Nakinn Maður og annar í kjólfötum
eftir Dario Fo í leikstjórn Eddu V. Guðmundsdóttur
Halaleikhópurinn
sýnir að þessu sinni aðeins
Nakinn maður og annar í kjólfötum
sem var eitt verka í þríleiknum Þjófar,
lík og falar konur.
Höfundurinn Dario
Fo er ítalskur, fæddur
1926 og hefur skrifað fjölda leikrita
sem sýnd hafa verið um víða
veröld við miklar vinsældir.
Árið 1997 hlaut
hann Nóbelsverðlaunin í bókmenntum.
Leikritið Nakinn maður og annar í kjólfötum
er einn af þremur einþáttungum
sem Leikfélag Reykjavíkur setti
upp um miðjan sjöunda áratuginn
og hlaut sú sýning fádæma
aðsókn. |
|
|
 |
| Nakinn
maður og annar í kjólfötum
var fyrsta erlenda leikritið sem tekið var
upp hér fyrir sjónvarp og
var sýnt 1967. |
|
Leikstjórinn:
Björn Gunnlaugsson leikstjóri
lærði leikhúsfræði
við Stokkhólmsháskóla
en leikstjórn við Carnegie Mellon
University í Bandaríkjunum
og Drama studio í London . Meðal
leikstjórnarverka Björns hér á landi
eru Beðið eftir Godot. Margét
mikla, Spansk - flugan, og Dóttir
skáldsins. Björn hefur unnið töluvert
erlendis meðal annars við Questors
Theatre og The Icelandic Take Away Theatre. |
|
|
| |
|
 |
Persónur og leikendur: |
Götusópari 1: |
Jón Þór Ólafsson. |
Götusópari 2 : |
Ásdís Úlfarsdóttir. |
Klara: |
María Jónsdóttir. |
Kát kona 2: |
Sigríður Ósk Geirsdóttir og |
|
Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir |
Lögregla:
|
Guðný Alda Einarsdóttir. |
Blómasali: |
Kristinn G. Guðmundsson. |
Nakinn maður: |
Einar Andrésson. |
Leikstjóri: |
Björn Gunnlaugsson. |
Ljós: |
Vilhjálmur
Hjálmarsson og |
|
Jón Eiríksson. |
Hvíslari: |
Árni Salómonsson. |
Plakat: |
Stefán Sigvaldi Kristinsson. |
|
|
| Halaleikhópurinn |
| Í Halaleikhópnum
eru nú um það bil 60 félagsmenn,
margir eru líkamlega fatlaðir. Því er þetta
starf sem hér er unnið mjög þarft þar
sem um gott aðgengi er að ræða
og staðsetning starfseminnar innan veggja
Sjálfsbjargar er mjög heppileg. Samheldni
og samvinna er góð. Eftir því er
tekið að einstaklingar sem einhverja
viðveru hafa hjá okkur eru glaðari
og hugdjarfari á eftir. Tekið skal
fram að Hala-leikhópurinn
er sjálfstætt starfandi leikfélag
og á aðild að Bandalagi íslenskra
leikfélaga. |
| Hlutverkaval |
| Venjulega er gerð könnun á því hverjir
gefa kost á sér í að setja
upp leikrit og eftir að komin er niðurstaða
með fjölda leikara og annara sem koma
að uppsetningu, þá er
komið að því að velja
leikrit sem felur það í sér
að allir þeir sem vilja vera með geti
fundið sig í þeirri vinnu sem
uppsetningin krefst. Mála, smíða,
taka saman búninga, undirbúa sjoppu
og miðasölu, gera plakat. Koma með hugmyndir
að útfærslu á tæknilegum
atriðum, allt þetta krefst mikillar
vinnu, sem er öll unnin af okkur sjálfum.
En eitt af mottóum okkar er
að engin er fatlaðri en hann vill vera
sjálfur og saman leysum við málin. |
|
Síðast uppfært 12. maí 2008
|