| |
|
|
|
 |
| |
|
eftir
William Shakespeare
í þýðingu Helga Hálfdánarsonar
Leikgerð og leikstjórn
Þröstur Guðbjartsson
Frumsýnt 31. jan. 2009 |
| |
Um
leikritið:
Leikgerð Þrastar
Guðbjartssonar er unnin upp úr þrem
verkum Shakespeare: Þrettándakvöldi,
Draumi á Jónsmessunótt og
Hinriki IV. Þetta er ærslafullur gamanleikur,
sem gerist á einum degi í Illiríu á Karnivali
hjá Orsínó greifa. Hann er dapur
og því koma vinir hans og leika fyrir
hann alls kyns gamanleiki, til að létta
honum lífið. |
Við sögu
koma margar af þekktustu gamanleikjapersónum
Shakespeare, eins og t.d. Malvólíó,
Tóbías Búlki , Andrés
Agahlýr o.fl. Leikritið fjallar í stórum
dráttum um ástir, vonbiðla, misskilning
og hrekkjabrögð. Tvíburar, piltur
og stúlka verða viðskila í hafvillu
og brotsjó, þeim er bjargað sitt í hvoru
lagi og telja því hvort annað dáið.
Stúlkan, Víóla villir á sér
heimildir með því að klæðast
karlmannsfötum og gerist sendiboði Orsínó
hertoga. Hann sendir hana (hann) með bónorð til Ólivíu
greifaynju, sem hann þráir að eiga
og í stuttu máli fara hjólin
að snúast og Víola (Sesaríó)
lendir í einum allsherjar misskilningi og
leysist ekki úr honum fyrr en í lokaatriðinu þegar
bróðir hennar birtist.
Þetta er sem fyrr segir, eitt allsherjar
grín frá upphafi til enda.
|
| |
Persónur og leikendur eru:
|
 |
Orsínó, hertogi í Illiríu:
Örn
Sigurðsson
|
 |
Ólivía, auðug greifaynja:
Auður Birgisdóttir
|
 |
Sebastian og Þispa:
Sólberg R. Haraldsson
|
 |
Viola, systir Sebastian og Sesaríó:
Stefanía Björk Björnsdóttir
|
 |
Herra Tobías Búlki ættingi Ólivíu:
Gunnar Freyr Árnason
|
 |
Herra Andrés Agahlýr:
Tobias Hausner
|
 |
Fjasti, fífl í þjónustu Ólivíu:
Pétur Orri Gíslason
|
 |
Malvólíó, bryti Ólivíu
og Skipstjóri vinur Víólu:
Gunnar Gunnarsson, Gunsó
|
 |
Kúríó, hirðmaður
hertogans, Falstaff og Varðmaður:
Kristinn Sveinn Axelsson
|
 |
Valentín, hirðmaður hertogans, Varðmaður og
Hólkur:
Jón Freyr Finnsson
|
 |
Antóníó:
Sigurður Ragnar Kristjánsson
|
 |
Prestur, Ljón:
Guðný Alda Einarsdóttir
|
 |
María, þerna Ólivíu:
Elísa Ósk Halldórsdóttir
|
 |
Pýarmus og Gæla:
Sóley Björk Axelsdóttir
|
 |
Múrveggur:
Björk Guðmundsdóttir
|
 |
Þulur
og Veitingakona:
Silja Kjartansdóttir |
 |
Sölumaður í Karnivalinu:
Gunnar Karl Jónsson |
 |
Tunglskin:
Telma Kjartansdóttir |
 |
Antóníó,
13. og 15. feb. 2009:
Gunnar Ingi Gunnarsson
|
|
|
|
| |
| Um leikstjórann: |
| |
Þröstur
Guðbjartsson er fæddur og uppalinn í Bolungarvík,
við Ísafjarðardjúp og bjó þar
fyrstu níu ár lífs síns,
en flutti svo suður á mölina þar
sem hann hefur verið allar götur síðan,
utan
tveggja ára í Húnavatnssýslu. Þröstur
fór eins og öll önnur börn á þeim
tíma í sveit á sumrin. Leið hans
lá vestur í Saurbæjarhrepp í Dalasýslu
og hefur sá staður verið honum annað heimili
síðan.
Þegar kom að því að velja
sér framtíð ákvað Þröstur
að leggja fyrir sig bakaraiðn og útskrifaðist
með sveinspróf frá Iðnskólanum í Reykjavík árið 1973
og hefur varla hrært í köku síðan.
Faðir hans og bræður eru húsamálarar
og hefur hann fengist við það, samhliða
leiklistinni frá því hann útskrifaðist
sem leikari árið 1978.
Hann hefur verið lausráðinn leikari
síðan þá og hefur tekið að sér
yfir 50 hlutverk hjá hinum ýmsu leikhópum
og húsum, einnig hefur hann leikstýrt
rúmlega 60 verkum hjá áhugaleikhúsum
og framhaldsskólum.
Þröstur ber hið síður
en svo algenga gælunafn Dösti og er þekktur
undir því nafni í leikhúsum
og í Bolungarvík. Ástæðan
fyrir nafninu er víst sú að Þröstur á 11
systkini og áttu þau í
erfiðleikum með að segja Þröstur,
en sögðu þá bara Dösti í staðinn. Þröstur
er úr hinni frægu tvíburafjölskyldu
frá
Bolungarvík en amma hans átti 15
börn, þar af átti hún
sex
sinnum tvíbura, sem verður að teljast þokkalegt
afrek.
|
|
|
| William
Shakespear: |
|
William Shakespeare
fæddist 26. apríl 1564 í Stratford-upon-Avon í Englandi,
og var grafinn þar fimmtíu og sex árum
síðar. Móðir hans Mary Arden,
var af vel efnuðu fólki komin en faðir
hans, John Shakespeare saumaði hanska og var
smáverslunar
maður. Hann giftist Anne Hathaway, sem var átta árum
eldri en hann og átti með henni þrjú börn.
Eitt þeirra lést 11 ára gamalt.
Shakespeare gekk ekki menntaveginn, en þrátt
fyrir það er hann talinn merkilegasta
og mikilvægasta skáld Englands allra
tíma
og ávallt kallaður þjóðskáld
Englendinga. Alls samdi hann 38 leikrit, 154 sonnettur
og önnur ljóð á árunum
1590 – 1613.
Hans er getið sem leikara og leikritahöfundar í skrám
leikflokksins Lord Chamberlain’s Men árið 1594,
en flokkurinn var einn fremsti leikflokkur Lundúna á sínum
tíma.
Helgi Hálfdánarson, hefur þýtt öll
leikrit Shakespeare á íslensku og
telja margir þýðingar hans einstakar. |
|
|
Aðrir
sem koma að sýningunni á einn
eða annan hátt : |

|
Leikstjóri,
hönnuður leikmyndar og búninga,
samsetning tónlistar:
Þröstur Guðbjartsson |
 |
Aðstoðarleikstjóri, Leikskrárstjóri
umsjón með heimasíðu,
miðapantanir, búningar, leikmynd, sýningarstjóri o.fl.:
Ása Hildur Guðjónsdóttir |
 |
Aðstoðarleikstjóri
í janúar,
íhlaupaleikari, sýningarstjóri
o.fl.:
Gunnar Ingi Gunnarsson |
 |
Ljósahönnun:
Magnús Addi Ólafsson |
 |
Ljósamaður:
William Valgeir Wiley |
 |
Hljóðmaður:
Hafsteinn Þór Guðmundsson |
 |
Ljósahönnun
og ráðgjöf:
Vilhjálmur Hjálmarsson |
 |
Framkvæmdastjóri,
leikmunir, o.fl.:
Kristín R. Magnúsdóttir |
 |
Ljósmyndari
á æfingum:
Kristinn Guðjónsson |
 |
Búningar,
saumar o.fl. :
Kristín M. Bjarnadóttir |
 |
Miðasölustjóri:
Guðríður Ólafsdóttir |
 |
Húsvörður,
altmuligtmand,
umsjón með leikmynd, ræstingar
o.fl.:
Einar Andrésson |
 |
Fjölmiðlafulltrúi,
ljósmyndari o.fl.:
Höskuldur Höskuldsson |
 |
Fjölmiðlafulltrúi:
Leifur Leifsson |
 |
Förðun:
Ólöf Kristín Helgadóttir
|
 |
Aðstoð við gerð leikmyndar:
Ingimar Atli Arnarson |
 |
Málari,
förðun, kaffi og þrif
o.fl.:
Stefanía Björk Björnsdóttir |
 |
Málari:
Arnar Ágúst Klemensson |
 |
Aðstoð við gerð leikmyndar,
hönnun og gerð plakats og póstkorta,
förðun o.fl.:
Elísa Ósk Halldórsdóttir |
 |
Saumakona:
Jónína Ragnarsdóttir |
 |
Saumakona:
Helga Jónsdóttir |
 |
Saumakona:
María |
 |
Aðstoð við
að finna til tónlist:
Örn Sigurðsson |
 |
Frumsýningarpartý:
Bára Jónsdóttir |
 |
Aðstoð við
leikmynd, miðasölu og sjoppu:
Sigrún Ósk Arnardóttir |
 |
Aðstoð við hönnun
plakats:
Guðný Svava Strandberg |
 |
Aðstoð við gerð leikmyndar:
Marteinn Jónsson |
 |
Miðasala
- atstoð í frumsýningarpartýi:
Kristín Viðarsdóttir |
 |
Miðasala
- sjoppa:
Anna Guðrún Sigurðardóttir |
 |
Miðasala
- sjoppa:
Guðný Guðnadóttir
|
 |
Upptaka á sýningunni:
Guðmundur Bjartmars:
Kvikmyndaskóli Íslands |
|
|
|
| |
| Sýningar urðu 12 sú
síðasta 8. mars 2009. |
| |
Umfjöllun
um sýninguna:
Þorgeir Tryggvason : Velheppnuð Shakespeare-sýning í Halanum
Ingibjörg Elsa Björnsdóttir: Bakhtínskur
Shakespeare - hið raunverulega karnival |
|
Halaleikhópurinn þakkar öllum,
sem hafa lagt honum lið við að koma upp þessari
sýningu.
Sérstakar þakkir til maka og nánustu aðstandenda fyrir þolinmæðina á tímabilinu. |
|
|
|
| |
| |
Halaleikhópurinn,
Hátúni 12, 105 Reykjavík,
sími 862-4576, kt. 421192-2279
|
|
|