Halaleikhópurinn
tók þátt í stuttverkahátíðinni Margt
smátt í Borgarleikhúsinu
23 okt. 2004. Við sýndum þar stuttverkið Portrett
sem er eftir þá félaga Magnús
Guðmundsson og Örn Axelsson sem kalla
sig Tvíbjörn
Leikarar:
María Jónsdóttir
Selma Þorvaldsdóttir
Leikstjórn:
Kristinn Guðmundsson
Stuttverkahátíðin Margt smátt er samstarfsverkefni Borgarleikhússins og Bandalags íslenskra leikfélaga og er þetta í annað sinn sem hún er haldin. Frumkvæðið að hátíðinni kemur frá Borgarleikhúsinu sem vill með þessum hætti kynna betur þetta sérstæða leiklistarform sem lítið hefur verið sinnt utan áhugaleikfélaganna hér á landi.