banner

adalsida sagan leikverk stjorn log felagar tenglar Frettir


Rómeo og Ingibjörg

Höfundur Þorsteinn Guðmundsson
Þýðandi Helgi Hálfdánarson
Frumsýnt 19. nóv. 1993

hópmynd

Leikritið var samið nú í sumar, sérstaklega fyrir Halaleikhópinn, en inn í það fléttast nokkur atriði úr „Rómeó og Júlíu“ eftir Shakespeare í þýðingu Helga Hálfdánarsonar. Leikritið fjallar um leikhóp sem er að setja upp sýningu og segir frá samskiptum og uppákomum innan hópsins í tengslum við verkefnið.

Hópmynd

Úr leikskrá:

 Kolbrún Dögg og Guðmundur Magnússon í hlutverkum sínum„Þorsteinn Guðmundsson fæddist árið 1967. Hann lauk prófi frá Leiklistarskóla Íslands 1991 og hefur síðan unnið að ýmsum verkefnum. Hann hefur m.a. leikið í „Emil í Kattholti" og í uppfærslu Borgarleikhússins á „Spanskflugunni". Þorstein hefur sett upp verkefni á Kjalarnesi með grunnskólanemum þar og þá setti hann upp fyrsta verkefni Halaleikhópsins „Aurasálina" eftir Molière ásamt Guðmundi Magnússyni. „Rómeó og Ingibjörg" var fyrsta leikrit hans sem tekið er til sýningar opinberlega.

Höfundur segir þetta um verkið: Rómeó og Ingibjörg er nýtt leikrit sérstaklega skrifað fyrir Halaleikhópinn. Á vissan hátt má segja að sýning þessa sama leikhóps á síðasta ári (1992) sé kveikjan að verkinu. Leikritið fjallar um áhugaleikhóp sem ræðst í það verkefni að setja upp frægasta ástarleikrit allra tíma.

Sýningin mótast af getu og takmörkunum þátttakenda. Persónulegar tilfinningar leikendanna lita uppsetninguna sem ráðist er í og sjálfsagt hefur leikritið um Rómeó og Júlíu (í þýðingu Helga Hálfdánarsonar) einnig haft áhrif á leikhópinn. Þannig má finna samsvörun hjá fólkinu í hópnum og persónunum í leikriti Shakespeares, svo að lítil ástarsaga í áhugaleikhópi kallist á við þau hjónin Rómeó og Júlíu. Við fylgjumst með æfingum allt frá fyrsta fundi hópsins, með nýjum leikstjóra, til þess augnabliks sem sýningin þeirra er fullmótuð. Mótuð af þeim sjálfum."

Helga Bergmann og Valeríe Harris í hlutverkum sínum

Leikstjóri:

Edda V. Guðmundsdóttir leikstjóri útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands árið 1977. Hún hefur síðan unnið með Alþýðuleikhúsinu, Leikfélagi Reykjavíkur og Leikfélagi Akureyrar. Einnig leikið í sjónvarpi og vídeómyndum og leikstýrt ýmsum stöðum bæði út á landi og í Reykjavík. Starfaði líka vetrarpart 1985 með félögum sem nú skipa Hala-leikhópinn.

 

Persónur og leikendur:

Ingibjörg - Júlía

Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir

Óskar - Rómeó

Ingólfur Örn Birgisson

Elli - Merkútsíó

Sigurður Björnsson

Frímann - Leikstjóri

Guðmundur Magnússon

Dóra - Fóstran

Valerie Harris

Aðalgeir - Tíbalt

Ómar Bragi Walderhaug

Bent - Benvólíó

Kristinn G. Guðmundsson

Ragnheiður - Borgari í Verónu

Sigríður Ósk Geirsdóttir

Lárens munkur

Helga Bergmann

Hólmfríður saumakona - Borgari í Verónu

Elín Jónsdóttir

Þorsteina kaffikona - sveinn Tíbalts

María Jóna Geirsdóttir

Ólafur - Borgari í Verónu

Hrafn Ragnarsson

París

Úlfar Arnarson

Leikstjóri Edda V. Guðmundsdóttir
Tónlist Stefán Stephensen
   
   
Gagnrýni eftir Guðbrand Gíslason sem birtist í Morgunblaðinu 23. nóv 1993  
   

Grein úr Menningarlífi Morgunblaðsins 18. nóv. 1993


Til baka á Aurasálina
Til baka á aðalsíðu Efst á síðu Póstur til Halaleikhópsins

Síðast uppfært 15. maí 2008