Formaður:
- Boðar fundi stjórnar, félags-
og aðalfundi. Er fundarstjóri, nema á aðalfundi.
- Er andlit félagsins út á við.
Annast samskipti við opinbera aðila og aðra
fyrir hönd félagsins.
- Hefur góða yfirsýn yfir starfsemi
félagsins.
- Miðlar upplýsingum úr formannapósti
til stjórnar og félagsmanna.
- Sér um verkaskiptingu á skilgreindum
verkefnum sem upp koma hverju sinni.
- Er vakandi fyrir því sem betur mætti
fara í starfsemi félagsins.
- Skal halda góðu sambandi við félagsmenn
og reyna að virkja sem flesta til starfa.
Varaformaður:
- Tekur yfir starf formanns í forföllum
hans.
- Þarf að starfa náið með formanni
og hafa góða yfirsýn yfir störf
formanns.
- Formaður og varaformaður eru ábyrgir
fyrir góðu upplýsingaflæði
sín á milli og innan félagsins.
- Er tengiliður og hefur umsjón með þeim
leikstjórum sem félagið kann að ráða
til sín á starfsárinu.
- Er almennur stjórnarmaður.
- Er vakandi fyrir því sem betur mætti
fara í starfsemi félagsins.
- Skal halda góðu sambandi við félagsmenn
og reyna að virkja sem flesta til starfa.
Gjaldkeri:
- Hefur yfirumsjón og ábyrgð á fjármunum
félagsins, svo sem greiðir reikninga, ávaxtar
fjármuni, innheimtir félagsgjöld
o.s.frv.
- Sér til þess að reikningar séu
endurskoðaðir og skilar ársuppgjöri á aðalfundi.
- Tekur við uppgjöri frá miðasölustjóra
hverju sinni.
- Sér um að samþykkja öll útgjöld áður
en þau fara fram
- Sækir um alla styrki, ásamt öðrum í styrkjanefnd
sem stjórn kýs og fær aðra
til aðstoðar ef þörf krefur.
- Sér til þess, í samráði
við þann sem umsjónamann félagatals,
að félagatal sé rétt.
- Sér til þess að aðhalds og
hagsýni sé gætt í rekstri
félagsins.
- Annast samningagerð, ásamt formanni,
við leikstjóra svo og aðra starfsmenn
sem eru ráðnir.
- Er vakandi fyrir því sem betur mætti
fara í starfsemi félagsins.
- Skal halda góðu sambandi við félagsmenn
og reyna að virkja sem flesta til starfa.
Ritari:
- Heldur fundagerðabók, skráir það sem
fram kemur á stjórnarfundum og annað markvert
utan þeirra.
- Heldur saman öllu sem félagið gefur út,
svo sem fréttabréfum, leikskrám,
myndum og pistlum.
- Gerir uppkast að félagsfundar-
og aðalfundarboðum ásamt
formanni.
- Hefur yfirumsjón með útgáfu
fréttabréfa að hausti og að vori
(fyrir aðalfund), auk annarra tilkynninga, í samvinnu
við stjórn félagsins.
- Er vakandi
fyrir því sem betur mætti
fara í starfsemi félagsins.
- Skal halda
góðu sambandi við félagsmenn
og reyna að virkja sem flesta til starfa.
Meðstjórnandi:
- Starfar vel að þeim verkefnum sem meðstjórnanda
kunna að vera falin.
- Tengiliður milli stjórnar og starfsmanna.
- Annast fjölritun handrita.
- Er vakandi fyrir því sem betur mætti
fara í starfsemi félagsins.
- Skal halda góðu sambandi við félagsmenn
og reyna að virkja sem flesta til starfa.
- Sér um að finna húsnæði
fyrir frumsýningarpartý.
Varastjórnarmenn:
- Eru boðaðir á stjórnarfundi
og æskilegt er að þeir mæti.
- Skulu fylgjast vel með störfum stjórnar.
- Leysa af aðalstjórnarmenn í forföllum þeirra.
- Ganga til liðs við framkvæmdastjóra
sýninga og taka að sér vinnu við sýningar.
- Eru vakandi fyrir því sem betur mætti
fara í starfsemi félagsins.
- Skulu halda góðu sambandi við félagsmenn
og reyna að virkja sem flesta til starfa.
Styrkjanefnd:
- Sér um að sækja um styrki í samráði
við gjaldkera.
- Fylgist vel með auglýsingum um styrki
og leitar allra leiða við að leita uppi
styrktaraðila.
- Útbýr styrkumsóknir og skilar þeim
inn á tilteknum tíma. Sér um
að ávallt sé til afrit af öllum
styrkumsóknum og heldur þeim til haga í sér
möppu ásamt þeim svörum sem
berast við þeim.
- Skilar inn greinargerðum vegna styrkumsókna
tímanlega, ef um það er beðið.
Önnur störf:
Framkvæmdastjóri
sýningar:
Stjórn ræður framkvæmdastjóra
vegna hverrar sýningar, en hann velur sér
síðan eftirtalda starfsmenn í samvinnu
við stjórn og leikstjóra eftir því sem
við á:
-
- Miðasölustjóra
- Leikskrárstjóra
- Fjölmiðlafulltrúa
- Tæknimenn
- Halda skal vikulega framkvæmdastjórnarfundi,
t.d. hálftíma fyrir æfingu á föstum
vikudegi. Framkvæmdastjórn skipa eftirfarandi:
Framkvæmdastjóri, leikstjóri,
aðstoðarleikstjóri,
fjölmiðlafulltrúi, búningahönnuður,
leikmyndahönnuður, ljósahönnuður
og tónlistarstjóri.
Aðrir, s.s.
leikskrár-, leikmuna- og förðunarfólk,
skal kallað til eftir þörfum. Þá skal
sýningarstjóri koma inn í dæmið, þegar
fram í sækir. Á fyrstu fundum framkvæmdastjórnar
skal unnin vinnuáætlun fyrir alla sýninguna, þar
sem greind eru tímamörk fyrir leikmynd,
búninga,
ljós, leikmuni og annað. Þessari áætlun
skal framkvæmdastjóri sjá til að fylgt
sé eftir. Val á leikurum í hlutverk
er ekki einkamál leikstjórans og skal
fjallað um það.
- Hefur yfirumsjón með að störf
framkvæmdastjórnar séu unnin.
- Framkvæmdastjóri þarf að hafa
gott samstarf við stjórn.
- Framkvæmdastjóri boðar og/eða
afboðar sýningar að höfðu
samráði
við stjórn og sýningarstjóra.
- Framkvæmdastjóri er ábyrgur
fyrir öllum frágangi og skilum á lánshlutum
eftir að sýningum lýkur og skilar
uppgjöri til gjaldkera.
- Framkvæmdastjóri er sá sem tekur
fyrst til starfa og hættir síðastur.
Hans starf er að annast yfirverkstjórn
uppsetningarinnar. Leikstjóri ræður á leiksviðinu,
en framkvæmdastjóri ræður
utan leiksviðsins. Mikilvægt er að framkvæmdastjóri
sé vel inni í öllum þáttum
uppsetningarinnar og fylgist grannt með.
- Eitt fyrsta verkið er að útbúa
fjárhagsáætlun. Hún skal
samin í samráði við aðra
framkvæmdaraðila verksins og stjórn
leikfélagsins. Skila skal nákvæmu
bókhaldi. Kostnaðaráætlunin
skal endurskoðuð með jöfnu millibili á æfingatímabilinu
og er sparnaður lykilorðið hér.
Sjá til þess að allir haldi sig
innan marka áætlunarinnar.
- Er viðbúinn að leysa óvænt
vandamál.
- Heldur lista yfir þá muni, tæki
og tól sem fengin eru að láni eða
tekin eru á leigu, í samvinnu við aðstoðarleikstjóra.
Fram komi: hver fékk lánað, hvaðan,
greiðsla (ef e-r), hvenær er lofað að skila.
Hafa umsjón með að öllu sé skilað og
borgað fyrir og eftir sýningar.
- Boðar brunavörð til úttektar á sýningu
og eldvörnum hússins þegar leikmynd
er tilbúin. Þó ekki seinna en
2 vikum fyrir frumsýningu. Upplýsir
leikmyndahönnuð um þau
atriði sem gæti verið sett út á.
Miðasölustjóri:
- Skal velja starfsfólk í miðasölu,
sælgætissölu, dyravörslu og fatahengi í samráði
við stjórn.
- Gerir upp hverja sýningu og skilar til gjaldkera.
- Sér um skipulag og umsjón miðapantana.
- Sér um sælgætissölu og innkaup.
- Les inn á símsvara og sér til þess
að hann innihaldi ávallt nýjustu
upplýsingar.
Leikskrárstjóri:
- Ræður tvo starfsmenn í leikskrár-og
veggspjaldanefnd.
- Finnur einhvern til að útbúa
leikskrá og veggspjald eða annað prentað efni
vegna sýningarinnar eftir því sem
við á. Hefur góð samskipti
við þann aðila og hugar vel að tímasetningum..
Sá aðili þarf að geta skilað efni
af sér í því formi sem
prentsmiðjur þurfa.
- Sýnir stjórn og leikstjóra
tilbúna próförk af leikskrá a.m.k
viku áður en skila þarf til
prentunar
- Sér um auglýsingaöflun (t.d.
styrktarlínusöfnun) – myndatökur
(fyrir leikskrá) – söfnun greina
og upplýsinga og útgáfu leikskrár ásamt
prófarkalestri.
- Leitar tilboða vegna prentunar og kemur í prentun
tímanlega.
- Hefur störf um leið og framkvæmdastjóri.
Kaffi- og þrifumsjónarmaður:
- Hefur störf þegar æfingar hefjast.
Hellir upp á kaffi og sér um að það sé til
nægt drykkjarvatn.
- Hefur umsjón með tiltekt í húsnæði
Halaleikhópsins.
- Skipuleggur búningaaðstöðu fyrir
hvern leikara og sér til þess að hún
sé notuð.
- Sér um innkaup á t.d. hreinlætis-
og kaffivörum.
- Sér til þess að almennar umgengnisreglur
séu haldnar.
Fjölmiðlafulltrúi:
- Selur sýninguna!
- Athugið að forkynning á verki er
mjög mikilvæg.
- Hefur störf um leið og framkvæmdastjóri.
Helst 2-3 mánuðum fyrr.
- Ber ábyrgð á kynningum og auglýsingum – fyrir
sýningar og á meðan sýningatímbili
stendur.
- Kemur fréttatilkynningum á ljósvakamiðla
og í öll blöð með myndum, þar
sem það á við.
- Hefur yfirumsjón með markaðssetningu
og auglýsingum á félaginu og
verkefnum þess.
- Fær fólk til að sinna þessu
með sér.
- Sér til þess að teknar séu
myndir við tækifæri eða atburði
sem félagið á í hlut.
- Hefur í huga að aðstæður
leyfi myndatökur snemma á æfingatímabilinu, þ.e.
að búningar og leikmynd séu útbúin
til þess tímanlega!
- Gætir hagsýni í útgjöldum
og hefur samstarf við gjaldkera.
- Hefur í huga hvers konar verk er um að ræða,
með tilliti til áhorfendahóps,
bestu kynningarmiðla og kynningar.
- Sér um að leita uppi alla miðla sem
hafa fríar auglýsingar og tilkynningar
og sendir á það auglýsingar
jafnóðum.
- Sendir út fréttatilkynningar til allra
miðla þess efnis að æfingar séu
að hefjast/hafnar og síðan aðra
skömmu fyrir frumsýningu. Athugar að nýta
sér vel ef um nýtt verk er að ræða
eða annað sérlega fréttnæmt
um sýninguna.
- Útbýr lista yfir fyrirtæki og
stofnanir með tilliti til markhóps og
kynningar.
- Útvegar viðtöl í allar tegundir
miðla. Setja það í gang með mjög
góðum fyrirvara. Fylgir öllu eftir
og ýta vel á fjölmiðlafólk.
- Athugið að fréttir á sjónvarpsrásum
eru mjög sterkur miðill. Vera á verði
gagnvart fréttnæmum atburðum sem
tengjast sýningunni eða félaginu,
beint eða óbeint.
- Býður fjölmiðlafólki á æfingar,
jafnvel í byrjun. Sumir fjölmiðlar
birta ekki gagnrýni um áhugaleikhús.
- Fylgist með uppsetningunni frá upphafi
og mætir reglulega á æfingar.
- Hefur skriffinnsku á hreinu! Skrifar hjá sér
við hvern var rætt, hvaða dag, klukkan
hvað, inntak samtals, hvenær hafa skuli
samband næst, og annað sem máli
skiptir.
- Kannar tímanlega í samráði
við stjórn og leikara mögulega sýningardaga.
Tæknimenn:
- Ljósahönnuður
- Ljósamenn
- Hljóðmenn
- Leikmyndasmiðir
- Málarar
- Búningafólk
- Sminkur
- Sviðsmenn
- Leikmunaverðir
Æskilegt er að hver starfsmaður fái
eða komi sér upp möppu með frekari
uppástungum og minnispunktum varðandi sitt
starfssvið.
Aðstoðarleikstjóri:
- Er hægri hönd leikstjóra á æfingatímabilinu
og vinnur í nánu samstarfi við stjórn.
- Lætur alla vita ef nauðsynlegt er að gera
breytingar á æfingarplani.
- Hefur yfirumsjón með hvísli á æfingatímabilinu
eða fær fólk í það.
- Er síðasti maður út úr
húsnæðinu, slekkur, lokar gluggum
og læsir.
Sýningarstjóri:
- Sýningarstjóri stjórnar sýningunni.
- Sýningarstjóri þarf að kunna
sýninguna mjög vel og sjá til þess
að ekkert fari úrskeiðis baksviðs
og að allar skiptingar gangi snuðrulaust fyrir
sig. Gott er að taka ljósmynd af hverju
sviði og hengja á vegg nálægt
aðalinnkomu á sviði. Einnig lista yfir
leikmuni hvers og eins og annan lista yfir almenna
leikmuni. Leikmunir sem fleiri en einn notar eru á ábyrgð sýningarstjóra.
- Ber ábyrgð á tímasetningum,
réttum innkomum og að allir og allt sé til
reiðu þegar hver sýning hefst.
- Ákveður hvenær sýning hefst
og sér um tímatöku í hléi.
- Grípur inní ef einhver vandamál
koma upp.
- Sýningarstjóri tilkynnir öllum
aðilum þegar hleypt er í salinn.
- Hefur auga með að leikarar séu tilbúnir
að fara inn á svið, þegar þeim
ber. Ábyrgðin er þó alfarið leikarans.
- Sýningarstjóri er framkvæmdaaðili
kynninga í fyrirtækjum/skólum/stofnunum.
Framkvæmdastjóri sér um skipulagningu í samráði
við fjölmiðlafulltrúa.
- Síðasti
maður úr húsi á að vera
sýningarstjóri. Slökkva ljós
og á tækjum, læsa hurðum, kanna
húsið með eldhættu í huga
.
- Heldur gott tímaplan. Sér til þess
að allir mæti 2 tímum fyrir sýningu.
- Fer yfir leikmuni og sviðsmynd fyrir sýningar.
- Sér um að leikarar og tæknimenn
séu ekki ónáðaðir (u.þ.b.
20 mínútum fyrir sýningu).
- Hefur umsjón með hvenær áhorfendum
er hleypt í salinn.
- Er tengiliður milli tæknimanna, miðasölu
og leikara tveim tímum fyrir sýningu
og þar til áhorfendur eru farnir úr
sal.
- Sér um að geyma verðmæti fyrir
leikara.
- Sér um að loka öllum dyrum og athuga
að neyðarútgangar séu í lagi.
Sviðs- og Leikmunavörður :
- Fylgist með fyrir og eftir sýningar að allir
leikmunir séu á sínum stað.
- Fær skrá frá leikstjóra
fyrir frumsýningu yfir þá leikmuni
sem eru í notkun og hverjir nota þá,
hvar og hvenær.
Umsjónarmaður förðunardeildar:
- Hefur yfirumsjón með öllu sminki
og efnum til förðunar og hárgreiðslu í eigu
félagsins.
- Sér um að efni til förðunar
og hárgreiðslu séu í aðgengilegu
horfi.
- Skal fylgjast vel með útlánum
og passa að vörum sé skilað eða
greitt fyrir.
- Að sjá til þess að gengið sé vel
frá fyrir og eftir sýningar og í lok
leiktímabils.
- Hefur gott samstarf við leikstjóra.
- Athugar að gæta aðhalds og hagsýni
við innkaup til förðunar.
- Reynir að fá til liðs við sig
aðra félaga.
- Skal tilnefna einhvern í sinn stað í forföllum
sínum.
- Á að vera í góðu sambandi
við stjórn.
Ljósameistari:
- Hefur yfirumsjón með ljósa-og
tæknibúnaði. Sér til þess
að hann sé ávallt tryggilega frágenginn.
- Sér til þess í samráði
við gjaldkera að leiga sé innheimt þegar
um það er að ræða.
- Skal hafa gott samstarf við leikstjóra.
- Sér um að gera tillögu til stjórnar
um kaup á æskilegum tæknibúnaði
eða endurnýjun búnaðar.
- Fær til liðs við sig aðra félaga.
- Tilnefnir einhvern í sinn stað í forföllum
sínum.
- Er í góðu sambandi við stjórn
félagsins.
Umsjónarmaður búningadeildar:
- Hefur umsjón með búningaeign félagsins.
- Sér um að koma búningum og öðru þeim
tilheyrandi í aðgengilegt horf.
- Passar að útlán og útleiga
sé skráð og fylgist með að öllu
sé skilað.
- Skal ganga vel frá öllum búningum.
- Hefur gott samstarf við leikstjóra.
- Sér um að aðhalds og hagsýni
sé gætt við innkaup til búningagerðar.
- Gerir kostnaðaráætlun í samráði
við gjaldkera vegna búninga.
- Fær til liðs við sig aðra félaga.
- Tilnefnir einhvern annan í forföllum
sínum.
- Er í góðu samstarfi við stjórn.
Umsjónarmaður leikmyndar:
- Hefur yfirumsjón með leiktjöldum
og leikmyndasmíði.
- Leggur áherslu á nýtni og hagsýni í smíðum
.
- Gengur vel frá leiktjöldum og leikmynd.
- Hefur gott samstarf við gjaldkera varðandi
innkaup.
Húsvörður:
- Sinnir almennum húsvarðarstörfum
(opna, loka, læsa, slökkva hita, loftræsta,
laga og redda.
- Ber ábyrgð á viðhaldi hússins
og innbúi þess, vinnur að álitsgerð þar
að lútandi og sér til þess
að viðhald sé framkvæmt.
- Annast útlán og endurheimt á sínum
flokkum með notkun útlánabókar.
- Skal sjá til þess að almennar húsreglur
séu haldnar.
Almennt:
Í lok hvers vinnutímabils, ættu
allir að skila af sér vinnuskýrslu,
fara yfir þennan bækling með framkvæmdastjórn
verksins og kanna hvernig til tókst.
Búa skal til boðsmiðalista samhliða
vinnunni og útbúa síðan endanlegan
lista í samráði við framkvæmdastjóra
(-stjórn) sýningarinnar.
Listar:
Boðsmiðalisti: framkvæmdarstjóri, í samráði
við stjórn og framkvæmdastjórn
PR – listi: fjölmiðlafulltrúi
(eigin smíð)
Þessir listar skulu endurnýjaðir fyrir
hverja uppfærslu. Í þeim skal tilgreint,
auk fyrirtækis/stofnunar/einstaklings, þeir
tengiliðir sem best er að hafa samband við,
símanúmer, netfang, heimilisfang og annað,
sem að gagni getur komið.
Ath. að oft getur verið gott að vita
hverja má EKKI tala við.
|