,,Leiklist
fyrir alla”
|

Sigurður Björnsson og Valeri
Harris |
|
Halaleikhópurinn
var stofnaður
27. september 1992 með það að markmiði
að ,,iðka
leiklist fyrir alla” og hefur starfað óslitið síðan.
Við höfum sett upp veglega leiksýningu á hverju ári,
stundum fleiri en eina, sjö leikrit hafa verið frumsamin
fyrir leikhópinn og hafa þær
jafnan vakið mikla athygli.
Þar sem leikhópurinn
er samansettur af ólíkum
einstaklingum, fötluðum sem ófötluðum,
verður fjölbreytnin meiri og þar af leiðandi
túlkunin. Þannig hefur hópurinn opnað augu
almennings fyrir því að fatlað fólk
getur einnig, þrátt fyrir ýmsar hindranir,
leikið á sviði eins og allir aðrir.
Þetta áhugaleikfélag
hefur lyft grettistaki í að eyða fordómum
og styrkja einstaklinga til að taka skref, sem annars
hefðu verið ófarin og styrkir því marga
Halafélaga á einn eða annan hátt.
Fötlun er eitthvað sem gleymist í þessu áhugaleikfélagi.
|
| |
|
|
Fyrsta sýning
hópsins var ,,Aurasálin eftir Moliere og aðrar
fylgdu í kjölfarið. Af þeim sýningum
má nefna, ,,Allra meina bót” eftir þá Jón
Múla og Jónas Árnasyni, ,,Gullna Hliðið” eftir
Davíð Stefánsson, ,,Túskildingsóperuna” eftir
Berthold Brecht, ,,Rómeó og Ingibjörg” eftir Þorstein
Guðmundsson og árið 2001 settum við upp
,,Nakinn maður og annar í kjólfötum” eftir
Dario Fo. „Á fjölum félagsins“ eftir
Unni Maríu Sólmundardóttir og „Fílamanninn“ eftir
Bernard Pomerance, Kirsuberjagarðinn eftir Tjakov, Pókók
eftir Jökul Jakobosson, svo má lengi
telja. En nákvæma upptalningu á verkum félagsins má finna
á leikverka síðunni.
Öflugt félagslíf
hefur einnig verið innan Halaleikhópsins, haldnir
fundir, námskeið, borðað saman, horft á vídeo,
sungið í Karooke og alls kyns skemmtilegir hlutir í gangi
mest allt árið í Halaleikhúsinu
sem Sjálfsbjörg lsf. lætur okkur í té endurgjaldslaust.
Einnig hittumst við á sumrin og stundum leiklestur og njótum
náttúrunnar í sumarhúsi Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu við
Elliðavatn. |
|
|
| |
|
Ómar
Bragi Walderhaug og Kristinn Guðmundsson |
| |
Athyglisverðasta áhugaleiksýning
leikársins 2007 - 2008 |
 |
|
Val Þjóðleikhússins á athyglisverðustu áhugaleiksýningu
leikársins hefur nú farið fram fimmtánda
leikárið í röð. Dómnefnd Þjóðleikhússins í ár
var skipuð Tinnu Gunnlaugsdóttur þjóðleikhússtjóa
og Vigdísi Jakobsdóttur, deildarstjóra
fræðsludeildar Þjóðleikhússins.
Dómnefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu
að velja að þessu sinni:
Gaukshreiðrið
eftir Dale Wasserman
í leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar
og meðförum Halaleikhópsins |
Umsögn dómnefndar:
Verkefnaval Halaleikhópsins ber vott um mikinn metnað, kjark
og stórhug. Leikhópurinn, sem hefur það að markmiði
að „iðka leiklist fyrir alla“ fagnaði fimmtán ára
afmæli sínu á þessu leikári. Rétt
eins og Halaleikhópurinn hefur auðgað leiklistarflóru áhugaleikfélaga
og leiklistar í landinu almennt, öðlast hið þekkta leikrit
Gaukshreiðrið nýjar víddir í meðförum
leikhópsins. Fötlun leikenda stendur engan veginn í vegi
fyrir túlkun á verkinu, heldur þvert á móti
auðgar hana og styrkir. Styrkur sýningarinnar felst þannig
ekki síst í sterkri liðsheild, þar sem hver einstaklegur
fær að njóta sín á eigin forsendum, þó hlutverkin
séu vissulega mismunandi stór. Framsögn er til mikillar
fyrirmyndar og sama má segja um hlutun og allan samleik.
Langmest mæðir á þeim
Gunnari Gunnarssyni (Gunsó) í hlutverki
Randle P. Murphy og Sóleyju Björk Axelsdóttur í hlutverki
Ratchet hjúkrunarkonu. Bæði skiluðu þau
hlutverkum sínum mjög vel. Leikmynd, búningar,
lýsing, hljóðmynd og förðun
myndaði sterka heild og einstaklega sannfærandi
umgjörð um sýninguna. |
| |
Frétt
af vef BÍL má sjá HÉR
Frétt af vef Þjóðleikhússins má sjá HÉR |
|
| |
Kærleikskúlan 2008 |
| |
 |
|
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
sæmdi Halaleikhópinn Kærleikskúlunni
2008 sem eru hvatningarverðlaun sem Magnús Geir Þórðarson
leikhússtjóri Borgarleikhússins afhenti
26. nóv. sl.
Afhenti hann kúluna meðal annars
með þeim orðum að hópurinn hefði
sannað sig í hópi áhugaleikhúsa
og hefði svo sannarlega kærleikann meðferðis í listinni sem
hann sagði vera svo mikilvægt í leikhúsum
og að leikhópurinn hefði á engan hátt
látið fötlun hindra sig í listsköpun
sinni.
Sjá nánar HÉR
|
| |

Halaleikhópurinn er aðili
að Bandalagi íslenskra leikfélaga sem eru
samtök áhugaleikfélaga á Íslandi,
stofnuð árið 1950. Í samtökunum
eru 62 leikfélög sem starfa vítt og breitt
um landið. Fjöldi einstaklinga í félögunum
er u.þ.b. 4.000. Bandalagið rekur einu þjónustumiðstöð leiklistarinnar
hérlendis og þjónar
ekki einungis áhugaleikfélögum,
heldur öllum þeim sem starfa að
málefnum leiklistar á landinu. Þar eru
m.a. seldar förðunarvörur og hárkollur
og þar er að finna stærsta leikritasafn landsins.
Bandalagið starfrækir
Leiklistarskóla og heldur úti vefnum, www.leiklist.is
|
Síðast uppfært 25. jan.
2009
|