin. Mæli með henni fyrir alla leiklistarunnendur og aðdáendur Gunnars Gunnarssonar. Hún fær fjóra svartfugla hjá mér “- Þorsteinn Guðmundsson:

Þetta er ein besta sýning sem ég hef séð lengi “ . - Jón Eiríksson.

Gagnrýni Sigríðar Láru Sigurjónsdóttur af leiklistarvefnum má sjá HÉR
Ummæli Kolbrúnar Stefánsdóttur má finna HÉR
Leikdóm Ingibjargar Elsu Björnsdóttur má finna HÉR
Gagnrýni Bryndísar Schram á Pessunni má finna HÉR
Ummæli Séra Bjarna Karlssonar má finna HÉR

Um er að ræða nýja leikgerð eftir Ágústu Skúladóttur leikstjóra og Þorgeir Tryggvason í samvinnu við leikhópinn. Verkið fjallar um eitt þekktasta sakamál Íslandssögunnar, morðin á Sjöundá og réttarhöldin yfir þeim Bjarna Bjarnasyni og Steinunni Sveinsdóttur, en þeim var gefið að sök að hafa lagt á ráðin og banað mökum sínum. Tónlist og áhrifshljóð í verkinu er samin af þeim Einari Andréssyni og Einari Melax og eru flutt “live” þar sem spilað verður á gömbu, steinaspil, ferðaharmoníum og borðhörpu.

Þetta er fyrsta uppsetning Ágústu með Halaleikhópnum en leiðir hennar og Þorgeirs, sem þekktur er úr hljómsveitinni Ljótu hálfvitunum, hafa oft legið saman í leikhúsunum og má þar nefna GRIMMS hjá Leikfélagi Kópavogs sem valin var athyglisverðasta áhugasýning ársins 2003 og Grímuverðlauna barnasýningarnar KLAUFAR OG KÓNGSDÆTUR (Þjóðleikhúsið 2005) og BÓLU HJÁLMAR (Stoppleikhúsið 2009) en í þeim tveimur síðarnefndu var Þorgeir einn höfunda.

Sýningin er um 2 tímar í flutningi með hléi.

 

 

 
5. mars 2020

Félagsfundur

Miðvikudaginn 10. mars 3010, kl. 20.00 í Halanum.

     
Leiklistarskóli BÍL  
Eins og félagar vita þá hefur það verið baráttumál okkar mörg undangengin ár að Leiklistarskóli Bandalags íslenskra leikfélaga verði fluttur í aðgengilegra húsnæði. Þannig að okkar fólk ætti jafna möguleika til þátttöku í þessum marg rómaða skóla. Nú er svo komið að skólinn flytur að Húnavöllum í A-Húnavatnssýslu. Af því tilefni bað ég skólanefndina að koma á fund með okkur og kynna skólann fyrir okkur. Er það von mín að þetta verði tilefni til þess að loksins geti félagar okkar tekið virkan þátt í þessu mikilsverða starfi sem er svo mikilvægt fyrir leikhópinn í heild sinni.
     
Úr fréttabréfi BÍL:

Bandalagsskólinn flytur!

Leiklistarskóli Bandalags íslenskra leikfélaga verður ekki í Svarfaðardalnum næsta sumar. Við erum búin að leita árum saman að stað sem hefur betra aðgengi fyrir fatlaða en kostar ekki mikið meira en Húsabakki og síðasta ráðið var að auglýsa hjá öllum sveitarfélögunum á landinu. Okkur bárust fjölmörg svör en aðeins eitt mætti okkar kröfum að mestu. Það var frá Húnavallaskóla í Húnavatnshreppi. Þið getið skoðað aðstöðuna á vefslóðinni http://www.hotelhunavellir.is/

Í sumar er áformað að halda þrjú námskeið að Húnavöllum dagana 12. til 20. júní; Leikstjórn I, kennari Sigrún Valbergsdóttir, Leiklist I, kennari Ágústa Skúladóttir og framhald af söngnámskeiðinu frá síðasta sumri, Röddin í leikhúsinu, kennari Þórhildur Örvarsdóttir. Skólabæklingurinn verður sendur út eins og venjulega þann 8. mars, 10 eintök til hvers félags (formanns) og hefjast skráningar þann 15. mars. Þeim lýkur 15. apríl að venju.

Það verður spennandi að hefja skólastarfið á nýjum stað þótt eftirsjá sé að Svarvaðardalnum og fólkinu þar sem hefur verið okkur ómetanlegt öll þessi 13 ár.

 

21. feb . 2010

Sjöundá hlýtur góða dóma

 

 

Uppfærsla Halaleikhópsins á ,,Sjöundá – Svartfugl Gunnars Gunnarssonar“ hefur fengið mjög góðar móttökur. Óhætt er að segja að áhorfendur voru mjög ánægðir með sýninguna og túlkun leikhópsins á sögunni.

Ummæli frumsýningargesta:

Það var algerlega frábært og ég var nokkuð lengi að jafna mig á eftir. Þetta verk ættu allir að sjá “ . - Kolbrún Stefánsdóttir.

Stefán Baldursson  - „Sá ótrúlega áhrifamikla sýningu Halaleikhópsins á Svartfugli í gærkvöldi. Einhver besta áhugaleiksýning síðari ára!“

Sálartetrið naut afar góðrar leiksýningar Halaleikhópsins í gær, Frábær leikhúsupplifun. Milli þessa verks og samtímans liggur strengur sem ýtir við manni. Látið þessa sýningu ekki fram hjá ykkur fara! ... “- Ragnar Gunnar Þórhallsson.

... „ Mjög fín sýning og stórvel leikin. Mæli með henni fyrir alla leiklistarunnendur og aðdáendur Gunnars Gunnarssonar. Hún fær fjóra svartfugla hjá mér “- Þorsteinn Guðmundsson:

Þetta er ein besta sýning sem ég hef séð lengi “ . - Jón Eiríksson.

Gagnrýni Sigríðar Láru Sigurjónsdóttur af leiklistarvefnum má sjá HÉR
Ummæli Kolbrúnar Stefánsdóttur má finna HÉR
Leikdóm Ingibjargar Elsu Björnsdóttur má finna HÉR

Fleiri ummæli:

Jóna Sigríður Marvinsdóttir - „ Fórum á sýningu Halaleikhópsins á verkinu Sjöundá-Svartfugl. Þetta er frábær uppfærsla hjá þeim, Leikurinn góður og allt annað í plús. Ég lifði mig inn í söguna og sá að það gerðu fleiri. Sem sagt frábært hjá þeim. Látið þessa sýningu ekki fram hjá ykkur fara“.

Kristján Helgason - „Stórkostleg sýning, frábær leikur, takk fyrir mig“.

Hulda B Hakonardottir - „Halaleikhópurinn fer óskaplega fallega og vel með "Sjöundá" - ef hægt er að orða það þannig um þá dapurlegu atburði sem þar áttu sér stað. Halinn rúllar!“

 
 
30. des. 2009

SJÖUNDÁ

 

Svartfugl Gunnars Gunnarssonar

Leikgerð Ágústa Skúladóttir, Þorgeir Tryggvason og leikhópurinn
Leikstjóri Ágústa Skúladóttir

 

Halaleikhópurinn er nú að vinna að uppsetningu á Sjöundá sem byggð er að sögu Gunnar Gunnarssonar Svartfugli. Æfingar hófust snemma í nóv. 2009 og stefnt er að frumsýningu fyrstu helgina í febrúar 2010.

17 leikarar taka þátt í uppfærslunni í ár. Auk þess taka nærri 15 aðrir þátt á ýmsan hátt. Ma. er lifandi tónlist og leikhljóð stór partur af sýningunni. Leikmyndadeild vinnur nú á fullu meðan leikarar fengu smá jólafrí. En við hefjum æfingar að fullu strax 4. jan.

Halaleikhópurinn þakkar ykkur samstarfið á liðnu ári og óskar ykkur farsældar á komandi ári

 
 
27. nóv. 2009

Hallærislegt KARAOKE partý

 
verður haldið í Halanum hátúni 12,
laugardaginn 28. Nóvember klukkan 08.49!

Lögð verður sérstök áhersla á að partýið verði hallærislegt en skemmtilegt.

Miðaverð: Frítt inn. En ótakmaðrar þolinmæði er krafist gagnvart söngvurum þeim er stíga á svið og flytja einhver lög eða annan gjörning. Engin ábyrgð er borin á andlegri heilsu þess er mætir. Halaleikhópurinn og ábyrgðarmenn þessa partýs afsala sér allri ábyrgð af skaða þeim er fólk getur hlotið við að hlusta á flutning söngvara í þessu partýi og munu ekki undir neinum kringumstæðum greiða sálfræðikostnað sem af þeim kann að hljótast.  Einnig verður undir engum kringumstæðum slökkt á græjunum fyrr en að partýi loknu í kringum 01.00 eða 01.30.

Algengar spurningar sem hafa borist vegna þessa partýs.


Fyrir hverja er þetta partý? Þetta Partý er fyrir félaga í Halaleikhópnum og íbúa í Hátúni 12.


Mun Hanna Margrét detta fram af sviðinu þegar hún syngu sitt lag? Nei, Hanna mun ekki detta af sviðinu þar sem að sviðið verður á gólfinu og ekki fræðilegur möguleiki að detta fram af því.


Mun Gunsó klippa sig fyrir þennan atburð? Nei það mun Gunsó ekki gera, en hann mun örugglega reyta hár sitt og skegg ef einhver nær að syngja fallega í þessu Partýi.


Verða einhverjar veitingar þarna? Nei því miður verða engar veitingar þarna. En það er möguleiki að reyna að snýkja af Árna Sal einhverjar veitingar. En hann hinsvegar drekkur ekki áfengi og getur ekki borið mjög mikið þannig að við höfum ákveðið í samráði við Hönnu að það væri gaman ef þeir sem vilja og geta komi með eitthvað handa sér eða deili með öðrum. Heyrst hefur að hún ætli að koma með kex, osta og sultu.


Hverjir eiga að hugleiða að mæta ekki í þetta Partý? Þeir sem að höndla EKKI að hlusta á aðra syngja, sama hversu laglausir eða laglegir þeir eru. Hinsvegar eru til ýmsar leiðir til þess að forðast að hlusta á aðra syngja. T.d. er hægt að kaupa eyrnatappa og eyrnahlífar. EN svo eru sumir sem þurfa þess ekki. T.d. vitum við um nokkra einstaklinga sem hafa ræktað með sér þann eiginleika að loka eyrunum. Sérstaklega þeir sem eiga maka...


Mun Ágústa leikstjóri syngja eitt lag í þessu partýi eða flytja einhvern annan gjörning? Því miður höfum við engar heimildir fyrir því að hún geri það. En við skorum á alla sem eru á æfingum á Svartfugli eftir Gunnar Gunnarsson að skora á Ágústu að mæta og flytja eitt lag eða góðan gjörning.


Er Daníel... Hippi? Við höfum lagt í mikla rannsóknarvinnu vegna þessa og lítið orðið ágengt. Heimildir herma að það hafi sést til hans í sumar spila á gítar úti á túni milli Hátúns 12 og Hátúns 14, sem Hippar myndu einmitt gera... En hinsvegar höfum við ekki fengið þetta staðfest og munum ekki bera ábyrgð á því á nokkurn hátt að kalla hann Hippa. Enda sómamaður og auk þess að fara að leika Kapellán.


Er Þröstur góður söngvari? Þar sem það eru nokkrir Þrestir í Halanum þá vitum við ekki um hvern er verið að tala. En þar sem það er umtalað að Þrestir (fuglarnir) syngja fallega þá gerum við einnig ráð fyrir því að nafnar þeirra geri það.


Af hverju á þetta partý að vera hallærislegt? Vegna þess að við höfum þær óformlegu heimildir að það sé í tísku. Svona Prét-a-porter. Síðan hafa Karókí partý alltaf verið pínu halló. Svo hér á við sú gamla enska speki: ,,If you can´t beat them, join them.
您私生子 ? Því miður kunnum við ekki kínversku... En ef einhver vill túlka þá endilega sendið okkur ekki svarið heldur haldið því fyrir ykkur sjálf.

Með kærri kveðju og von um að sjá sem flesta.


Árni Sal og Stebba hasarskutla.
Ábyrgðarmenn áðurnefnds partýs.

 
 
5. nóv. 2009

Halaleikhópurinn tekst á við Svartfugl

     
Gunnar Gunnarson
Gunnar Gunnarsson (1889-1975)
 

Miðvikudaginn 4. nóv. s.l. hófust æfingar á Svartfugli eftir Gunnar Gunnarsson í leikstjórn Ágústu Skúladóttur. Hún er okkur að góðu kunn og er nú að vinna að splunkunýrri leikgerð að Svarfugli og hefur fengið Þorgeir Tryggvason sér til aðstoðar við það.

Stór hópur Halafélaga mætti og var góður hugur í fólki. Ýmislegt kom á óvart þegar Ágústa og Toggi kynntu verkefnið og ljóst er að allir geta verið með sem vilja, mikið verður af hljóðeffektum og lifandi tónlist.

Spennandi verður að fylgjast með framvindunni næstu daga og enn er tækifæri til að vera með.

Næstu æfingar verða fimmtudagskvöld kl. 19.00 til 21.30, og laugardag og sunnudag kl. 14.00 til 17.00.

Upptalningin á hlutverkum gæti verið endalaus enda eru handtökin við að setja upp leiksýningu ansi mörg og því miklivægt að allir sem vettlingi geta valdið komi að verkefninu.

 

 

Launin eru svo tóm gleði og ánægja við að vinna saman að skemmtilegu verki ekki veitir af á þessum tímum. Við ætlum sem sagt að segja skammdeginu og kreppunni stríð á hendur og halda áfram hinu kröftuga starfi sem hefur verið í Halanum í vor og haust full af gleði.

Nýir félagar hjartanlega velkomnir.

 

 
 

Svartfugl

4. nóv. kl. 20.00

     
Gunnar Gunnarson
Gunnar Gunnarsson (1889-1975)
 

Miðvikudaginn 4. nóv. n.k. kl. 20.00 er komið að langþráðum tímapunkti á þessum vetri þegar við hefjum vinnu við stór verkefni vetrarins, Svartfugl eftir Gunnar Gunnarson í leikstjórn Ágústu Skúladóttur. Hún er okkur að góðu kunn og er nú að vinna að splunkunýrri leikgerð að Svarfugli og hefur fengið Þorgeir Tryggvason sér til aðstoðar við það.

Ætlunin er að hittast og heyra hvernig Ágústa ætar að haga leiktímabilinu. Hún vill að allir sem hafa áhuga á að taka þátt í verkinu komi þetta kvöld, bæði leikara og annað starfsfólk leikhússins, leikmyndasmiðir, búningahönnuðir , ljósa og hljóðmenn og bara allir sem hafa áhuga á að taka þátt.

Upptalningin gæti verið endalaus enda eru handtökin við þetta ansi mörg og því miklivægt að allir sem vettlingi geta valdið komi að verkefninu. Launin eru svo tóm gleði og ánægja við að vinna saman að skemmtilegu verki ekki veitir af á þessum tímum. Við ætlum sem sagt að segja skammdeginu og kreppunni stríð á hendur og halda áfram hinu kröftuga starfi sem hefur verið í Halanum í vor og haust full af gleði.

 

Boðið verður uppá kaffi og vöfflur og nýjir félagar hjartanlega velkomnir.

Ekki er verra ef fólk er búið að lesa söguna áður. Einnig má geta þess að hægt er að hlusta á Svartfugl á vef ríkisútvarpsins þar sem höfundur les söguna sjálfur 1956.

 
 
Haustleikur 2009
     

 

Haustleikar Halaleikhópsins verða haldnir laugardaginn 17. okt. kl. 20.00 og sunnudaginn 18. okt. kl. 17.00.

Sýnd verða fjögur íslensk stuttverk og flutt tónlistaratriði milli atriða. Tveir félaga Árni Salomonsson og Gunnar Gunnarson, Gunsó leikstýra.

Í hléinu verða seldar vöfflur, kaffi og gos.

Miðaverð er 1000 kr.
Miðasala er í síma 862-4276 og á midi@halaleikhopurinn.is

 
Bara bíða   Þykist þú eiga veski
Höfundur Júlía Hannam   Höfundur Fríða Bonnie Andersen
Leikstjóri Gunnar Gunnarsson, Gunsó   Leikstjóri Árn Salomonsson
Leikarar:     Leikarar:  
Árný Hanna Margrét Kristleifsdóttir   Maður Kristinn S. Axelsson
Birna Margrét Lilja Arnarsdóttir   Kona Sóley B. Axelsdóttir
Finnur Sólberg R. Haraldsson   Lögga Þröstur Steinþórsson
Daníel Daníel Þórhallsson      
Einar Tobias Hausner      
Starfsmaður Þröstur Jónsson      
Starfsmaður Telma Kjartansdóttir      
Starfsmaður Silja Kjartansdóttir      
         
Hærra minn guð til þín eða prívat hagsmunir eiga ekki
við hér
  Prinsipp
Höfundur Ylfa Mist Helgadóttir   Höfundur Örn Alexandersson
Leikstjóri Gunnar Gunnarsson, Gunsó   Leikstjóri Árni Salomonsson
Leikarar:     Leikarar:  
Kona Ásdís Úlfarsdóttir   Kona Hanna Margrét Kristleifsd.
Ekkill Daníel Þórhallsson   Maður Arnar Ágúst Klemensson
Prestur Þröstur Jónsson      
Orgelleikari Einar Andrésson      
Útfararstjóri Tobias Hausner   Tónlistaratriði flytja:
Flautuleikari Auður Birgisdóttir   Daníel Þórhallson
Kirkjugestir: Björk Guðmundsdóttir   Tobias Hausner
  Kristinn S. Axelsson    
  Margrét Lilja Arnarsdóttir   Hljómsveitin Napoleon:
  Hekla Bjarnadóttir   Hlynur Þór
  Silja Kjartansdóttir   Hörður Már
  Telma Kjartansdóttir   Sindri Már
Meðhjálpari Sólberg R. Haraldsson   Björk
Kór: Einar Melax    
  Sigurbjörg Halldórsdóttir    
  Guðfinna Ásgeirsdóttir   Allt tónlistarfólkið mun síðast sameinast
  Guðrún Stefánsdóttir   í flutningi á Smávinir fagrir
       
Lýsing: Magnús Addi Ólafsson    
 
Ýmsir aðrir lögðu hönd á plóg við þetta verkefni og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.
       
Ása Hildur Guðjónsdóttir
Einar Andrésson
Elísa Ósk Halldórsdóttir
Arndís Guðmarsdóttir
Kristín M. Bjarnadóttir
 
Sérstakar þakkir fá:
Unnur María Sólmundardóttir
Sigríður Kristmanns
Sigrún Ósk Arnardóttir
Lögreglan í Reykjavík

 

 

 
7. okt . 2009

Margt smátt

 
Margt smátt 2009

 

Stuttverkahátíðin Margt smátt verður haldin af BÍL og Meginfelag áhugaleikara í Føroya laugardaginn 10. okt. nk. í félagsheimili Seltjarnarness. Halaleikhópurinn hefur verið virkur þátttakandi í starfi BÍL og mun flytja einn leikþátt þar. Hærra minn guð til þín eftir Ylfu Mist Helgadóttur í leikstjórn Gunnars Gunnarssonar, Gunsó.

18 verk verða sýnd á hátíðinni 5 frá Færeyjum og 13 frá Íslandi. Sigrún Valbergsdóttir mun að lokum fjalla um sýningar hátíðarinnar. Um kvöldið verður svo leikfélagapartý þar sem áhugaleikfélaga á Íslandi og Færeyjum koma saman og skemmta sér


Sýningarnar sem sýndar verðar eru:

 

Meginfelag áhugaleikara Føroya

Auto eftir Súsanna Tórgarð, leikstjóri Ría Tórgarð
Gesturin eftir Ría Tórgarð, leikstjóri Ría Tórgarð
Ferð mín til Jórsala eftir Eir í Ólavsstovu, leikstjóri Ría Tórgarð
Fanin heldur eftir Jóhan Ludvík Laksáfoss, leikstjóri Ría Tórgarð
Avbjóðningin eftir Gulla Øregaard, leikstjóri Ría Tórgarð

Leikfélag Kópavogs

Spott eftir Hörð Skúla Daníelsson, leikstjóri Hörður Skúli Daníelsson

Halaleikhópurinn

Hærra minn guð til þín eftir Ylfu Mist Helgadóttur, leikstjóri Gunnar Gunnarsson

Leikfélag Hafnarfjarðar

Það er góða veðrið eftir Lárus Húnfjörð, leikstjóri Ingvar Bjarnason
Svefnþula eftir Samuel Beckett, leikstjóri Lárus Húnfjörð
Broskallinn eftir Lárus Húnfjörð, leikstjóri Ingvar Bjarnason

Hugleikur

Sigurverarinn eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur, leikstjóri Júlía Hannam
Notaleg kvöldstund eftir Þórunni Guðmundsdóttur, leikstjóri Ásta Gísladóttir
Englar í snjónum eftir Unni Guttormsdóttur, leikstjóri Sigrún Óskarsdóttir
Bara bíða eftir Júlíu Hannam, leikstjóri Júlía Hannam
Ári síðar eftir Árna Friðriksson, leikstjóri Hjörvar Pétursson
Ár og öld eftir Þórunni Guðmundsdóttur, leikstjóri Þorgeir Tryggvason

Leikfélag Mosfellssveitar

Ástin er hverful eftir Maríu Guðmundsdóttir, leikstjóri Ólöf Þórðardóttir

Leikfélag Selfoss

Góðar stundir eftir F. Ella Hafliðason, leikstjóri Maríanna Ósk Sigfúsdóttir

 
 
8. sept. 2009

Hauststarfið

 
Kaffileikhús
 
Undirbúningur fyrir Kaffileikhús helgina 17. og 18. okt. nk. er komin á fullt skrið.Tveir félagar ætla að leikstýra nokkrum stuttverkum. Það eru Árni Salomonsson og Gunnar Gunnarsson, Gunsó. Þetta verður kynnt nánar þegar nær líður.  Þeir liggja nú sveittir yfir handritabunka. Fyrsti samlestur var í kvöld og lokakast verður á morgun kl. 20.00.  Allir velkomnir
 
Svartfugl
 
Strax í byrjun nóvember hefjast æfingar á Svartfugli eftir Gunnar Gunnarson í nýrri leikgerð og leikstjórn Ágústu Skúladóttur. Stefnt að frumsýningu um mánaðarmótin jan. – feb. 2010. Nánar auglýst síðar. Geta má þess að hægt er að hlusta á Svartfugl á vef ríkisútvarpsins http://ruv.is/podcast/ þar sem Gunnar les söguna sjálfur1956.
 
27. ágúst 2009

Félagsfundur

 
fimmtudaginn 3. sept. nk. kl. 20.00 í Halanum
 

Dagskrá:

  • Kaffileikhús í október
  • Fjármál.
    (Hvernig er hægt að fá fjármagn til reksturs Halaleikhópsins, allar tillögur vel þegnar)
  • Önnur mál

Kaffiveitingar

Nú fer hauststarfið að hefjast hjá okkur.

18. júlí sl. var Haladagur í Krika, þar hittust félagar og skemmtu sér vel í einmuna blíðviðri við leiklestur, grill og glens. Metþátttaka varð eða 42 sem var bara gaman. Mikið var rætt um hversu vel lukkað Kaffileikhúsið var í vor og ekki skemmdi fyrir að útkoman fjárhagslega var einnig mjög góð fyrir leikhópinn. Því hefur verið ákveðið að endurtaka leikinn og halda aftur Kaffileikhús nú í haust. Áætluð dagsetning er 17. – 18. okt. nk. Þegar eru tveir félagar búnir að gefa kost á sér til að leikstýra sinn hvoru stuttverkinu og leikarar farnir að tilkynna þátttöku þó ekki sé farið að auglýsa þetta.

Stjórn vill hvetja fleiri félaga til að spreyta sig á leikstjórn. Þetta er kjörið tækifæri til að stíga fyrstu skrefin í að við gerum allt sjálf og ná þannig niður kostnaði við rekstur leikfélagsins. Við stefnum að því að hafa 3 – 4 stuttverk og tónlistaratriði. Annars veltur þetta allt á þátttöku félagsmanna.

Okkur vantar sem sagt enn tvo leikstjóra, handrit helst íslensk og frumsamin J (nú er að draga uppúr skúffunum), framkvæmdastjóra, leikara, ljósamenn, tónlistarmenn gaman væri að stofna KAFFIHÚSABAND J hljóðmenn, fólk til að sjá um förðun, búninga, ljós, hljóð, leikmynd, ljósmyndara, kvikmyndatökumenn, klippara, góða videókameru, miðasölufólk, einhverja til að gera leikskrá og plakat, kynningaraðila, smiði, málara, bakara, hvíslara, einhverja til að sjá um kaffiveitingarnar og sjoppuna, einhvern til að sjá um þrif, að raða í salinn og skreyta hann, aðstoðarfólk af ýmsu tagi.

Upptalningin gæti verið endalaus enda eru handtökin við að þetta ansi mörg og því mikilvægt að allir sem vettlingi geti valdið komi að verkefninu. Launin eru svo tóm gleði og ánægja við að vinna saman að skemmtilegu verki ekki veitir af á þessum tímum. Við ætlum sem sagt að segja skammdeginu og kreppunni stríð á hendur og hefja vinnusaman vetur í Halanum, fullann af gleði.

Strax í byrjun nóvember hefjast æfingar á Svartfugli eftir Gunnar Gunnarson í nýrri leikgerð og leikstjórn Ágústu Skúladóttur. Stefnt að frumsýningu um mánaðarmótin jan. – feb. 2010. Nánar auglýst síðar. Geta má þess að hægt er að hlusta á Svartfugl á vef ríkisútvarpsins http://ruv.is/podcast/ þar sem Gunnar les söguna sjálfur1956.

 

 
24. ágúst 2009

Haladagur í Krika

 
Laugardaginn 18. júlí
 
 

Veðurblíðan lék við Halafélaga þann 18. júlí sl. þegar hinn árlegi Haladagur var í Krika við Elliðavatn. Metaðsókn var og mikið stuð. Félagar skemmtu sér við leiklestur, tónlist og spjall í góða veðrinu. Síðdegis var svo slegið upp í grillveislu.

 

 
 
 

 
 
 
8. júní 2009

Haladagur í Krika

 
Laugardaginn 18. júlí frá kl. 14.00
 

Haladagur verður laugardaginn 18. júlí í Krika við Elliðavatn frá kl. 14.00 og fram eftir nóttu ef svo ber undir. Dagskrá verður mjög óformleg nema einhver leikstjóri stigi á svið og stjórni okkur, hver veit. Hugmyndin er að koma saman til að hittast og hafa gaman hvort að öðru. Á staðnum verða einhver handrit og söngblöð. Ef þið lumið á skúffuhandritum þá er þetta kjörið tækifæri til að láta leik lesa þau. Hver veit hvað úr því verður. Allir leikir, glens og grín eru sérlega velkomnir. Ekki er verra ef fólk mætir í búningum með hljóðfæri :-)

Hugsunin er svo að tendra grillið seinni partinn. Þeir sem vilja koma með á grillið og grilla sjálfir, einnig verður hægt að kaupa sér pylsu og pylsubrauð á staðnum til að grilla. Í Krika er selt gos, kaffi, íspinnar, pylsur og sitthvað fleira, en velkomið er líka að taka með sér drykki og söngolíu. Flugdrekar, sápukúlur og hvert annað skemmtiefni velkomið og annað það sem hægt er að skemmta sér og öðrum við. Það er ekki posi í Krika.

Endilega fjölmennið og leyfið leiknum að sleppa lausum hala. Kriki er sumarhús sem Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu á og stendur við Elliðavatn. Það stendur við Elliðahvammsveg. Þegar keyrt er upp Breiðholtsbrautina er farið fram hjá Fellahverfinu og áfram og beygt inn á Vatnsendaveg hjá Hestar og menn,þar er keyrt eftir honum eins og hann liggur í hlykkjum og þegar komið er að hringtorgi no. 3, þessu með stuðlabergssteinunum er beygt þar sem stendur Elliðahvammur. Sá vegur er keyrður eins langt og malbikið nær og aðeins lengra, þá birtist hvítt hús með sólpalli í kring. Þá ertu komin í Krikann. Strætó nr. 28 stoppar við hringtorgið, það er um 700 m. labb þaðan.

Á www.kriki.bloggar.is má sjá nánari leiðarlýsingu og ýmislegt um Krika. Allir velkomnir og takið með ykkur gesti.

 
 
 
8. júní 2009
 

Ný stjórn var kosin á aðalfundi 28. maí sl. hana skipa: Ása Hildur Guðjónsdóttir formaður, Höskuldur Höskuldsson varaformaður, Kristín M. Bjarnadóttir gjaldkeri, Anna Sigurðardóttir ritari, Stefanía Björk Björnsdóttir meðstjórnandi. Í varastjórn eru: Guðríður Ólafsdóttir, Elísa Ósk Halldórsdóttir og Einar Andrésson.

18. júlí verður Haladagur í Krika. Óljóst er hvort við gerum eitthvað í haust, það ræðast af fjárhag og dugnaði félagsmanna. Allar hugmyndir eru vel þegnar.

Í nóvember hefjast æfingar á Svartfugli eftir Gunnar Gunnarson í nýrri leikgerð og leikstjórn Ágústu Skúladóttur. Geta má þess að hægt er að hlusta á Svartfugl á vef ríkisútvarpsins http://ruv.is/podcast/

 

Innheimta félagsgjalda:  

Á aðalfundi Halaleikhópsins 28. maí sl. var samþykkt að hafa árgjaldið óbreytt 1800 kr. og hafa sama fyrirkomulag og á síðasta ári. Þe. að senda út greiðsluseðla 1. ágúst nk. Ákveðið var jafnframt að veita 300 kr. afslátt til þeirra sem greiða fyrir þann tíma. Sem sagt ef þú greiðir með því að millifæra fyrir 1. ágúst er árgjaldið 1500 kr. Reiknisnúmer okkar er 1175- 26 – 9976 og kennitalan 421192-2279. Vinsamlega setjið ykkar kennitölu í skýringareitinn.

 
 
22. maí 2009

Kaffileikhús - Aukasýning

 
Mánudaginn annan í Hvítasunnu 1. júní nk. kl. 17.00
 

Líf og fjör hefur verið í Halanum undanfarnar vikur. Innanfélagsmenn hafa tekið höndum saman og æft stíft, bæði stuttverk og tónlist. Nokkrar húsmæður tóku sig til og gerðu helling af brauðtertum, skúffukökum og kleinum.

Sem rann ljúft í gesti Kaffileikhússins 21. maí sl. Sýnd voru þrjú stuttverk:

Miðvikudagur í Helvíti, eftir Ármann Guðmundsson, leikstjóri Gunnar Gunnarsson, Gunsó

Bara Tjilla, eftir Jónínu Leósdóttur, leikstjóri Gunnar Gunnarsson, Gunsó

Einleikur fyrir höfund og leikara, eftir Benóný Ægisson, leikstjóri Gunnar Gunnarsson, Gunsó

HJÓLASTÓLASVEITIN flutti nýtt rúllandi uppistand sem þau kalla KÓKOSBOLLU HÓ Ó PÓNÓ,
leikstjóri Ágústa Skúladóttir

Fjórar hljómsveitir fluttu okkur tónlist:

Nafla - Jón, Lister, og Tobias og Daníel og Dúó Gísla blikk

 

Auglýsing

 

Það var uppselt og fólk varð frá að hverfa á fimmtudaginn 21. maí, svo ákveðið hefur verið að skella upp aukasýningu á annan í Hvítasunnu 1. júní kl. 17.00

Miðaverð er aðeins 1000 kr. kaffi og kökur innifalin.
Léttir drykkir verða seldir í sjoppunni.

Miðasala í síma 862-4276 Ath. að vissara er að panta miða.

 
 
22. maí 2009

Aðalfundur

 
Fimmtudaginn 28. maí nk. kl. 20.00
 

Dagskrá aðalfundar skv. lögum félagsins:

1.              Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2.              Inntaka nýrra félaga.
3.              Skýrsla stjórnar.
4.              Afgreiddir endurskoðaðir reikningar félagsins.
5.              Afgreiðsla tillagna sem borist hafa fundinum, svo sem lagabreytingar.
6.              Starfsemi næsta leikárs.
7.              Kosning stjórnar, varastjórnar, tveir skoðunarmenn reikninga.
8.               Önnur mál

Ath. aðeins skuldlausir félagar hafa atkvæðisrétt á aðalfundi.

 

Núverandi stjórn :

Formaður: Ása Hildur Guðjónsdóttir kosin til tveggja ára 2008,
Varaformaður: Höskuldur Höskuldsson kosinn til eins árs 2008, gefur kost á sér áfram.
Gjaldkeri: Kristín R. Magnúsdóttir kosin til tveggja ára 2007, gefur ekki kost á sér áfram.
Ritari: Kristín M. Bjarnadóttir kosin til tveggja ára 2008, gefur kost á sér til gjaldkera.
Meðstjórnandi: Stefanía B. Björnsdóttir kosin til tveggja ára 2008.

Varamaður 1: Guðríður Ólafsdóttir kosin til tveggja ára 2008.
Varamaður 2: Einar Andrésson kosinn til eins árs 2008.
Varamaður 3: Magnús Addi Ólafsson kosinn til eins árs 2008. Gefur ekki kost á sér áfram.

Skoðunarmenn reikninga:

Grétar Pétur Geirsson kosinn til tveggja ára 2007, gefur kost á sér áfram
Ragnar Gunnar Þórhallsson kosinn til tveggja ára 2007, gefur ekki kost á sér áfram.

Því er auglýst eftir framboðum í eftirfarandi embætti:

Varaformann til tveggja ára. Höskuldur Höskuldsson gefur kost á sér áfram.
Gjaldkera til tveggja ára. Kristín M. Bjarnadóttir gefur kost á sér.
Ritara til eins árs. Þ.e. ef Kristín M. Bjarnadóttir verður kosin sem gjaldkeri.
Varamann til eins árs
Varamann til eins árs.

Skoðunarmann reikninga til tveggja ára, Grétar Pétur Geirsson gefur kost á sér áfram.
Skoðunarmann reikninga til tveggja ára, Kristín R. Magnúsdóttir gefur kost á sér.

Skv. lögum félagsins geta allir fullgildir félagsmenn gefið kost á sér í þessi embætti á fundinum.
Nú er kjörið tækifæri fyrir nýtt fólk að gefa kost á sér í stjórn.

Enn vantar sem sagt framboð til ritara og tvo varamenn í stjórn.

Lög félagsins má finna á vefnum okkar www.halaleikhopurinn.is/log.htm

 

 

 
18. maí 2009

Kaffileikhús

 
Fimmtudaginn 21. maí nk. kl. 17.00
Ath. aðeins þessi eina sýning
 

Líf og fjör hefur verið í Halanum undanfarnar vikur. Innanfélagsmenn hafa tekið höndum saman og æft stíft, bæði stuttverk og tónlist. Nokkrar húsmæður eru í startholum í bakstri og allt að verða tilbúið.

Sýnd verða þrjú stuttverk:

Miðvikudagur í Helvíti, eftir Ármann Guðmundsson, leikstjóri Gunnar Gunnarsson, Gunsó

Bara Tjilla, eftir Jónínu Leósdóttur, leikstjóri Gunnar Gunnarsson, Gunsó

Einleikur fyrir höfund og leikara, eftir Benóný Ægisson, leikstjóri Gunnar Gunnarsson, Gunsó

 

 

Grímur í kaffiboði

HJÓLASTÓLASVEITIN mun flytja nýtt rúllandi uppistand sem þau kalla
KÓKOSBOLLU HÓ Ó PÓNÓ
, leikstjóri Ágústa Skúladóttir

Fjórar hljómsveitir munu flytja okkur tónlist:

Nafla - Jón, Lister, og Tobias og Daníel og Dúó Gísla blikk

Miðaverð er aðeins 1000 kr. kaffi og kökur innifalin.
Léttir drykkir verða seldir í sjoppunni.

Miðasala í síma 862-4576

 
 
6. maíl 2009
 

ÁLYKTUN frá aðalfundi BÍL

 

Aðalfundur Bandalags Íslenskra leikfélaga, haldinn að Hlíð í Ölfusi 1. maí 2009 samþykkti svohljóðandi ályktun.

Öflug og fjölbreytt starfsemi íslenskra áhugaleikfélaga er sú grasrót sem leiklistarlíf þjóðarinnar sækir næringu sína í. Mikilvægi starfseminnar fyrir blómlega menningu um landið allt verður ekki dregið í efa. Fólk á öllum aldri og úr öllum stéttum og stöðum þjóðfélagsins sækir í leiklistarstarfið farveg fyrir listræna hæfileika sína, vaxa að trú á eigin getu og finna á eigin skinni hvernig einbeitt vinna að sameiginlegu marki skilar árangri.

Á þessum miklu óvissutímum getur starfsemi af þessu tagi skipt sköpum.Aldrei hefur verið mikilvægara að efla

 

Þorgeir Tryggvason , Toggi
formaður

sjálfstraust þátttakenda og treysta þá í trú á gildi skapandi samvinnu. Nú sem aldrei fyrr þurfum við að rækta samlíðan okkar og hæfileika til að setja okkur í annarra spor. Skilja sálirnar og samfélagið og sannfærast um möguleika okkar til nýsköpunar og endurreisnar.

Til þessa er leikhúsið eitt sterkasta tækið. Bandalag íslenskra leikfélaga skorar á stjórnvöld að standa vörð um fjárhagsgrundvöll starfsemi áhugaleikfélaganna. Á móti heita leikfélögin því að halda áfram sínu metnaðarfulla starfi, landi og þjóð til gleði og hagsbóta
 

 

 
16. apríl 2009
 

KAFFILEIKHÚS - Undirbúningur

 

Laugardaginn 18. apríl kl. 17.00 verður smá hittingur með þeim sem ætla að taka þátt í Kaffileikhúsinu og Margt smátt í Halanum.

Þá förum við yfir það sem komið er og leik-lesum nokkur stuttverk sem Gunsó hefur valið.
Enn er tækifæri fyrir ykkur til að koma ykkur á framfæri við alla verkþætti þess að halda Kaffileikhús. T.d. sem leikstjórar, handritshöfundar, leikarar, búninga - og leikmyndahönnuðir, ljósamenn, hljóðmenn, framkvæmdastjórar eða í raun í öll hlutverk sem þarf við að koma Kaffileikhúsi á laggirnar

Á laugardaginn ræðst það svo af ykkur félagar góðir hvort af þessu verður eða ekki. Fáir hafa enn sem er gefið formlega kost á sér en þó er Gunsó tilbúinn til að leikstýra, nokkrir leikarar hafa gefið kost á sér og vonandi leikskáld líka. Einar er með tónlistaratriði. Svo þetta smá týnist til.

Allir eru velkomnir

 

Gunnar Gunnarsson, Gunsó
sem McMurphy í Gaukshreiðrinu

 
Ef þú kemst ekki en vilt taka þátt þá eru tengiliðir: Gunsó gunso52@gmail.com gsm 867-6603, eða Ása Hildur asahildur@internet.is, gsm 862-4276
 
 
6. apríl 2009
 
KAFFILEIKHÚS Í MAÍ
 

Gunnar Gunnarsson í hlutverki Malvólíó

Gunsó í hlutverki Malvólíó í Sjeikspírs Karnivalinu

 
26. mars sl. var haldinn vel lukkaður félagsfundur þar sem ýmis brýn mál voru rædd. Þar var m.a. ákveðið að halda Kaffileikhús í maí. Hugmyndin er að félagsmenn hefðu þar tækifæri til að spreyta sig í nýjum hlutverkum. T.d. sem leikstjórar, handritshöfundar, leikarar, búninga- og leikmyndahönnuðir, ljósamenn, hljóðmenn, framkvæmdastjórar eða í raun í öll hlutverk sem þarf við að koma Kaffileikhúsi á laggirnar.

Strax á fundinum kom í ljós að einn félaganna langar að spreyta sig við leikstjórn, nokkrir vildu leika, tveir voru með handrit og fleiri vildu leggja lið á einn eða annan hátt.

Á fundinum var Gunnari Gunnarssyni, Gunsó, falið að halda utan um þetta.

Hugmyndin er að sýna kannski 3 stuttverk og hafa svo tónlistaratriði, uppistand, gjörning eða hvað annað sem félagar vilja koma á framfæri á milli. Byrjað verður að æfa á fullu strax eftir páska.

Þar sem við vitum að Halafélögum er ýmislegt til lista lagt þá auglýsum við nú eftir fleirum til að taka þátt.

Langar þig til að spreyta þig við ? :

 
 

Leikstjórn, áttu handrit sem kominn er tími til að viðra, langar þig til að leika, lýsa sýningu, vinna hljóðmynd, gera leikmynd, hanna búninga, vera fjölmiðlafulltrúi, sjá um miðasölu, baka kökur , sjá um kaffisölu, skipuleggja, koma salnum í réttan búning, finna props, gera veggspjöld og auglýsingar, vera ritari, hvísla, áttu tónlistaratriði sem þú vilt koma á framfæri, ljóð eða gjörning ? Eða eitthvað fleira sem við höfum gleymt að telja upp hér?

Endilega hafið samband sem fyrst við Gunsó eða Ásu Hildi, svo við vitum úr hverju við höfum að moða. Þau munu svo hafa samband við þá sem skrá sig til að ákveða nánari dagsetningar. En nú þarf að vinna hratt, það er ljóst.

Tengiliðir: Gunsó gunso52@gmail.com gsm 867-6603, eða Ása Hildur asahildur@internet.is, gsm 862-4276

 
 
SVARTFUGL
 

Á félagsfundinum var líka ákveðið að taka fyrir næsta vetur Svartfugl, eftir Gunnar Gunnarsson. Ágústa Skúladóttir leikstjóri mun gera eigin leikgerð við söguna og vinna hana út frá sögumanni.

Sögulegur bakgrunnur Svartfugls er eitthvert frægasta morðmál Íslandssögunnar, svokölluð Sjöundármorð. Í bókinni er dregin upp skörp mynd af íslensku samfélagi um aldamótin 1800, stéttskiptingu þess, blindri réttvísi kirkju, kóngs og embættismanna og harðneskjunni sem einkenndi aðstæður alþýðu manna.

Svartfugl hefur verið kölluð „fyrsta alvöru glæpasaga á Íslandi“ og hefur í sér alla þessa hefðbundnu glæpasögudrætti; dularfullt mannshvarf, morð, forboðna ást, „leynilöggu“ (prestinn í þessu tilviki) sem hefur ekki alveg hreina samvisku í eigin ástamálum og rotið réttarkerfi. Svartfugl er ástarsaga í aðra röndina og í henni er að finna hinn sígilda ástarþríhyrning og það fleiri en einn. Svartfugl er sannsöguleg þ.e. lýsir atburðum, sem áttu sér stað í raun og veru.

 

 

 
27. mars 2009
 
Ávarp Alþjóða leiklistardagsins, 27. mars 2009
 

Leiklistarsamband Íslands hefur ávallt fengið íslenskan leikhúslistamann til að semja sérstakt ávarp í tilefni Alþjóða leiklistardagsins. Hefur sú hefð skapast að það hafi verið flutt af höfundi í útvarpi þann dag, sem og af stóra sviði Þjóðleikhússins fyrir sýningu. Þá hafa leikhúslistamenn um allt land stigið fram fyrir tjald leikhúsa sinna og flutt ávarpið íslenska þetta kvöld. Ávarpið semur að þessu sinni Sigrún Edda Björnsdóttir leikkona.

Frá árinu 1962 hefur Alþjóða leiklistardagurinn verið haldinn hátíðlegur um allan heim. Þá hefur heimskunnur leikhúslistamaður verið fenginn til að semja ávarp í tilefni dagsins af Alþjóða leiklistarstofnuninni, ITI, sem hefur aðsetur í Unesco-byggingunni í París. Að þessu sinni er það brasilíski leikhúslistamaðurinn Augusto Boal sem semur alþjóðaávarpið í tilefni dagsins.

 

 

Ágætu leikhúsunnendur.

Hvers vegna viljum við hafa leikhús? Þetta furðulega fyrirbæri sem þó hefur fylgt manninum frá ómunatíð. Í dag, þann 27. mars er Alþjóða leiklistardagurinn. Hann er haldinn hátíðlegur um heim allan í þeim tilgangi að vekja athygli á leiklistinni og mikilvægi hennar í mannlegu samfélagi. Því er vert að staldra við og velta ofangreindri spurningu fyrir sér.

  Sigrún Edda Björnsdóttir
Sigrún Edda Björnsdóttir
 

Það fallegasta sem sagt hefur verið um leiklistina og hægt er að taka undir af heilum hug er að löngun mannsins til að leika, sé sprottin af þörf hans til tengjast því sem býr innra með öllum mönnum, þessu innra ljósi sem við búum öll yfir og finnum svo sterkt fyrir. Það er vegna þessarar tengingar, þessarar samkenndar sem við getum skapað nýjan veruleika. Veruleika leikhússins. Fátt er eins dýrmætt fyrir leikara og að finna þessa tengingu og taka þátt í leiksýningu sem á erindi við áhorfandann og hreyfir við honum, hvort sem er í gleði eða sorg. Við mannfólkið erum þelið sem draumar spinnast úr, þessir dýrmætu draumar sem eru eins og gullþráður í því margbrotna mynstri sem tilvist okkar mótast af. Þessi þráður kemur fram í skáldskapnum, myndmálinu, tónlistinni og hreyfingunni. Ekkert er leiklistinni óviðkomandi. Hún á að endurspegla tilvist okkar, sameina upplifun okkar og stuðla að samkennd og skilningi meðal manna.

Í viðleitni sinni til að tjá og spegla veruleikann leitar leiklistin að mismunandi formum. Þess vegna er engin ein tegund leiklistar mikilvægari en önnur.

Til er gamanleikur, harmleikur, grímuleikur, látbragðsleikur, brúðuleikur, einleikur, trúðleikur. Götuleikhús, kaffileikhús, pólitískt leikhús, stofuleikhús, barnaleikhús, vasaleikhús, útileikhús, skuggaleikhús, lítið leikhús, stórt leikhús, útvarpsleikhús, meira að segja ósýnilegt leikhús. Og áhorfendur hafa dregist að leikhúsinu í gegnum aldirnar, alveg eins og þið gerið hér í kvöld. Hvers vegna? Jú, við viljum verða fyrir áhrifum. Við viljum hlæja saman, gráta saman, láta hreyfa við hugsunum okkar og hugmyndum. Og í síbreytilegum heimi þar sem hugmyndafræði og áherslur geta kollsteypst á einni nóttu, eins og við þekkjum svo vel einmitt nú, á leikhúsið brýnt erindi. Það er ekki síst á þannig tímum sem við höfum þörf fyrir leikhús og því ber leikhúsið mikla ábyrgð. Leiklist breytir kannski ekki heiminum en við getum öll verið sammála um að í leikhúsi búi leyndur sannleikur sem hjálpar okkur í þeirri viðleitni að skilja líf okkar og viljann til að búa til betri heim.

Sigrún Edda Björnsdóttir

 
Augusto Boal:
Ávarp á alþjóða leiklistardaginn 27. mars 2009



Allt mannlegt samfélag er sýning og við ákveðin tækifæri býr þetta samfélag til sýningar. Það er sýning í sjálfri samfélagsgerð sinni og býr til sýningar eins og þá sem þú ætlar að sjá hér í kvöld.

Jafnvel þótt við komum ekki auga á það, þá eru mannleg samskipti byggð upp eins og í (leik)sýningu. Rýmisnotkun, líkamstjáning, orðaval og tónfall, framsetning hugsana og tilfinninga – allt sem við höfumst að á leiksviðinu, gerum við jafnframt í daglegu lífi: Allt er leiksvið.

  Augusto Boal
Augusto Boal
 
Brúðkaup og jarðarfarir eru sýningar, en einnig hversdagslegir siðir sem við þekkjum svo vel, að við áttum okkur ekki á því að þeir eru sýningar. Stórar hátíðarsamkomur eru sýningar og athafnir okkar við morgunverðinn eru það einnig. Að skiptast á kveðjum, óframfærin og varfærnisleg fæðing ástarinnar, eldheitar orrustur tilfinninganna, fundir Alþingis og samkomur stjórnarerindreka, - allt eru þetta sýningar.

Eitt höfuðhlutverk listar okkar er að benda á hinar hversdagslegu sýningar þar sem leikararnir eru jafnframt eigin áhorfendur, þar sem leiksvið og áhorfendasalur eru eitt. Öll erum við leikarar. Með því að leika lærum við að sjá það sem blasir við okkur hvern einasta dag  en sjáum samt ekki þar sem við erum ekki vön að skoða það.  Allt sem við þekkjum svo vel verður ósýnilegt  - en að leika er að varpa ljósi á  sviðið sem er okkar daglega líf.

Í september síðast liðnum urðum við óvænt vitni að leikrænni opinberun: Við sem héldum að við byggjum í tryggum heimi, þrátt fyrir stríð og þjóðarmorð, þrátt fyrir fjöldamorð og pyntingar, - í fjarlægum löndum. Okkur, sem lifðum í öryggi og vorum fullviss um að fjármunir okkar væru í öruggum höndum  virtra bankastofnana eða heiðvirðra verðbréfamiðlara, var nú sagt að þessir eignir okkar væru alls ekki lengur til, væru sýndarveruleiki, ömurlegur uppspuni einhverra viðskiptafræðinga sem hvorki voru sýndarveruleiki, áreiðanlegir né heiðvirðir.

Allt var bara léleg sýning með sorglegum söguþræði, þar sem nokkrir græddu mikið og margir töpuðu öllu. Stjórnmálamenn ríku landanna funduðu fyrir luktum dyrum og komu með töfralausnir. Og við, fórnarlömb ákvarðana þeirra, sitjum enn á aftasta bekk áhorfendasalarins.

Fyrir tuttugu árum síðan setti ég „Fedru“ eftir Jean Racine á svið í Ríó de Janeiró. Sviðsmyndin var fátækleg: Kálfskinn á gólfi og bambus allt um kring. Fyrir hverja sýningu sagði ég við leikarana: „Sögunni sem við höfum skáldað frá degi til dags lýkur þegar þið gangið inn fyrir bambusvegginn, inn á sviðið, og þá hefur ekkert ykkar leyfi til að ljúga. Sýningin er hinn faldi sannleikur.“

Þegar við virðum heiminn fyrir okkur handan við það sem við höfum fyrir augum okkar, sjáum við kúgara og hina kúguðu, alls staðar, í öllum samfélögum, hjá öllum þjóðflokkum, í öllum þjóðfélagsstéttum og hópum. Við sjáum óréttlátan og grimman heim.  Við verðum að búa til annan heim, vegna þess að við vitum að hann er hugsanlegur. Það er undir okkur komið að byggja af eigin rammleik upp slíkan heim með því að ganga á svið, bæði á svið leikhússins og lífsins.

Takið þátt í sýningunni sem nú er að hefjast og þegar þið komið heim til ykkar leikið þá með vinum ykkar eigin leikrit og skoðið það sem þið gátuð aldrei áður séð: Það sem er augljóst. Leikhús er ekki einungis viðburður, það er lífsmáti
Við erum öll leikarar. Að vera þegn er ekki einungis að búa í samfélagi.  Þegn er sá sem breytir því!

Þýðandi Hafliði Arngrímsson.
 
Augusto Boal er fæddur í Rio de Janeiro í Brasilíu 1931. Hann starfar sem leikstjóri, leikskáld og leikhúshugsuður og er einn fremsti leikhúsfrömuður heims. Hann þróaði leiklistaraðferðir á fimmta áratug síðustu aldar sem hann nefndi „Leikhús hinna kúguðu“ og breiddist út um alla latnesku Ameríku. Síðar þróaði hann „Ósýnilega leikhúsið“ og loks „Löggjafarleikhúsið“.  Hann var tilnefndur til Friðarverðlauna Nóbels 2008.
 
14. mars 2009
 
Félagsfundur
 

Fimmtudaginn 26. mars nk. kl. 20.00 verður félagsfundur í Halanum.

DAGSKRÁ:

  • Kaffileikhús i vor
  • Margt smátt 23. maí 2009
  • Nýráðinn leikstjóri kynntur og hugmynd að verkefni fyrir næsta leikár.
  • Framtíð Halaleikhópsins
  • Kaffiveitingar

Ljósaveisla

Laugardaginn 28. mars frá kl. 16.00 og fram eftir kvöldi, eftir því sem áhugi er fyrir hendi. Mun Magnús Addi ljósameistari hafa opið hús þar sem hann kynnir fyrir félögum möguleika ljósaborðsins og tæknibúnaðar Halaleikhópsins.

Alltaf vantar tæknimenn og þetta er kjörið tækifæri til að fá að fikta í tökkunum og sjá hvort þetta er eitthvað sem ykkur finnst spennandi að vinna að með leikhópnum

 

Aðalfundur Halaleikhópsins 2009

Verður haldinn fimmtudaginn 28. maí. dagskrá hefðbundin aðalfundarstörf.

Í ár á að kjósa um varaformann, gjaldkera, tvo varamenn, og tvo skoðunarmenn reikninga. Nú er kjörið tækifæri fyrir nýtt fólk að gefa kost á sér í stjórn. Nánar auglýst síðar.

 

 

 

 

2. mars 2009

   
Leikstjóri ráðinn til að leikstýra Halaleikhópnum
leikárið 2009 - 2010
   

Ágústa Skúladóttir leikstjóri hefur verið ráðinn til að leikstýra leikstýra Halaleikhópnum leikárið 2009 til 2010. Verið er að leita að verki og ýmsar spennandi hugmyndir uppi.

Hér sést þegar Ása Hildur Guðjónsdóttir formaður handsalar samninginn við Ágústu.

Áætlað er að halda félagsfund seinnipartinn í mars þar sem hugmyndir verða reifaðar.

Ágústa er Halaleikhópnum vel kunnug, hún var með leiklistarnámskeið haustið 2007 sem nefndist Sólóstund leikarans.

Hún stjórnaði Kaffileikhúsi í tengslum við 15 ára afmæli Halaleikhópsins en uppúr því starfi varð Hjólastólasveitin til. En sú sveit starfar nú sjálfstætt og hefur gert garðinn frægan.

  Ágústa Skúladóttir og Ása Hildur Guðjónsdóttir handsala samningnum

 

Ágústa Skúladóttir leikstjóri hefur unnið með einleikjaformið með góðum árángri og leikstýrði hún m.a. verðlaunaeinleikjunum Háaloft eftir Völu Þórsdóttur og Sellófón eftir Björk Jakobsdóttur.  Hún var uppistandari í London fyrir nokkrum árum og leikstýrði hér heima
uppistands sýningunni 5.stelpur.com sem sýnd var í Austurbæjarbíó. Ágústa hefur leikstýrt fjölda sýninga og má þar nefna trúðasýningunni Dauði og Jarðaber með félagi Flóna; Grimms hjá leikfélagi Kópavogs sem valin var athyglisverðasta áhugasýning ársins 2002;  Memento Mori  hjá Hugleik og Leikfélagi Kópavogs sem var fulltrúi Íslands á alþjóðlegu leikslistarhátíð áhugaleikhúsa  IATA sem haldin var Suður-Kóreu í ágúst á þessu ári;  Klaufar og Kóngsdættur sem hlaut Grímuna sem besta barnasýning ársins 2005 og Eldhús eftir máli sem hlaut
menningarverðlaun DV árið 2006. Ágústa hefur haldið fjölda námskeiða víða um heim og hefur í fjögur sumur verið kennari við leiklistarskóla Bandalagsins í Svarfaðardal.

 
 

 

19. jan. 2009
Fréttatilkynning:

Þann 31. janúar n.k. mun Halaleikhópurinn frumsýna leikritið Sjeikspírs Karnival í leikgerð Þrastar Guðbjartssonar, sem einnig leikstýrir sýningunni. Unnið upp úr þremur verkum Shakespears: ,Þrettándakvöldi, Draumi á Jónsmessunótt og Hinriki IV. Þetta er ærslafullur gamanleikur, sem gerist á einum degi í Illiríu á Karnivali hjá Orsínó greifa. Hann er dapur og því koma vinir hans og leika fyrir hann alls kyns gamanleiki, til að létta honum lífið. Við sögu koma margar af þekktustu gamanleikjapersónum Shakespears, eins og t.d. Malvólíó, Tóbías Búlki, Andrés Agahlýr o.fl.

Þetta er sem fyrr segir, eitt allsherjar grín frá upphafi til enda. 18 leikarar taka þátt í sýningunni og annar eins hópur stendur að baki þeim, við hin ýmsu störf. Halaleikhópurinn var stofnaður 27. september 1992 með það að markmiði að ,,iðka leiklist fyrir alla” og hefur starfað óslitið síðan.

Á þessum árum sem liðin eru frá stofnun Halaleikhópsins, hafa verið settar upp sýningar á hverju ári og stundum fleiri en ein og hafa þær jafnan vakið mikla athygli. Það má segja að Halaleikhópurinn hafi opnað nýja ,,vídd” í starfi leikhópa hér á landi, þar sem fengist er við leiklist á forsendum hvers og eins. Sýnt er í Halanum, Hátúni 12 105 Reykjavík. Nánari upplýsingar er að finna á vef Halaleikhópsins www.halaleikhopurinn.is

Ef þið skylduð hafa áhuga á að fá frekari upplýsingar jafnvel fá viðtöl þá er hægt að hafa samband við Þröst Guðbjartsson leikstjóra í síma: 862 - 4767

Stjórn Halaleikhópsins

 
7. janúar 2009
Sjeikspírs Karnival
 
Halaleikhópurinn æfir stíft þessa dagana Sjeikspírs Karnival eftir William Shakespears í leikgerð og leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Leikmynd er á lokastigi, tónlist nánast tilbúin, saumakonur sitja sveittar, ljósamenn hanga í rjáfrum, hönnuðir naga blýanta, fólk er á þönum með títuprjóna, skrúfjárn, fatapoka, gardínuhjól, penna, konfekt, sverð, trúðanef, sokkabuxur, málningarpensla og alls kyns undarlega pappíra svo fátt eitt sé nefnt. Æfingar ganga vel og miklar hlátursrokur glymja um húsið milli stresskasta. Stefnt er að frumsýningu 31. janúar nk.

Sjeikspírs Karnival er leikgerð Þrastar Guðbjartssonar unnin upp úr þrem verkum Shakespears Þrettándakvöldi, Draumi á Jónsmessunótt og Hinriki IV. Þetta er ærslafullur gamanleikur sem gerist á einum degi í Illiríu á Karnivali hjá Orsínó greifa. Hann er dapur og því koma vinir hans og leika fyrir hann alls kyns gamanleiki til að létta honum lífið.

Við sögu koma margar af þekktustu gamanleikjapersónum Shakespears, eins og td. Malvólíó, Tóbías Búlka, Andrés Agahlýr ofl. Leikritið fjallar í stórum dráttum um ástir, vonbiðla, misskilning og hrekkjabrögð. Tvíburar piltur og stúlka verða viðskila í hafvillu og brotsjó, þeim er bjargað sitt í hvoru lagi, og telja því hvort annað dáið. Stúlkan, Víola villir á sér heimildir með því að klæðast karlmannsfötum og gerast sendiboði Orsínó hertoga. Hann sendir hana (hann) með bónorð til Ólivíu greifaynju, sem hann þráir að eiga, og í stuttu máli fara hjólin að sjúast og Víola (Sesaríó) lendir í einum alsherjar misskilning og leysist ekki úr honum fyrr en í lokaatriðinu þegar bróðir hannar birtist.

Þetta er sem fyrr segir eitt allsherjar grín frá upphafi til enda. 19 leikarar taka þátt í sýningunni, og annar eins hópur stendur að baki þeim, við hin ýmsu störf.

 

 

 

 
 
 
Kærleikskúlan

 

Halaleikhópurinn sendir ykkur sínar bestu óskir um Gleðileg jól og farsælt komandi ár.

Við þökkum samstarfið og hlýjuna á liðnu ári. Og hlökkum til að sjá ykkur á nýárinu í Halanum.

Við stefnum að frumsýningu á Sjeikspírs Karnivali í lok janúar. Leikgerð og leikstjórn Þröstur Guðbjartsson.

 

 

 
26. nóv. 2008
Allt sem andann dregur
 

Ása Hildur, Guðný Alda og Kristín með KærleikskúlunaÁsa Hildur, Guðný Alda og Kristín með Kærleikskúluna

 

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra sæmdi Halaleikhópinn Kærleikskúlunni 2008. Magnús Geir Þórðarson Borgarleikhússtjóri afhenti Guðný Öldu Einarsdóttur leikkonu fyrsta eintakið við hátíðlega athöfn í Listasafni Reykjavíkur í dag.

Kærleikskúlan er í ár er hönnuð af Gjörningaklúbbnum sem nefnir hana ALLT SEM ANDANN DREGUR. Biskup Íslands blessaði kúluna. Gjörningaklúbburinn var með gjörning við móttökuna.

Tilgangur með sölu kúlunnar er að auðga líf fatlaðra barna og ungmenna með því að efla starfsemi Reykjadals. Nánari upplýsingar um Kærleikskúluna má finna á vef Styrktarfélagsins.

     

Kærleikskúlan er blásin upp af því dýrmætasta sem hverri lifandi manneskju er gefið - andardrætti.

Andinn í kúlunni er táknrænn fyrir hið ósnertanlega og andlega, langanir og þrár.

Kúlan er kysst þremur kossum sem fela í sér tjáningu ástar, vináttu og þakklætis.

Kyssum hvert annað

 

Kærleikskúlan 2008

 

 
 

 

 

 
2. nóv. 2008
Fréttatilkynning
 
1. samlestur á Karnivalinu
 
 

Halaleikhópurinn hefur nú hafist handa við nýtt leikverk fyrir þetta leikár og ber það vinnuheitið Shakespeare – Karnival. Byrjað var þann 1. nóvember í húsnæði leikhópsins að Hátúni 12.

Leikstjóri hópsins að þessu sinni er Þröstur Guðbjartsson, sem er einnig höfundur leikgerðarinnar en hún er unnin uppúr nokkrum verkum Shakespears, Þrettándakvöldi, Draumi á Jónsmessunótt og Hinrik fjórða. Sögusvið verksins verður byggt á Þrettándakvöldi og mun sagan gerast á einu kvöldi á Karnevali hjá Orsínó hertoga í Illeríu.

Stefnt er að því að frumsýna verkið í janúarlok.

27. okt. 2008
 
Gríma
Spennandi GLEÐILEIKUR í uppsiglingu!
 

Viltu starfa með glöðum hópi?. Nú á þessu krepputímabili er tilvalið að hjálpast að, við að halda uppi gleðinni. Bros og hlátur létta lífið. Það kostar lítið, en gefur mikið.

Orsínó greifi sem er aðalpersónan í Karnivalinu sem við erum að fara að æfa er dapur, því koma vinir hans og leika fyrir hann alls kyns gamanleiki til að létta honum lífið í Illiríu. Leikritið gerist á aðalgötunni og nálægri strönd þar sem Karnivalið fer fram. Þetta er leikgerð sem Þröstur Guðbjartsson leikstjóri hefur gert úr nokkrum verkum William Shakespeare, og eru þau úr: Þrettándakvöldi, Draumi á Jónsmessunótt, Hinrik fjórða og jafnvel fleiri leikritum. Söguþráður Þrettándakvölds, verður sem rauður þráður í gegnum sýninguna. Við gefum okkur þær  forsendur að þetta gerist allt á einu kvöldi á Karnivali, hjá Orsínó hertoga í Iliríu.

gríma
FYRSTI SAMLESTUR...

.....verður laugardaginn 1. nóv. kl. 14.00 í Halanum, Hátúni 12. Í verkinu eru minnst 14 leikarar og uppí ? Bæði er um að ræða stór og lítil hlutverk og sum án texta. Í handritinu eru 25 persónur, sami leikari getur tekið fleiri en eina. Nú er tækifæri til að leika sér og segja Kreppunni stríð á hendur með öflugum hóp. Eins og sjá má hér neðar þá þarf mun fleira til en leikara til að setja upp sýninguna og viljum við hvetja alla til að koma og fylgjast með á laugardaginn. Og láta stjórn vita ef þið viljið leggja okkur lið á einn eða annan máta. Allir eru velkomnir.

Við ætlum að haga æfingartímabilinu þannig að við æfum í nóvember, tökum svo frí í desember, en förum svo á fullt strax eftir áramót og stefnum að frumsýningu í lok jan. 2009.

Desember verður notaður til að klára leikmynd, búninga o.fl. sem viðkemur uppsetningunni.

Jóker

SKIPURIT:

 

Stjórn hefur verið að uppfæra skipuritið sem unnið var í fyrra og er hugsað til að dreifa álagi á félagsmenn og stjórn. Einnig til að auðvelda alla vinnu við starfsemi félagsins. Skipuritið má finna hér á vef Halaleikhópsins. einnig er hægt að nálgast það hjá stjórn.

Okkur vantar fólk í eftirfarandi embætti samkvæmt skipulagskránni og jafnvel ýmisleg fleira:

  • Framkvæmdastjóra sýningar
  • Miðasölustjóra
  • Leikskrárstjóra
  • Fjölmiðlafulltrúa
  • Aðstoðar leikstjóri
  • Kaffi og Þrifumsjón
  • Umsjónarmann förðunardeildar og förðunarfólk
  • Ljósameistara – hönnun og lýsing
  • Hljóðmann
  • Umsjónarmann búningardeildar
  • Umsjónamann sviðsmyndar - leikmyndar
  • Sviðs og leikmunavörður
  • Húsvörður
  • Saumakonur
  • Málara
  • Ljósmyndara
  • Einhvern til að taka upp sýninguna

Sjáumst hress á laugardaginn :-)

 
 
12. sept. 2008
 
Leiklistarnámskeið
 
Ása Hildur Guðjónsdóttir og Þröstur Guðbjartsson skrifa undir samninginn
 

Halaleikhópurinn heldur 20 tíma leiklistarnámskeið í október. Kennari verður Þröstur Guðbjartsson leikstjóri. 

Hann tekur fyrir:

  • Upphitun, bæði líkamleg og raddleg
  • Kontakt og traustæfingar
  • Einbeitingu
  • Raddæfingar, öndun og hljóð
  • Framsögn
  • Spuni hin mismunandi form hans æfð

Námskeiðið hefst 13. okt. og lýkur 25. okt. kennt verður mánudaga til fimmtudaga frá kl. 19.30 til 21.30 og frá 13.00 til 15.00 á laugardögum.

Skráning og nánari upplýsingar í síma 862-4276 og á info@halaleikhopurinn.is

Verð er 3000 kr. fyrir skuldlausa félagsmenn og 5000 kr. fyrir aðra.

Allir velkomnir.

 
 
15. sept. 2008
 
Fréttatilkynning:
 

Halaleikhópurinn er kominn á kreik eftir stutt sumarfrí. Þröstur Guðbjartsson hefur verið ráðinn leikstjóri fyrir sýningu vetrarins, jafnframt mun hann halda leiklistarnámskeið í október.

Halaleikhópurinn ætlar að þessu sinni að taka fyrir sýningu með þáttum úr nokkrum verkum Shakespears í Karnivalútsetningu sem samin er af leikstjóranum. Tekin verða fyrir atriði úr Þrettándakvöldi, Draumi á Jónsmessunótt og Hinriki fjórða jafnvel fleiri verkum. Inn í sýninguna verður fléttuð kraftmikill músík.

Þrettándakvöld verður sem rauður þráður gegnum sýninguna. Þær forsendur eru gefnar að verkið gerist allt á einni kvöldstund á Karnivali hjá Orsínó hertoga í Iliríu. Stefnt er að frumsýningu um mánaðarmótin janúar / febrúar 2009.

 
31. ágúst 2008
 
Shakespeare - Karnival
 
Þröstur Guðbjartsson og Ása Hildur Guðjónsdóttir skrifa undir samninga

Nú hefur Þröstur Guðbjartsson skrifað undir samning við Halaleikhópinn um að leikstýra okkur í vetur. Verkið sem taka á fyrir er leikgerð Þrastar og ber vinnuheitið Shakespeare - Karnival. Stefnt er að því að æfingar hefjist í byrjun nóvember og tekið frí í desember. Haldið svo áfram þar sem frá var horfið strax eftir áramót og frumsýna um mánaðarmótin jan. - feb. 2009.

Leikgerðin er unnin uppúr nokkrum verkum William Shakespeare, það er -   Þrettándakvöldi, Draumi á Jónsmessunótt, Hinrik fjórða og jafnvel fleirum leikritum. Söguþráður Þrettándakvölds verður sem rauður þráður í gegnum sýninguna. Við gefum okkur þær  forsendur að þetta gerist allt á einu kvöldi á Karnivali hjá Orsínó hertoga í Iliríu.

Félagsfundur

Félagsfundur verður haldinn
fimmtudaginn 11. september 2008 kl. 20.00
Í Halanum, Hátúni 12

Dagskrá fundar:

  • Kosning fundarstjóra og fundarritara.
  • Kynning á nýráðnum leikstjóra Þresti Guðbjartssyni
  • Shakespear – Karnival
  • Námskeið í október
  • Önnur mál.
Kaffiveitingar á eftir
 
 
22. ágúst 2008
 
Vetrarstarfið framundan
 
Ása Hildur Guðjónsdóttir formaður og Þröstur Guðbjartsson handsala samninginn

Á opnum stjórnarfundi í gær var góð mæting. Þröstur Guðbjartsson kom og kynnti sig og þær hugmyndir sem hann hefur um verkefnaval næsta leikárs. Rætt var fram og til baka um þær hugmyndir sem uppi eru og niðurstaðan varð sú að stefna að því að taka Shakespear fyrir næsta vetur. Þröstur á leikgerð þar sem hann tók kómíska hluta nokkurra verka og setti saman í eitt í bland við músik. Yfirskriftin verður Karnival. Mest eru þetta brot úr Þrettándakvöldi og Draum á Jónsmessunótt og þó fleira týnt til.

Stefnt er að hafa æfingartímabilið með svipuðu sniði og í fyrra auk þess að hafa námskeið í haust, líklega seinnipartinn í október.

Félagsfundur er áætlaður fyrripartinn í september þar sem þetta verður kynnt nánar.

Vinnudagur

Ástandið á Halanum okkar ástkæra er vægast sagt draslaralegt þessa dagana, því boðum við vinnudag sunnudaginn 24. ágúst. Ekki er búið að ganga frá leikmynd og búningum og tæknidóti eftir ferðalagið í Þjóðleikhúsið.

Taka þarf til í öllum hornum, henda, raða, þrífa já og mála anddyrið okkar í bjartari lit. Við vonum að sem flestir sjái sér fært að koma og hjálpa til einhvern part dagsins, við verðum við frá kl. 12.00 og fram eftir degi eða þar til þessu líkur. Magnús þarf líka aðstoð við að hengja upp ljósabúnað ofl. Því fleiri sem koma því fyrr verðum við búin.

Allir geta eitthvað, einhver þarf að laga kaffið og einhver að skemmta mannskapnum á meðan, svo endilega fjölmennið og takið með ykkur vinnufúsar hendur.

Hægt verður að horfa á leikinn á breiðtjaldi uppi í matsal.

 
 
13. ágúst 2008
 

Hala - Fréttir ágúst 2008

 
Leikstjóri ráðinn

Þegar velja á leikstjóra er úr vöndu að ráða. Í ár tók stjórn Halaleikhópsins þá ákvörðun að auglýsa eftir leikstjóra.   Átta umsækjendur sóttu um, þar af sex sem eru mjög hæfir. Nú var úr vöndu að ráða og buðum við þeim að koma á fund stjórnar og kynna sig og sínar hugmyndir af leikhópnum og væntanlegu verkefnavali. Því er stjórn búin að sitja sveitt í góða veðrinu í sumar og fara yfir alla möguleika. Eftir mikla yfirlegu var ákveðið að ráða Þröst Guðbjartsson.

Næsta skref er svo að velja hvaða verkefni við tökum fyrir og hvort við viljum hafa námskeið í haust eða eitthvað annað

Opinn stjórnarfundur

Fimmtudaginn 21. ágúst kl. 20.00 verður opinn stjórnarfundur þar sem Þröstur kemur og kynnir sínar hugmyndir að verkefnavali og hlustar á okkar. Því viljum við bjóða öllum þeim Halafélögum sem áhuga hafa að koma og taka þátt í umræðunni og koma sínum hugmyndum að. Saman veljum við síðan verk sem við vinnum í vetur.

Þá verður einnig tekin ákvörðun um hvort við höldum leiklistarnámskeið í haust eða hvort við gerum eitthvað allt annað. Gott væri að heyra frá félagsmönnum þeirra óskir og hugmyndir.

BÍL stefnir að því að halda Margt smátt í haust líklega 10. – 12. okt. Gaman væri að koma með atriði frá Halaleikhópnum. Einhverjar hugmyndir ?

Fyrirkomulag æfingatímabilsins í fyrra gafst mjög vel og stefnum við að því að hafa svipað fyrirkomulag í ár. Sem sagt hefja æfingar í nóvember og æfa í 4. vikur. Taka svo hlé fram yfir áramót og stefna að frumsýningu um mánaðarmótin jan. / feb. Hugsanlega taka eina eða tvær æfingar í desember.

Félagsfundur verður svo í september. Nánar auglýst síðar.

Vinnudagur

Ástandið á Halanum okkar ástkæra er vægast sagt draslaralegt þessa dagana, því boðum við vinnudag sunnudaginn 24. ágúst. Ekki er búið að ganga frá leikmynd og búningum og tæknidóti eftir ferðalagið í Þjóðleikhúsið.

Taka þarf til í öllum hornum, henda, raða, þrífa já og mála anddyrið okkar í bjartari lit. Við vonum að sem flestir sjái sér fært að koma og hjálpa til einhvern part dagsins, við verðum við frá kl. 12.00 og fram eftir degi eða þar til þessu líkur. Magnús þarf líka aðstoð við að hengja upp ljósabúnað ofl. Því fleiri sem koma því fyrr verðum við búin.

Allir geta eitthvað, einhver þarf að laga kaffið og einhver að skemmta mannskapnum á meðan, svo endilega fjölmennið og takið með ykkur vinnufúsar hendur.

 
 
18. júní 2008
 

Hala - Fréttir júní 2008

 

Mikil og blómleg starfsemi hefur verið í vetur hjá Halaleikhópnum. Fyrst ber að nefna vel lukkað námskeið sem Ágústa Skúladóttir stjórnaði og nefndi „Sólóstund leikarans.“ Þá tók afmælishátíðin við með tilheyrandi hullumhæi. Edda V. Guðmundsdóttir leikstýrði stuttverkinu „Hvað drap asnann?“, sem Ármann Guðmundsson gaf okkur í afmælisgjöf. Ágústa stjórnaði uppistandshóp. Og Vilhjálmur Hjálmarsson var veislustjóri m.m.

Í okt. voru svo tvö kaffileikhúskvöld. Í vetur var keypt nýtt tölvuljósaborð, bætt við ljósabúnað og keyptur tónmöskvi undir dyggri stjórn Vilhjálms. Einar Andrésson sá um að endurnýja hljóðkerfið og gaf okkur það að hluta til.

Þá tóku við æfingar á Gaukshreiðrinu , eftir Dale Wasserman í leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar. Það var frumsýnt 9. feb. s.l. og sýndar voru 11 sýningar í Halanum. Gaukshreiðrið var svo valið af Þjóðleikhúsinu, sem Athyglisverðasta áhugaleiksýning leikársins 2007 – 2008 og sýndum við „Gaukshreiðrið“ á Stóra sviði Þjóðleikhússins 4. júní s.l..

Þrátt fyrir þessi miklu umsvif síðustu mánuði, erum við ekki af baki dottin og nú erum við búin að auglýsa eftir leikstjóra fyrir næsta leikár. Meðan það er að skýrast, ætlum við að safna kröftum og hafa einn Haladag í Krika 19. júlí n.k.

Breyting á innheimtu árgjalda:

Á aðalfundi Halaleikhópsins 24. maí sl. var samþykkt að hækka árgjaldið í 1800 kr. og senda út greiðsluseðla 1. ágúst nk. Ákveðið var jafnframt að veita 300 kr. afslátt, til þeirra sem greiða fyrir þann tíma. Sem sagt, ef þú greiðir með því að millifæra fyrir 1. ágúst, er árgjaldið 1500 kr. Reiknisnúmer okkar er 1175- 26 – 9976 og kennitalan 421192-2279. Vinsamlega setjið ykkar kennitölu án bandstriks í skýringareitinn.

 

Haladagur í Krika

Haladagur verður laugardaginn 26. júlí í Krika við Elliðavatn frá kl. 14.00 og fram eftir nóttu, ef svo ber undir. Engin formleg dagskrá er komin ennþá, en allar tillögur vel þegnar. Undanfarin ár hafa Halafélagar komið saman og dundað sér við leiki og leiklestur. Síðan hefur verið grillað, hver og einn kemur með á grillið og við hjálpumst að við að gera það sem þarf.

Ef þú hefur einhver skemmtiatriði eru þau velkomin. Endilega fjölmennið og leyfið leiknum að sleppa lausum hala. Kriki er sumarhús, sem Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu á og stendur við Elliðavatn. Það stendur við Elliðahvammsveg. Á www.kriki.bloggar.is má sjá nánari leiðarlýsingu og ýmislegt um Krika.

 

 
25. maí 2008

Uppreisn gegn kerfinu

 

Sýning   Halaleikhópsins,  Gaukshreiðrið, í leikgerð Dale  Wasserman á  skáldsögu Ken Kesey, í þýðingu Sonju B. Jónsdóttur var valin athyglisverðasta  áhugasýning leikársins  sem brátt er á enda. Að venju verður sýningin  sem fyrir valinu varð sett upp í  Þjóðleikhúsinu en Gaukshreiðrið  verður sýnt á Stóra sviðinu miðvikudaginn 4.  júní nk. Leikstjóri  sýningarinnar er Guðjón Sigvaldason.
 
Markmið   Halaleikhópsins er að „iðka leiklist fyrir alla“. Hópurinn hefur  sett upp  sýningar ár hvert sem margar hverjar hafa vakið mikla  athygli. Hjá  Halaleikhópurnum er fengist við leiklist á forsendum  hvers og eins. Um leið  hefur hópurinn opnað augu almennings fyrir  því að fatlað fólk getur einnig,  þrátt fyrir ýmsar hindranir, leikið  á sviði eins og allir aðrir. Þar með hefur hópurinn á sinn hátt,  eytt fordómum í garð fatlaðra. Fötlun er eitthvað sem  gleymist í  þessu áhugaleikfélagi.
 
Gaukshreiðrið fjallar um   eðli geðveikrahæla, stöðu sjúklinga og hvað felst raunverulega í því  að vera  geðveikur. Þetta er ógnvekjandi, grátbroslegt en um leið  sprenghlægilegt verk  sem notið hefur gífurlegra vinsælda um árabil.  Verkið endurspeglar  uppreisnaranda sem ríkjandi var í hinum vestræna  heimi á seinni hluta sjöunda  áratug síðustu aldar. Vistmanni á  geðsjúkrahúsi misbýður harðstjórn og  miskunnarleysi á stofnuninni og  ákveður að gera uppreisn. Kerfið bregst ókvæða  við og allt er gert  til að brjóta uppreisnina á bak aftur, hún fær óvæntan og   óhugnanlegan endi og verður upphafsmanni hennar dýrkeypt.  
 
Í  umsögn dómnefndarinnar kom fram að verkefnaval  leikhópsins beri vott um mikinn  metnað, kjark og stórhug:  ,,Leikhópurinn, sem hefur það að markmiði að ,,iðka  leiklist fyrir  alla” fagnaði fimmtán ára afmæli sínu á þessu leikári. Rétt  eins og  Halaleikhópurinn hefur auðgað leiklistarflóru áhugaleikfélaga og   leiklistar í landinu almennt, öðlast hið þekkta leikrit  Gaukshreiðrið  nýjar víddir í meðförum leikhópsins. Fötlun  leikenda stendur engan veginn í  vegi fyrir túlkun á verkinu, heldur  þvert á móti auðgar hana og styrkir.  Styrkur sýningarinnar felst  þannig ekki síst í sterkri liðsheild, þar sem hver  einstaklingur fær  að njóta sín á eigin forsendum, þó hlutverkin séu vissulega   mismunandi stór. Framsögn er til mikillar fyrirmyndar og sama má  segja um  hlustun og allan samleik. Langmest mæðir á þeim Gunnari  Gunnarssyni (Gunsó) í  hlutverki Randle P. Murphy og Sóleyju Björk  Axelsdóttur í hlutverki Ratchet  hjúkrunarkonu. Bæði áttu þau góðan  leik. Leikmynd, búningar, lýsing, hljóðmynd  og förðun myndaði sterka  heild og einstaklega sannfærandi umgjörð um   sýninguna.”

 

Miðasala fer fram í Þjóðleikhúsinu og á midi.is

 
 
4. maí 2008
 
Athyglisverðasta áhugaleiksýning
leikársins 2007 - 2008
Þjóðleikhúsið  

Val Þjóðleikhússins á athyglisverðustu áhugaleiksýningu leikársins hefur nú farið fram fimmtánda leikárið í röð. Dómnefnd Þjóðleikhússins í ár var skipuð Tinnu Gunnlaugsdóttur þjóðleikhússtjóa og Vigdísi Jakobsdóttur, deildarstjóra fræðsludeildar Þjóðleikhússins. Dómnefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að velja að þessu sinni:

Gaukshreiðrið
eftir Dale Wasserman
í leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar
og meðförum Halaleikhópsins

 

Umsögn dómnefndar:
Verkefnaval Halaleikhópsins ber vott um mikinn metnað, kjark og stórhug. Leikhópurinn, sem hefur það að markmiði að „iðka leiklist fyrir alla“ fagnaði fimmtán ára afmæli sínu á þessu leikári. Rétt eins og Halaleikhópurinn hefur auðgað leiklistarflóru áhugaleikfélaga og leiklistar í landinu almennt, öðlast hið þekkta  leikrit Gaukshreiðrið nýjar víddir í meðförum leikhópsins. Fötlun leikenda stendur engan veginn í vegi fyrir túlkun á verkinu, heldur þvert á móti auðgar hana og styrkir. Styrkur sýningarinnar felst þannig ekki síst í sterkri liðsheild, þar sem hver einstaklegur fær að njóta sín á eigin forsendum, þó hlutverkin séu vissulega mismunandi stór. Framsögn er til mikillar fyrirmyndar og sama má segja um hlutun og allan samleik.

Langmest mæðir á þeim Gunnari Gunnarssyni (Gunsó) í hlutverki Randle P. Murphy og Sóleyju Björk Axelsdóttur í hlutverki Ratchet hjúkrunarkonu. Bæði skiluðu þau hlutverkum sínum mjög vel. Leikmynd, búningar, lýsing, hljóðmynd og förðun myndaði sterka heild og einstaklega sannfærandi umgjörð um sýninguna.

 
Frétt af vef BÍL má sjá HÉR
Frétt af vef Þjóðleikhússins má sjá HÉR
 
 

Aðalfundur Halaleikhópsins
verður haldinn
laugardaginn 24. maí 2008 kl. 14.00
í Halanum, Hátúni 12

 

Dagskrá fundar samkvæmt lögum félagsins:

  • Kosning fundarstjóra og fundarritara.
  • Inntaka nýrra félaga.
  • Skýrsla formanns.
  • Afgreiddir endurskoðaðir reikningar félagsins.
  • Afgreiðsla tillagna sem borist hafa fundinum, svo sem lagabreytingar.
  • Starfsemi næsta leikárs.
  • Kosning stjórnar.
  • Árgjald ákveðið.
  • Önnur mál.

 

Núverandi stjórn er:

Formaður: Ásdís Úlfarsdóttir kosin til tveggja ára 2006, gefur ekki kost á sér áfram.
Varaformaður: María Jónsdóttir kosin til tveggja ára 2007, segir af sér.
Ritari: Ása Hildur Guðjónsdóttir kosin til tveggja ára 2006, gefur kost á sér áfram.
Gjaldkeri: Kristín R. Magnúsdóttir kosin til tveggja ára 2007, á eitt ár eftir.
Meðstjórnandi: Hanna Margrét Kristleifsd. Kosin til eins árs 2007, gefur ekki kost á sér áfram.

Varamaður 1: Guðríður Ólafsdóttir kosin til tveggja ára 2006, gefur kost á sér áfram.
Varamaður 2: Stefanía B. Björnsdóttir kosin til tveggja ára 2007, á eitt ár eftir.
Varamaður 3: Kristinn Guðjónsson kosinn til tveggja ára 2007, segir af sér.

Skoðunarmenn reikninga:
Grétar Pétur Geirsson og Ragnar Gunnar Þórhallsson báðir kosnir til tveggja ára 2007

Því er auglýst eftir framboðum í eftirfarandi embætti:
Formann til tveggja ára.
Varaformann til eins árs.
Ritara til tveggja ára. Ása Hildur gefur kost á sér áfram þar.
Meðstjórnanda til tveggja ára.
Varamann til tveggja ára. Guðríður gefur kost á sér áfram þar.
Varamann til eins árs.

Áhugasamir hafi samband við stjórn.

Skv. lögum félagsins geta allir félagsmenn gefið kost á sér í þessi embætti.

Vakin er athygli á 4. gr. laga félagsins, þar sem kveðið er á um að einungis skuldlausir félagar hafa kosningarétt á aðalfundum.

 

 

 
5. maí 2008
 
Afhending heiðursskjalsins  

Halaleikhópurinn sendi tvo fulltrúa á aðalfund BÍL sem var haldinn í Skagafirði 4. - 5. maí sl. Ásu Hildi Guðjónsdóttur og Stefaníu B. Björnsdóttur. Fundurinn var viðburðarríkur fyrir Halaleikhópinn þar sem á honum var tilkynnt um útslit í keppninni um athyglisverðustu áhugaleiksýningu leikársins 2008. Við hrepptum tiltilinn í ár fyrir Gaukshreiðrið eftir Dale Wasserman í leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar.  Sjá nánar á forsíðunni.

Á myndinni hér til vinstri sést þegar Þjóðleikhússtjóri afhendir fulltrúum okkar viðurkenningarskjalið. Frá vinstri: Tinna Gunnlaugsdóttir, Ása Hildur Guðjónsdóttir, Stefanía B. Björnsdóttir og Gunnar Gunnarsson.

     
 
30. apríl 2008
Aðalfundur Halaleikhópsins
 
Verður haldinn laugardaginn 24. maí kl. 14.00, í Halanum, Hátúni 12.

Dagskrá fundar samkvæmt lögum félagsins:

  • Kosning fundarstjóra og fundarritara.
  • Inntaka nýrra félaga.
  • Skýrsla formanns.
  • Afgreiddir endurskoðaðir reikningar félagsins.
  • Afgreiðsla tillagna sem borist hafa fundinum, svo sem lagabreytingar.
  • Starfsemi næsta leikárs.
  • Kosning stjórnar.
  • Árgjald ákveðið.
  • Önnur mál.

 

Núverandi stjórn er:

Formaður: Ásdís Úlfarsdóttir kosin til tveggja ára 2006, gefur ekki kost á sér áfram.
Varaformaður: María Jónsdóttir kosin til tveggja ára 2007, segir af sér.
Ritari: Ása Hildur Guðjónsdóttir kosin til tveggja ára 2006, gefur kost áfram.
Gjaldkeri: Kristín R. Magnúsdóttir kosin til tveggja ára 2007, á eitt ár eftir.
Meðstjórnandi: Hanna Margrét Kristleifsdóttir kosin til eins árs 2007, gefur ekki kost á sér áfram.

Varamaður 1: Guðríður Ólafsdóttir kosin til tveggja ára 2006, gefur kost á sér áfram. Varamaður 2: Stefanía B. Björnsdóttir kosin til tveggja ára 2007, á eitt ár eftir.
Varamaður 3: Kristinn Guðjónsson kosinn til tveggja ára 2007, segir af sér.

Skoðunarmenn reikninga:

Grétar Pétur Geirsson og Ragnar Gunnar Þórhallsson báðir kosnir til tveggja ára 2007

 

Því er auglýst eftir framboðum í eftirfarandi embætti:

Formann til tveggja ára.
Varaformann til eins árs.
Ritara til tveggja ára. Ása Hildur gefur kost á sér áfram þar.
Meðstjórnanda til tveggja ára.
Varamann til tveggja ára. Guðríður gefur kost á sér áfram þar.
Varamenn til eins árs.

Skv. lögum félagsins geta allir félagsmenn gefið kost á sér í þessi embætti.
Sjá Lög félagsins

Kosningarétt á aðalfundi hafa einungis skuldlausir félagsmenn. Sjá 4. gr..

Ein lagabreytingartillaga liggur fyrir, hana má sjá HÉR

 

Nýir félagar velkomnir

 

 

 
1. apríl 2008
Stuttmyndagerð
 

Hópur Halafélaga hefur áhuga á að fara í stuttmyndagerð. Við viljum kanna hvort það eru ekki fleiri sem vilja taka þátt.

Allar hugmyndir eru opnar og möguleikarnir endalausir. Nú er bara að virkja sköpunarkraftinn.

Áhugasamir um verkefnið eru boðaðir til skrafs og ráðagerða í Halann, fimmtudaginn 3. apríl nk. kl. 20.00.

Allir sem áhuga hafa á stuttmyndagerð eru velkomnir.

Arnar, Árni og Stefanía.

  Skopmynd
 
27. mars 2008
Alþjóðlegi leiklistardagurinn
 

Frá árinu 1962 hefur Alþjóða leiklistardagurinn verið haldinn hátíðlegur um allan heim. Þá hefur heimskunnur leikhúslistamaður verið fenginn til að semja ávarp í tilefni dagsins af Alþjóða leiklistarstofnuninni, ITI, sem hefur aðsetur í Unesco-byggingunni í París. Að þessu sinni er það kanadíski leikhúsfrömuðurinn, leikstjórinn og leikarinn Robert Lepage sem semur alþjóðaávarpið í tilefni dagsins.

Lesa ávarp Roberts Lepage

 
Robert Lepage

Íslandsdeild ITI, Leiklistarsamband Íslands, hefur ávalt fengið íslenskan leikhúslistamann til að semja sérstakt ávarp í tilefni Alþjóða leiklistardagsins. Hefur sú hefð skapast að það hafi verið  flutt af höfundi í útvarpi þann dag, sem og af stóra sviði Þjóðleikhússins fyrir sýningu. Þá hafa leikhúslistamenn um allt land stigið fram fyrir tjald leikhúsa sinna og flutt ávarpið íslenska þetta kvöld.

Ávarpið semur að þessu sinni leikarinn og leikstjórinn Benedikt  Erlingsson.

Lesa ávarp Benedikts

 
Benedikt Erlingsson
 
22. feb. 2008
 
Gaukshreiðrið
 
eftir Dale Wasserman, byggt á skáldsögu Ken Kesey (1962),
í þýðingu Sonju B. Jónsdóttur og leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar.
Frumsýnt 9. feb. 2008.
 
Sýningum er lokið, sýndar voru 11 sýningar.
 

Umsagnir áhorfenda:

“Þar þótti mér takast einkar vel til, leiktilþrif með ágætum, framsögn öll jafn góð, leikið af lífi og sál, hin ýmsu tilbrigði sjúkdómsins dregin í dagsljós fram” Helgi Seljan. Velvakandi, Morgunblaðinu 27. feb. 2008

Þið toppið ykkur alltaf á hverju ári" Halldóra Malin Pétursdóttir

 
Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir: Upplifun
 
Aðalbjörg Gunnarsdóttir: „Mér finnst þetta frábært verk og vel leikið, leikmyndin æðisleg og bara allt svo metnaðarfullt!“ Meira hér
 
28. feb. 2008
Fréttatilkynning:

Í febrúar hefur Halaleikhópurinn sýnt leikritið Gaukshreiðrið „One Flew Over the Cuckoo's Nest“ eftir Dale Wasserman, byggt á skáldsögu Ken Kesey, í leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar.

Leikritið endurspeglar þann uppreisnaranda sem ríkti í vestrænum heimi á seinni helmingi sjöunda áratugar síðustu aldar. Það fjallar um eðli geðveikrahæla, stöðu sjúklinganna innan þeirra eins og litið var á geðsjúkdóma um og upp úr miðri síðustu öld. Gaukshreiðrið er í senn ógnvekjandi, grátbroslegt og sprenghlægilegt og þetta samspil er fyrst og fremst ástæðan fyrir hinum miklu vinsældum þessa heimsfræga verks.

Umsagnir áhorfenda:

„ Þið toppið ykkur alltaf á hverju ári" Halldóra Malin Pétursdóttir

„Mér finnst þetta frábært verk og vel leikið, leikmyndin æðisleg og bara allt svo metnaðarfullt!“ Aðalbjörg Gunnarsdóttir.

„Ég skemmti mér konunglega, sveiflaðist á milli þess að hlægja og vera við það að klökkna á stundum“ Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir.

“Þar þótti mér takast einkar vel til, leiktilþrif með ágætum, framsögn öll jafn góð, leikið af lífi og sál, hin ýmsu tilbrigði sjúkdómsins dregin í dagsljós fram” Helgi Seljan.

Nú fer sýningum fækkandi á þessu þekkta verki, en leita má frekari upplýsinga www.halaleikhopurinn.is

 
29. janúar 2008
 
Leikarar í Gaukshreiðrinu

 

Fréttatilkynning

 

Þann 9. febrúar nk. mun Halaleikhópurinn frumsýna Gaukshreiðrið "One Flew
Over the Cuckoo's Nest" eftir Dale Wasserman, byggt á skáldsögu Ken Kesey, í
þýðingu Sonju B. Jónsdóttur. Leikstjóri verksins er Guðjón Sigvaldason.

Leikritið endurspeglar þann uppreisnaranda sem ríkti í vestrænum heimi á seinni helmingi sjöunda áratugar síðustu aldar. Það fjallar um eðli geðveikrahæla, stöðu sjúklinganna innan þeirra eins og litið var á geðsjúkdóma um og upp úr miðri síðustu öld.

Gaukshreiðrið er í senn ógnvekjandi, grátbroslegt og sprenghlægilegt og þetta samspil er fyrst og fremst ástæðan fyrir hinum miklu vinsældum þessa heimsfræga verks.
Halaleikhópurinn er áhugaleikhópur fyrir alla, fatlaða sem ófatlaða og hefur að markmiði að "iðka leiklist fyrir alla".

Sýnt verður í Halanum, Hátúni 12 (Sjálfsbjargarhúsinu). Miðapantanir verða á midi@halaleikhopurinn.is og í síma 552-9188.
Nánari upplýsingar um Gaukshreiðrið er að finna HÉR

 
21. janúar 2008

Æfingar og leikmyndasmíði o.fl. o.fl.

 

Óhætt er að segja að mikið gangi á hjá okkur þessa dagana. Áætluð frumsýning á Gaukshreiðrinu er 9. febrúar svo nú er spítt í lófana og unnið dag og nótt við að smíða leikmynd, mála, leita að búningum og leikmunum. Nú og svo er æft flesta daga vikunnar og allt gengur samkvæmt áætlun. Enn vantar okkur hitt og þetta og þiggjum hjálp við að útvega þá muni og fatnað sem vantar. Hér til hægri er tengill á lista yfir það, hann er uppfærður reglulega, ef þið getið aðstoðað við að útvega eitthvað af þessu þá hafið samband við Ásu Hildi í síma 692-3630 eða sendið okkur tölvupóst.
     
Æfing í fullum gangi
Hér er Gunnsó að sjóða saman hlið
Æfing í fullum gangi
Tóbías, Elísa og Daníel í smá pásu
Póló og Bjarni ætla að bora í loftið
Tóbías, Elísa og Daníel í smá pásu
Póló og Bjarni ætla að bora í loftið
Mikið er þrifið á sjúkrahúsinu
Ása Hildur gramsar í búningageymslunni
Mikið er þrifið á sjúkrahúsinu
Ása Hildur gramsar í búningageymslunni
Maggi ljósamaður smíðar hillu undir græjurnar
Svei mér þá held hann hafi fengið raflost
Maggi ljósamaður smíðar hillu undir græjurnar
Svei mér þá held hann hafi fengið raflost
Leikarar taka nótur eftir æfingu og Villi ljósálfur vill vera með á myndinni
Sjúklingaráðsfundur
Leikarar taka nótur eftir æfingu og Villi ljósálfur vill vera með á myndinni
Sjúklingaráðsfundur
Sóley og Arnar í góðum gír
Og indjáninn á kústinum
Sóley og Arnar í góðum gír
Og indjáninn á kústinum
Kiddi er ansi lunkinn á ryksugunni
Kiddi og Elísa mála á fullu
Kiddi er ansi lunkinn á ryksugunni
Kiddi og Elísa mála á fullu

 

10. janúar 2008
Líf og fjör hjá Halaleikhópnum

Æfingar á Gaukshreiðrinu eru komnar á fullt aftur eftir jólafrí. Mikið gengur á niður í leikhúsinu okkar. Æft er stíft flesta daga vikunnar, þess á milli eru smiðir, málarar og tæknimenn á fullu. Allt gengur þetta ljómandi vel og mikill hugur í hópnum. Enn vantar okkur þó manneskju sem getur haft yfirumsjón með búningunum okkar í Gaukshreiðrinu og tæknimann sem mun vinna með ljósamanni.

Hér til hægri er listi yfir allskyns leikmuni sem okkur vantar og gott ef þið gætuð kíkt á hann og athugað hvort þið getið aðstoðað okkur við að útvega þá muni. Ef svo er hafið samband við aðstoðarleikstjórann Ásu Hildi í GSM 692-3630 eða á asahildur@halaleikhopurinn.is .

Stefnt er að frumsýningu í byrjun febrúar. Og verður auglýst nánar hér þegar nær líður. Hjólastólasveitin okkar þ.e. uppistandararnir verða með sýningu einnig í byrjun febrúar í tengslum við List án landamæra. Nánar auglýst síðar.

Myndir af æfingaferlinu koma hér inn á næstu dögum

 

 
 
jol

Gleðileg jól og farsælt komandi ár.

Þökkum samstarfið á árinu.

jol

 

 

 

27. nóv. 2007
 

Fréttatilkynning frá Halaleikhópnum

 
Mynd frá æfingu 21. nóv. 2007

  Mynd frá æfingu 21. nóv. sl. Ljósmyndari Árni Salomonsson

 

Í vetur mun Halaleikhópurinn taka til sýningar Gaukshreiðrið „One flew over the Cuckoo's nest“ eftir Dale Wasserman, byggt á skáldsögu Ken Kesey, í þýðingu Sonju B. Jónsdóttur. Leikstjóri er Guðjón Sigvaldason. Æfingar eru þegar hafnar.

Leikritið endurspeglar þann uppreisnaranda sem ríkti í vestrænum heimi á seinni helmingi sjöunda áratugar síðustu aldar. Það gerist á ríkisreknu geðsjúkrahúsi þar sem einn vistmaður æsir sjúklinga á stofnuninni með sér í uppreisn gegn því sem hann telur vera miskunnarlaust harðstjórnarkerfi. Kerfið bregst ókvæða við og ekkert er látið ógert til að brjóta uppreisnina á bak aftur.

Það fjallar um eðli geðveikrahæla, stöðu sjúklinganna innan þeirra eins og litið var á geðsjúkdóma um og upp úr miðri síðustu öld.

Gaukshreiðrið er í senn ógnvekjandi, grátbroslegt og sprenghlægilegt og þetta samspil er fyrst og fremst ástæðan fyrir hinum miklu vinsældum þessa heimsfræga verks.

 

30. nóv. 2007
 
     

Jólabíó í Halanum!

Föstudaginn 7. desember verða 2 jólamyndir sýndar á stóru tjaldi í Halanum, Hátúni 12. Bíónefndin upplýsir ekki hér hvaða myndir verða sýndar en örugglega verða þær skemmtilegar.
Sú fyrri byrjar kl. 20.00 og sú seinni kl. 22.00

Boðið verður uppá heitt súkkulaði og vöfflur með rjóma.

Aðgangseyrir: Gott jólaskap og jólalegt hugarfar.
Staður: Halinn, Hátúni 12.
Allir hjartanlega velkomnir, meðan húsrúm leyfir.

 Jólabíónefndin

 

Bíókvöld - Fílamaðurinn
Föstudaginn 23. nóv. nk.

     

Föstudaginn 23. nóvember verður eitt af eldri verkum Halaleikhópsins sýnt á stóru tjaldi í Halanum.

,,Fílamaðurinn” eftir Bernard Pomerance í leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar. Það var frumsýnt 27. febrúar 2004. Nú eru einmitt hafnar æfingar undir leikstjórn hans á Gaukshreiðrinu svo okkur fannst við hæfi að rifja upp hans fyrsta leikstjórnarverkefni hjá Halaleikhópnum.

Húsið opnar klukkan 19:40 en sýningin byrjar klukkan 20:00.

Ekki verða seldar veitingar en gaman væri að allir kæmu með eitthvað og yrði allt sett saman á borð og allir geta fengið sér.

 
Stefanía Björnsd., Pálína Benjamínsd., Örn Sigurðss., Jón Eiríkss., Vilhjálmur Guðjónss., Hanna M. Kristleifsd., Guðný Alda Einarsd. og Björk Guðmundsd. í hlutverkum sínum.
 

Aðgangseyrir: Gott skap og jákvætt hugarfar.

Allir hjartanlega velkomnir, meðan húsrúm leyfir.

Bíónefndin.

     
15. nóv. 2007

Gaukshreiðrið - samlestur

Laugardag kl. 13.00 - 16 .00
Allir velkomnir

 
mynd frá 1. samlestir á Gaukshreiðrinu

Fyrsti samlestur á Gaukshreiðrinu One Flew Over the Cockoo's Nesteftir Dale Wasserman byggt á skáldsögu Ken Kesey (1962) í þýðingu Sonju B. Jónsdóttur, var á sunnudaginn. Nokkuð góður hópur, gamlir sem nýjir félagar mættu og leiklásu verkið og skemmtu sér vel.

Gaukshreiðrið er mannmargt leikrit og því vantar heilmikinn mannskap til að setja þetta verk á svið. Bæði til að leika og ekki síður í hin ýmsu hlutverk á æfinga og sýningaferlinu.

Guðjón Sigvaldason mun leikstýra okkur, hann er okkur vel kunnur því þetta er í þriðja sinn sem við ráðum hann til að leikstýra verki í fullri lengd, auk þess sem hann hefur verið tvisvar með leiklistarnámskeið hjá okkur.

 

Nýjir félagar eru sérlega velkomnir sem og allir áhugamenn um leiklist.

Nánari upplýsingar um leikritið og leikstjórann má finna HÉR

 

9. nóv. 2007
Gaukshreiðrið - samlestur

Sunnudaginn 11. nóv. nk. kl. 16.00
 
Gaukshreiðrið  

verður fyrsti samlestur á Gaukshreiðrinu One Flew Over the Cockoo's Nesteftir Dale Wasserman byggt á skáldsögu Ken Kesey (1962) í þýðingu Sonju B. Jónsdóttur.

Gaukshreiðrið er mannmargt leikrit og því vantar heilmikinn mannskap til að setja þetta verk á svið. Bæði til að leika og ekki síður í hin ýmsu hlutverk á æfinga og sýningaferlinu.

Guðjón Sigvaldason mun leikstýra okkur, hann er okkur vel kunnur því þetta er í þriðja sinn sem við ráðum hann til að leikstýra verki í fullri lengd, auk þess sem hann hefur verið tvisvar með leiklistarnámskeið hjá okkur.

 

Nýjir félagar eru sérlega velkomnir sem og allir áhugamenn um leiklist.

Nánari upplýsingar um leikritið og leikstjórann má finna HÉR

 

4. nóv. 2007
 
Bíókvöld - Gullna Hliðið
 

Föstudaginn 9. nóvember verður eitt af eldri verkum Halaleikhópsins sýnt á stóru tjaldi í Halanum.  Gullna Hliðið eftir Davíð Stefánsson í leikstjórn Eddu V. Guðmundsóttur. Það var frumsýnt 16. nóv. 1996 og nú verður haldið uppá 11 ára afmælið.

Húsið opnar klukkan 19:40 en sýningin byrjar klukkan 20:00.

Ekki verða seldar veitingar en gaman væri að allir kæmu með eitthvað og yrði allt sett saman á borð og allir geta fengið sér.

Aðgangseyrir: Gott skap og jákvætt hugarfar.

Allir hjartanlega velkomnir, meðan húsrúm leyfir.

Bíónefndin.

 

 

2. nóv. 2007
Félagsfundur

Fimmtudaginn 8. nóv. 2007 kl. 20.00
 

Dagskrá fundar:

  • Kosning fundarstjóra og fundarritara.
  • Fundargerð síðasta félagsfundar lesin.
  • Skipulagsskrá.
  • Gaukshreiðrið.
  • Önnur mál.
 

Guðjón Sigvaldason leikstjóri mun mæta á fundinn og kynna Gaukshreiðrið og hvernig vinnu kringum það verður háttað. Mikilvægt er að þeir sem hafi áhuga á að taka þátt mæti.

Nýir félagar eru velkomnir.

Allar nánari upplýsingar um Gaukshreiðrið er að finna HÉR
 
7. okt. 2007
Kaffileikhús 12. og 14. okt. nk. kl. 20.30
 
Í tilefni af 15 ára afmæli Halaleikhópsins verður kaffihúsakvöld í Halanum, Hátúni 12. föstudaginn 12. okt. og sunnudaginn 14. þ.m. og hefjast þau kl. 20.30.
 
Leifur Leifsson  
Örn Sigurðsson
Leifur Leifsson  
Örn Sigurðsson
 

Félagar í Halaleikhópnum munu flytja afrakstur af námskeiði sem haldið var nú á haustdögum undir stjórn Ágústu Skúladóttur og bar nafnið  „ Sólóstund leikarans”.

Einnig verður ljóðalestur og sýnt stuttverkið „Hvað drap asnann” eftir Ármann Guðmundsson í leikstjórn Eddu V. Guðmundsdóttur.

Frítt er inn og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.

  Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir
   
Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir
 
7. okt. 2007
 
Heiðursfélagarnir ofl.
 
29. sept. sl. hélt Halaleikhópurinn uppá 15 ára afmæli sitt með veglegri veislu. Við það tækifæri voru upphafsmenn að stofnun Halaleikhópsins gerðir að heiðursfélögum. Og heiðruð minning látins félaga. Einnig var vígt nýtt tölvuljósaborð, ljósabúnaður og hljóðkerfi. Nánari upplýsingar um afmælið má finna HÉR.
Laugardaginn 6. okt. sl. tókum við þátt í leikslistarhátíðinni Margt smátt í Borgarleikhúsinu þar sem fjórir félagar tróðu uppi með Hjólastólasveitina sem var frumsamið uppistandi, undir leikstjórn Ágústu Skúladóttur. Meira um það HÉR. Á vef BÍL mun svo koma gagnrýni á verkin sem tóku þátt næstu daga, svo fylgist vel með þar.
 
3. okt. 2007
Margt Smátt 2007 í Borgarleikhúsinu

Margt smátt 2007

Þann 6. október nk. verður Margt smátt, stuttverkahátíð Bandalags íslenskra leikfélaga, haldin í Borgarleikhúsinu. Í þetta skiptið sýna sex leikfélög alls 15 þætti og eru það allt ný íslensk verk, samin af fólki í leikfélögunum sjálfum.

Það eru Freyvangsleikhúsið, Halaleikhópurinn, Hugleikur, Leikfélag Kópavogs, Leikfélag Mosfellssveitar og Leikfélagið Sýnir sem taka þátt í Mörgu smáu þetta árið. Hátíðin fer fram á Litla sviðinu og hefst klukkan 14:00. Miðaverð er aðeins 1.000 krónur. Sjá nánar HÉR

 
 
26. sept. 2007
HALALEIKHÓPURINN 15 ÁRA
 

Fimmtudaginn 27. september nk verður Halaleikhópurinn 15 ára. Halaleikhópurinn er áhugaleikhópur fatlaðra og ófatlaðra og hefur það að markmiði að „iðka leiklist fyrir alla“

Ýmislegt er á döfinni hjá Halaleikhópnum. Nú í september hefur Ágústa Skúladóttir verið með uppistandsnámskeið. Afrakstur þess verður að hluta til sýndur á afmælishátíð Halaleikhópsins og einnig á stuttverkahátíðinni „Margt Smátt“ þann 6. okt. nk. í Borgarleikhúsinu. Stefnt er að því að halda tvö kaffileikhúskvöld um miðjan okt. og nokkur bíókvöld þar sem upptökur af eldri uppfærslum hópsins verða sýndar. auglýst síðar.

Í vetur mun Halaleikhópurinn setja upp Gaukshreiðrið eftir Dale Wasserman byggt á skáldsögu Ken Kesey og mun Guðjón Sigvaldason leikstýra verkinu. Æfingar hefjast í byrjun nóvember og stefnt er að frumsýningu í lok janúar. Sjá nánar HÉR

 
 

 

8. sept. 2007

Tveir leikstjórar eru komnir til starfa hjá Halaleikhópnum. Ágústa Skúladóttir er með námskeið sem ber yfirskriftina Sólóstund leikarans og hófst 1. sept nk. Stefnt er að sýna afrakstur þess á afmælishátíð Halaleikhópsins sem nálgast óðfluga. Sjá nánar HÉR
 


Hér er hópurinn saman kominn. Efri röð frá vinstri: Eyrún, Ágústa, Guðný Alda,Krístín, Jón Þór, Daníel, Kristinn 4, Kristinn 3, neðri röð: Kristinn 2, Kolbrún Dögg, Guðríður, Sóley og Örn.

   

Guðjón Sigvaldason hefur verið ráðinn til að leikstýra Gaukshreiðrinu eftir Dale Wasserman. Áætlað er að hefja æfingar í nóvember og frumsýna kringum mánaðarmótin jan./feb. 2008.

Hér sést þegar Ásdís Úlfarsdóttir formaður handsalar samninginn við Guðjón.

Verið er að vinna síðu um Gaukshreiðrið á vefinn og má finna þar ýmsan fróðleik um verkið. Síðan er þó enn í vinnslu.

Auk þessarra tveggja leikstjóra eru ýmsir aðrir leikstjórar á sveimi hjá Halaleikhópnum þessa dagana enda margt framundan næsta mánuðinn. Komum með frétt um það næstu daga.

 

 

3. sept. 2007

Þankaroksfundur

Verður á miðvikudagskvöldið 5. sept. nk. kl. 20.30 í Halanum vegna fyrirhugaðrar uppsetningar Halaleikhópsins á Gaukshreiðrinu.

 

Allir sem hafa áhuga á þessu verki, hvort sem þeir ætla að vera með eða ekki, eru velkomnir. Guðjón Sigvaldason leikstjóri kemur og segir okkur frá sínum hugmyndum og við fáum tækifæri til að koma með okkar hugmyndir. Rætt verður um tímasetningar, leikmynd, búninga og fl. og fl. sem hugsanlega brennur á okkur.

Í vetur munum við sem sagt, setja upp Gaukshreiðrið (One Flew Over the Cuckoo's Nest) eftir Dale Wasserman byggt á skáldsögu Ken Kesey (1962) , í þýðingu Sonju B. Jónsdóttur. Við erum búin að ráða Guðjón Sigvaldason leikstjóra til að leikstýra okkur. Æfingar hefjast í byrjun nóvember og stefnt er að frumsýningu í lok janúar. Tekið verður frí í desember og hafist handa strax eftir áramót.

 

Gaukshreiðrið endurspeglar á óviðjafnanlegan hátt þann uppreisnaranda sem ríkti í vestrænum heimi á seinni helmingi sjöunda áratugar síðustu aldar. Það gerist á ríkisreknu geðsjúkrahúsi þar sem einn vistmaður æsir sjúklinga á stofnuninni með sér í uppreisn gegn því sem hann telur vera miskunnarlaust harðstjórnarkerfi. Kerfið bregst ókvæða við og ekkert er látið ógert til að brjóta uppreisnina á bak aftur, hún fær vægast sagt óvæntan og óhugnanlegan endi og verður upphafsmanni hennar dýrkeypt.
Það fjallar um eðli geðveikrahæla, stöðu sjúklinganna innan þeirra og hvað felist raunverulega í geðveiki. Kannski á sumt við enn þann dag í dag. Í verkinu er velt upp spurningunni hvort raunveruleg andleg heilun fáist með því að húka inni á geðveikrahæli fjarri venjulegu lífi og láta kerfið ákveða hvað komi sjúklingunum best.

Gaukshreiðrið er í senn ógnvekjandi, grátbroslegt og sprenghlægilegt og þetta samspil er fyrst og fremst ástæðan fyrir hinum feikimiklu vinsældum þessa heimsfræga verks.

 

 

30. ágúst 2007

Sólóstund leikarans

er yfirskrift námskeiðs sem hefst laugardaginn 1. sept. nk. kl. 13.00 til 15.00.

 

Í mörg ár höfum við verið að kvarta yfir því að komast ekki á leiklistarskóla BÍL sökum slæms aðgengis. Nú í ár ákváðum við að snúa vörn í sókn og fá einn vinsælasta kennara skólans Ágústu Skúladóttur til að kenna hjá okkur.

Á laugardaginn hefst leiklistarnámskeið hjá Halaleikhópnum með yfiskrifinni Sólóstund leikarans. Námskeiðið mun standa yfir í september og ljúka með því að atriði úr því verða notuð á afmælishátið Halaleikhópsins 29. sept. nk.

Verð er 2000 kr. fyrir skuldlausa félagsmenn og fyrir aðra bætist félagsgjaldið við. Allir eru
velkomnir. Kennt verður á þeim tímum sem skráðir nemendur koma sér saman um í fyrsta tímanum. Líklega tvö kvöld í viku og annan hvorn helgardaginn.

 

Markmið námskeiðs er að hver þátttakandi semji eða hanni sitt eigið sólóatriði. Unnið verður með ýmsar aðferðir til að finna þann stíl sem hentar hverjum og einum. Sem dæmi má nefna;

1.  Uppistand-  frumsamið efni þar sem viðkomandi veltir fyrir sér þeim spaugilegu hliðum lífsins sem er honum efst í huga þessa dagana ( t.d gæludýrahald, stjórnmál, tískan, tónlist, leiðinlegir eða hjálpsamir nágrannar, matarboð hjá tengdó, flugvélamatur, hvað sem er)

2. Leikflutt efni eftir annan höfund - að finna nýjan og óvæntan karakter sem hefur sínar eigin persónulegu leiðir til fara með þekkt eða óþekkt efni eftir annan höfund.

3.  Stund án orða - að búa til áhugaverðan heim fyrir áhorfendann. Þar er hægt að leika sér með hljóð, tölvur, grímur, brúður og margt fleira.

Möguleikarnir eru endalausir og þrátt fyrir yfirskrift námskeiðs - Sólóstund - þá er mikilvægur liður þess að hugmyndum og þróun atriðs sé deilt með liðsheild.

Ágústa Skúladóttir leikstjóri hefur unnið með einleikjaformið með góðum árángri og leikstýrði hún m.a. verðlaunaeinleikjunum Háaloft eftir Völu Þórsdóttur og Sellófón eftir Björk Jakobsdóttur.  Hún var uppistandari í London fyrir nokkrum árum og leikstýrði hér heima
uppistands sýningunni 5.stelpur.com sem sýnd var í Austurbæjarbíó. Ágústa hefur leikstýrt fjölda sýninga og má þar nefna trúðasýningunni Dauði og Jarðaber með félagi Flóna; Grimms hjá leikfélagi Kópavogs sem valin var athyglisverðasta áhugasýning ársins 2002;  Memento Mori  hjá Hugleik og Leikfélagi Kópavogs sem var fulltrúi Íslands á alþjóðlegu leikslistarhátíð áhugaleikhúsa  IATA sem haldin var Suður-Kóreu í ágúst á þessu ári;  Klaufar og Kóngsdættur sem hlaut Grímuna sem besta barnasýning ársins 2005 og Eldhús eftir máli sem hlaut
menningarverðlaun DV árið 2006. Ágústa hefur haldið fjölda námskeiða víða um heim og hefur í fjögur sumur verið kennari við leiklistarskóla Bandalagsins í Svarfaðardal.

 

23. ágúst 2007


Ásdís Úlfarsdóttir og Ágústa Skúladóttir
 

Í kvöld var undirritaður samningur við Ágústu Skúladóttur leikkonu um að halda 20 tíma námskeið í september fyrir Halaleikhópinn. Námskeiðið mun byggja á sólóleik, uppistandi ofl. Námskeiðslýsing kemur hér á næstu dögum. 

Kostnaður er 2000 kr. fyrir skuldlausa félagsmenn, hjá öðrum bætist félagsgjaldið við.
Skráning er hafin.

Um Ágústu:

Ágústa Skúladóttir lærði leiklist hjá Monicu Pagneux í Paris og Philippe Gauliere í London. Einnig tók hún mastersnámskeið hjá Theatre de Complicite, John Wright, David Glass og Bruce Meyers. Hún starfaði í nokkur ár í London sem leikkona og uppistandari og er einn af stofnendum leikhópsins Icelandic Take Away Theatre og hefur unnið að 10 sýningum félagsins sem leikari, höfundur eða leikstjóri. Ágústa er um þessar mundir fastráðin leikstjóri hjá Þjóðleikhúsinu og leikstýrði þar m.a. Klaufum og kóngsdætrum sem fékk Grímuna sem besta barnasýningin 2005. Síðustu uppsetningar Ágústu hjá Þjóðleikhúsinu eru Halldór í Hollywood, Stórfengleg, Eldhús eftir máli og Umbreyting. Hún leikstýrði einnig Memento mori hjá Leikfélagi Kópavogs og Hugleik sem valin var framlag Íslands á NEATA-hátíðina 2006.

Myndir frá undirskriftinni og fundinum má sjá HÉR

 

 


23. ágúst 2007
Félagsfundur í kvöld kl.20.00 í Halanum, Hátúni 12

 

Dagskrá fundar:

  1. Ágústa Skúladóttir kynnir fyrirhugað uppistands / leiklistar - námskeið í september
  2. Afmælishátíðin
  3. Önnur mál
Nýir félagar eru velkomnir á fundinn
 

 

20. maí 2007

Aðalfundur Halaleikhópsins var haldinn 19. maí sl.

 
 

Þrír nýjir meðlimir voru kosnir inn í stjórn félagsins. Hanna Margrét Kristleifsdóttir var kosin meðstjórnandi, Stefanía Björk Björnsdóttir og Kristinn Guðjónsson voru kosin inn í varastjórn. Stjórnina í heild sinni má svo sjá hér undir flipanun Stjórn.

Smávægilegar breytingar á lögum félagsins urðu. Þau má sjá í heild sinni undir flipanum Lög.

Tilkynnt var á fundinum að búið væri að ráða Guðjón Sigvaldason til að setja upp Gaukshreiðrið næsta vetur.

Undirbúningur undir afmælisviku í haust er í fullum gangi, m.a. er stefnt að því að sýna nokkur stuttverk, vera með uppistandsnámskeið, halda afmælishátíð ofl. ofl.

Samþykkt var á aðalfundinum að birta framvegis á vefnum fundargerðir aðalfunda og félagsfunda svo brátt getið þið fylgst með þeim á vefnum.

 

. maí 2007

Aðalfundur Halaleikhópsins
verður haldinn 19. maí kl. 16.00
í Halanum, Hátúni 12

 

Dagskrá fundar samkvæmt lögum félagsins:

 

  • Kosning fundarstjóra og fundarritara.
  • Inntaka nýrra félaga.
  • Skýrsla formanns.
  • Afgreiddir endurskoðaðir reikningar félagsins.
  • Afgreiðsla tillagna sem borist hafa fundinum, svo sem lagabreytingar.
  • Starfsemi næsta leikárs.
  • Kosning stjórnar, varastjórnar, tveir skoðunarmenn reikninga.
  • Árgjald ákveðið.
  • Afmælisnefnd kynnir þær hugmyndir sem fram eru komnar.
  • Önnur mál.
Komin er fram ein tillaga til lagabreytinga hægt er að sjá hana Hér

Nýir félagar velkomnir.


9. maí 2007

Ályktun frá aðalfundi BÍL

 

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga, haldinn á Hallormsstað 5.-6. maí 2007, skorar á frambjóðendur til Alþingis að hlúa að blómlegu starfi áhugaleikfélaganna í landinu með því að kynna sér starf þeirra og auka þann fjárstyrk sem áhugaleikhúshreyfingin nýtur frá ríkisvaldinu. Áhugaleikhúsið er vagga leiklistar í landinu og hornsteinn menningar í hverju byggðarlagi.

Hjálpið okkur að halda landinu í byggð!

Samþykkt á Hallormstað 6. maí 2007


8. maí
Aðalfundur BÍL og úrslit í keppninni
um áhugaverðurstu áhugaleiksýningu ársins
 

Logo BÍL

 

 

 

 

 

 

Þjóðleikhúsið

Halaleikhópurinn sendi þrjá fulltrúa á aðalfund Bandalags íslenskra leikfélaga að Hallormstað helgina 4. til 6. maí sl. Þau Ásu Hildi Guðjónsdóttur, Hönnu Margréti Kristleifsdóttur og Örn Sigurðsson.  Dagskrá fundarins má sjá HÉR.

Aðildarfélög innan BÍL eru rúmlega 60 en einungis 14 félög sendu fulltrúa sína. Sem þó voru um 40 með stjórn.  Þetta var góður fundur þar sem fjölmörg mál voru rædd í þaula. Mikil umræða fór m.a. fram um gagnrýnisleysi Morgunblaðsins og þykir okkur miður að þeir skuli hættir allri gagnrýni og ekki standa við orð sín um að senda gagnrýnanda á sýningar ef það er frumflutningur íslensks leikrits eins og raunin var hjá Halaleikhópnum og fleirum í ár.

Einnig fór fram mikil umræða um hvort ætti að halda Margt smátt áfram en það er stuttverkahátíð í samvinnu við Borgarleikhúsið. Ákveðið var að stefna á hana um mánaðarmótin sept. - okt. í haust og hafa hana með glæsibrag.

Fyrirhuguð er einþáttungahátíð í tengslum við aðalfund 2008 svo nú er að bretta upp ermarnar og fara að finna verk á til að fara með.

Úrslit í keppninni um athyglisverðustu áhugaleiksýningu ársins var tilkynnt á hátíðarkvöldverðinum. En þetta er samstarfsverkefni við Þjóðleikhúsið.

Leikfélag Fljótsdalshéraðs vann að þessu sinni með leikritið Listin að lifa eftir Sigríðu Láru Sigurjónsdóttur í leikstjórn Odds Bjarna Þorkelssonar og mun þeim verða boðið að sýna verkið í Þjóðleikhúsinu nú í vor.

Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleikhússtjóri sagði að eitt af sex verkum sem komu til greina var: "Batnandi maður eftir og í leikstjórn Ármann Guðmundsson í meðförum Halaleikhópsins fyrir hressilega ádeilu á samskipti fatlaðra og ófatlaðra, tryggingakerfið og sértrúarsöfnuðina".  Nánari umsögn Tinnu er að finna HÉR

Þorgeir Tryggvason var kosinn formaður BÍL til tveggja ára nánari fréttir af aðalfundinum má finna HÉR

Ein stór ákvörðun til var tekin en það var að selja húsnæði Þjónustumiðstöðvarinnar og leita að nýju hentugra húsnæði þar sem m.a. aðgengi fyrir hreyfihamlaða væri í lagi. Húsnæðið á Laugavegi er orðið ansi viðhaldsfrekt og handritasafnið er í mjög svo ótryggu plássi þegar hugað er að hugsanlegum bruna og vatnsskemmdum. Nefnd var skipuð til að vinna áfram að varðveislu safnsins hvernig því væri best háttað sem og umsýslu kringum það.

Það kom enn einu sinni í ljós að mikilvægi þess að senda ávallt fulltrúa frá okkur til að gæta að aðgengismálum var þörf. Fyrirfram var talið að húsnæðið í Hallormstað væri aðgengilegt hreyfihömluðum. Þar hafa verið haldnar sumarbúðir fyrir fötluð börn.

Daginn fyrir fundinn kom annað í ljós, salernisaðstaða var óviðunandi. Þrátt fyrir það ákváðum við að mæta og gera það besta úr því sem komið var. Leikfélaga Fljótsdalshéraðs með Þráinn formann þeirra í fararbroddi allt sem það gat til bæta úr þeim vanköntum sem voru til staðar. Smíðuðu rampa hér og þar. Vel fór um okkur í dásamlegu umhverfi með góðu fólki. Og þökkum við gestgjöfunum höfðinglegar móttökur.

 

29. apríl 2007
Leiklistarveisla í Borgarleikhúsinu
 

List án landamæra

 

Halaleikhópurinn mun stíga á svið í Borgarleikhúsinu í leiklistarveislu í tengslum við List án Landamæra

Við munum sýna tvo þætti úr Batnandi maður sem við vorum að ljúka sýningum á.

Ásamt okkur sýna:

Leikhópurinn PERLAN sýnir Kærleikur er sterkasta vopnið.

Danshópur Hins Hússins sýnir dansa úr söngleiknum Grease

Einleikhúsið sýnir atriði úr Þjóðarsálinni er þar er Halar meðal leikenda.

Tjarnarleikhópurinn sýnir brot úr verkin Vont en það versnar

Blikandi stjörnur flytja söngdagskrá ásamt KK.

Leiklistarveislan hefst kl. 20.00 og það er frítt inn, fyrstir koma fyrstir fá.

 

Hér má finna nánari dagskrá List án Landamæra


26. apríl 2007
Sýningum á Batnandi manni er lokið.
 

List án landamæra

 

En við munum sýna brot úr verkinu á List án Landamæra í Borgarleikhúsinu 30. apríl nk. kl. 20.00 frítt er inn en fyrstir koma fyrstir fá það er pláss fyrir 15 hjólastóla.

Félagar úr Halaleikhópnum koma víða við á listahátíðinni. Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir er upphafsmaður gjörnings sem fer fram umhverfist Tjörnina í Reykjavík á laugardaginn kl.13.00. Og nefnsist tökum höndum saman. Sjá nánar hér.

Nokkrir Halar taka þátt í handverksmarkaði í Hinu húsinu milli 12 og 17 á laugardaginn.

Eflaust stinga þeir sér líka niður víðar svo endilega kynnið ykkur dagskrána vel og fjölmennum á þessa viðburði.

Sjá nánar dagskrá List án landamæra Hér

 

22. mars 2007

 

Alþjóðlegi leiklistardagurinn 27. mars 2007

Alþjóðasamtök leiklistarfólks, ITI, sem er ein af undirstofnunum UNESCO hafa frá 1962 haft 27. mars hvert ár sem Alþjóðlegan leiklistardag. Leiklistarsamband Íslands, sem er Íslandsdeild ITI, hefur frá stofnun sinni haldið upp á þennan dag og fengið hverju sinni málsmetandi listamann úr sínum röðum til að semja ávarp í tilefni dagsins. Að þessu sinni er það brúðuleikhúslistamaðurinn Bernd Ogrodnik, sem hefur búið starfað á Íslandi síðustu ár og hefur eftirminnilega auðgað íslenskt leikhúslíf.

 

Ávarp Bernd Ogrodnik í tilefni Alþjóða leiklistardagins, 27. Mars 2007

 

Mannsandinn er uppspretta endalausra vangaveltna, hláturs og gráturs, en það er sama hvernig við lítum á tilveru okkar, það er nær ómögulegt að skilja mikilfengleik hennar.

Stærsta gjöf listamannsins til mannkyns er ef til vill að geta á einhvern hátt tjáð það sem rökhugsun getur aldrei að fullu höndlað og kynslóðir vísindamanna ná aldrei að skýra að fullu – lífið sjálft.

Í æsku sýndum við leikrænu starfi hollustu, í viðleitni okkar til að höndla lífið... við kölluðum það leik. En svo gerðist eitthvað og við hættum þessum barnaskap, fyrir utan fá okkar sem gerðum hann að ævistarfi. Það sem gerðist var að hið vitræna tók yfir og strikaði yfir allar þversagnirnar...... og sjáið hvert það hefur leitt okkur.

Við lifum á tímum þar sem mannleg tilvera virðist vera komin að krossgötum, ójafnvægið milli anda og efnis er orðið svo mikið að það þrýstir á leiðréttingu. Þrátt fyrir, eða kannski frekar – vegna allra framfara mannanna, erum við komin nálægt sjálfs-tortímingu. Við höfum hreinlega ekki náð því að þroskast andlega í takt við tæknilegar framfarir......eða hættum við kannski bara að leika okkur?

 
   

Bernd Ogrodnik

En við eigum von, við búum enn að leikhúsinu sem þjónar okkur öllum. Á sviðinu getum við kafað djúpt í margbreytileika tilverunnar, ævintýri hins mikilfenglega mannlífs. Jafnvel er það eitt af síðustu ævintýrunum sem standa okkur enn til boða. Nú þegar við höfum klifið hæstu fjöll, sigrast á þyngdarlögmálinu og lært að fljúga og kafað niður á botn hins óendan