1.
grein.
Félagið heitir Halaleikhópurinn.
2.
grein.
Tilgangur félagsins er að efla og iðka leiklist með aðgengi fyrir alla.
3.
grein.
Tilgangi sínum hyggst félagið ná m.a. með því að:
a) æfa og sýna leikrit
b) standa fyrir námskeiðum
c) vera aðili að samtökum og samstarfi áhugafólks um leiklist, bæði innan lands og utan
d) vera vettvangur fyrir hvers konar hópvinnu félagsmanna um leiklist.
Frumkvæði að verkefni,
leikriti eða annarri hópvinnu getur
komið frá stjórn
eða einstökum félögum. Gera þarf þá fjárhagsáætlun,
sem samþykkt er af meirihluta stjórnar
eða félagsfundi, og henni fylgt í hvívetna
eftir það af ábyrgðaraðilum
verkefnisins.
Hópurinn skal hafa aðgang að munum félagsins í góðu samkomulagi við aðra sem starfa á sama tíma. Gæta skal þess að fara vel með munina.
Verði verkefni sýnt í nafni félagsins, ber félagið allan kostnað af uppsetningunni, enda renni hugsanlegur hagnaður í sjóði félagsins.
Ákvörðun um sýningu tekur viðkomandi hópur sjálfur eftir undirtektum félagsmanna.
4. grein.
Inntökubeiðni skal berast stjórninni munnlega eða skriflega og staðfestast á næsta aðalfundi.
Inngöngu getur hver sá fengið sem hlýtur samþykki meirihluta fundarmanna. Þó skal enginn gangast undir skuldbindingar er greinir í lögum félagsins fyrr en fjárráða.
Félagar greiða á yfirstandandi
leikári árgjald sem skal endurskoðað ár
hvert á aðalfundi. Skuldlausir félagsmenn
hafa ókeypis aðgang að aðalsýningu ársins og njóta
afsláttar á námskeið sem Halaleikhópurinn heldur.
Fullgildur félagsmaður
telst sá sem greiðir félagsgjald
eins og það er ákveðið á aðalfundi ár
hvert. Að öðrum kosti hefur hann ekki
kosningarétt á aðalfundi.
Skuldi félagsmaður þrjú árgjöld á aðalfundi
skoðast
hann ekki lengur félagi.
Heiðursfélagar þurfa ekki að greiða félagsgjöld.
Úrsögn
berist skriflega til stjórnar.
5. grein.
Aðalfundur fer með æðsta vald í félaginu. Hann skal haldinn í maí ár hvert.
Dagskrá aðalfundar:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Inntaka nýrra félaga.
3. Skýrsla
stjórnar.
4. Afgreiddir endurskoðaðir reikningar félagsins.
5. Afgreiðsla tillagna sem borist hafa fundinum, svo sem lagabreytingar.
6. Starfsemi næsta leikárs.
7. Kosning stjórnar, varastjórnar, tveir skoðunarmenn
reikninga.
8. Önnur
mál
Aðalfund skal boða bréflega með minnst viku fyrirvara. Þó skal vera heimilt að boða fundinn með tölvupósti, en æskja um leið staðfestingar að hann hafi verð móttekinn og skal þá sami fyrirvari gilda. Aðalfundur er lögmætur, ef löglega er til hans boðað.
6. grein.
Á aðalfundi skal kjósa fimm menn í stjórn og aðra þrjá til vara. Allir skulu kosnir til tveggja ára í senn. Formann, ritara, meðstjórnanda og einn varamann annað árið, en hitt varaformann, gjaldkera og tvo varamenn.
7. grein.
Stjórnin fer með framkvæmdastjórn í félaginu á milli aðalfunda. Skal hún kveða sér til aðstoðar aðra félaga eftir ástæðum hverju sinni.
Stjórnin skal færa reikninga félagsins og leggja þá endurskoðaða fyrir aðalfund.
Reikningsárið er leikárið, frá 1.apríl til 31.mars.
8. grein.
Aukafundi skal halda svo oft sem þurfa þykir og ef 1/5 félagsmanna æskir þess skriflega. Afl atkvæða ræður úrslitum mála á fundum.
9. grein.
Fé því sem félagið kemst yfir með starfsemi sinni eða eignast á annan hátt skal varið til greiðslu skulda félagsins og kostnaðar við starfsemi þess.
Verði ágóði af starfsemi félagsins, skal hann mynda sjóð til eflingar starfsemi félagsins. Sjóðurinn skal ávaxtaður í viðurkenndri bankastofnun.
Félagsfundur getur samþykkt að ráðstafa sjóðum félagsins á annan hátt, sé helmingur félagsmanna mættur á fundinum, þó er stjórn heimilt í sérstökum afmörkuðum tilfellum að ráðstafa allt að 1/5 hluta af peningaeign félagsins.
10. grein.
Nú tekur félagið á leigu eða til rekstrar húsnæði til starfsemi sinnar, skal ákvörðun um það tekin á félagsfundi enda séu 3/4 hlutar fundarmanna samþykkir.
11. grein.
Hætti félagið starfsemi sinni skulu eignir þess afhentar Sjálfsbjörg, landssambandi fatlaðra til varðveislu, uns annað leikfélag með sambærileg markmið verður myndað og skal það þá erfa eignirnar.
12. grein.
Tillögum til lagabreytinga
skal koma til stjórnar eigi síðar
en þremur
vikum fyrir aðalfund. Lagabreytinga skal
geta í aðalfundarboði og liggja
frammi hjá stjórn til skoðunar
fyrir félagsmenn.
Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi og séu 3/4 hlutar fundarmanna með breytingunni. Lagabreytinga skal getið í fundarboði.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Þannig
samþykkt á aðalfundi Halaleikhópsins
24. maí 2008. |