Í stjórn eru: Ása Hildur
Guðjónsdóttir formaður, Höskuldur Þ.
Höskuldsson varaformaður, Kristín
R. Magnúsdóttir gjaldkeri, Kristín
M. Bjarnadóttir ritari og Stefanía
Björk Björnsdóttir meðstjórnandi. Í varastjórn
eru: Guðríður Ólafsdóttir,
Einar Þ. Andrésson og Magnús
Addi Ólafsson.
Óhætt er að segja að starfsárið hafi
byrjað strax með miklum bravör. Við unnum
keppnina um athyglisverðustu áhugaleiksýninguna
leikárið 2007 – 2008 fyrir Gaukshreiðrið,
eftir Dale Wasserman í leikstjórn
Guðjóns Sigvaldasonar í maí 2008. Því var það fyrsta
verk stjórnar að semja um tilhögun,
við að koma sýningunni í Þjóðleikhúsið,
leikmyndin sem var talsvert umfangsmikil, hún
var endurhönnuð og smíðuð uppá nýtt.
Þjóðleikhúsið kom
til móts við allar okkar þarfir
og gekk samstarfið mjög vel. Við sýndum
fyrir nánast fullum sal þann 4. júní 2008 á Stóra
sviði Þjóðleikhússins. Þetta
var mikið þrekvirki og margir innan Halaleikhópsins
sem utan, lögðu okkur lið. Viljum
við nota þetta tækifæri til
að þakka öllum sem að þessu
komu. Óhætt er að segja að það hafi
verið stoltir leikarar og aðstandendur
sýningarinnar og félagsmenn, þegar
allur salurinn stóð upp og klappið ætlaði
aldrei að hætta að sýningu
lokinni. Við fengum talsverða fjölmiðlaumfjöllun
vegna þessa.
Strax var farið að huga að næsta
leikári og auglýst var eftir leikstjóra.
Skemmst er frá því að segja
að 8 leikstjórar sóttu um. Mikil
vinna fór í að taka þá í viðtöl
og velja rétta leikstjórann. Niðurstaðan
varð að ráða Þröst
Guðbjartsson leikstjóra, hann var með hugmynd
um að setja á svið Karnival unnið upp úr
Sjakespears verkum og var það samþykkt.
Einnig að fá hann til að halda 20
tíma leiklistarnámskeið í okt.
2008. Þröstur tók sérstaklega
fyrir upphitun, raddbeitingu, traustæfingar,
framsögn og spuna. Námskeiðið sóttu
13 félagar og höfðu mikið gagn
og gaman af.
Tveir vinnudagar voru á starfstímabilinu
23. ágúst 2008 og 24. maí 2009 þar
sem við tókum til í búningageymslunni,
og öllum skotum Halans.
Einn Haladagur var 19. júlí í Krika
við Elliðavatn, þar sem m.a. voru
leiklesið leikrit eftir tvo Halafélaga,
grillað og ýmislegt annað gert sér
til gamans.
Fimm meðlimir stjórnar fóru á haustfund
BÍL og námskeið í stjórnum
leikfélaga, 22. nóv. 2008; Ása
Hildur Guðjónsdóttir, Kristín
M. Bjarnadóttir, Einar Andrésson,
Stefanía Björk Björnsdóttir
og Guðríður Ólafsdóttir
. Þar var skipulagsskrá Halaleikhópsins
m.a. notuð sem kennslugagn og fékk leikhópurinn
mikið hrós fyrir hana.
Æfingar á Sjeikspírs Karnivalinu í leikgerð og
leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar
hófust í nóvember. Æft
var í 4 vikur og svo tekið frí fram
yfir áramót og frumsýnt 31.
jan. sl. Sýningar urðu 12 talsins. Alls
tóku 46 félagsmenn þátt í uppsetningunni á einn
eða annan hátt þar af 19 leikarar.
Sýningin fékk góða gagnrýni. Þröstur
gaf okkur vinnu við leikgerðina.
Halaleikhópurinn var valinn sem Handhafi
Kærleikskúlunnar 2008 af Styrktarfélagi
lamaðra og fatlaðra. Tilgangurinn með sölu
Kærleikskúlunnar er að auðga
líf fatlaðra barna og ungmenna, með því að efla
starfsemi Reykjadals. Gera þannig fleirum
mögulegt að njóta þar ævintýra
tilverunnar í hópi með jafnöldrum – eignast
vini og dýrmætar minningar. Kærleikskúlan
er úr gleri, blásin upp af því dýrmætasta
sem hverri lifandi manneskju er gefið – andardrætti.
Andinn í kúlunni er táknrænn
fyrir hið ósnertanlega og andlega, langanir
og þrár. Kúlan er kysst þremur
kossum, sem fela í sér tjáningu ástar,
vináttu og þakklætis.
Guðný Alda Einarsdóttir tók
við henni við hátíðlega
athöfn á Listasafni Reykjavíkur
26. nóv. 2008 ásamt hópi Halafélaga.
Kærleikskúla hvers árs er afhent
verðugri fyrirmynd eða fyrirmyndum og var
góður rómur gerður að starfi
Halaleikhópsins við athöfnina.
Halaleikhópurinn styrkti tvo félagsmenn
til að sækja námskeið á Leiklistarskóla
BÍL. Daníel Þórhallson
til að fara á leiklistarnámskeið að Húsabakka
og Magnús Adda Ólafsson til að fara á ljósa
og tæknimannanámskeið.
Samþykkt var á Félagsfundi
11. sept. 2008 að ráða Ágústu
Skúladóttur til að leikstýra
okkur næsta leikár. Ákveðið var
síðar, að taka fyrir Svartfugl eftir
Gunnar Gunnarsson Ágústa ætlar
að gera nýja leikgerð fyrir okkur án
endurgjalds. Sýningarleyfið er komið og
Gunnarsstofnun gefur eftir höfundalaunin.
Ljósaveisla. Magnús Addi ljósameistari
hafði opið hús 28. mars sl. þar
sem hann kynnti fyrir félögum möguleika
ljósaborðsins og tæknibúnaðar
Halaleikhópsins.
Ása Hildur fór sem fulltrúi
Halaleikhópsins á aðalfund BÍL
að Hlíð í Ölfusi um
mánaðar mótin apríl- maí sl.
Aðrir fulltrúar forfölluðust
og ekki reyndist tími til að finna staðgengla.
Enn var unnið að því að bæta
aðgengi í Halanum. Við létum
mála anddyrið og litla ganginn. Létum
gera nýtt salerni baksviðs og setja
rafmagnsopnun á aðaldyrnar hjá okkur. Þá var
gengið frá húslýsingunni
og settir dimmerar í salinn. Fyrirhugað var
að kaupa stækkun á nýja
ljósaborðið, en því var
frestað vegna óhagstæðs gengis.
Tvö formleg Halapartý vour haldin
11. okt. og jólapartý 12. des. Auk þess
sem hefðbundið frumsýningarpartý var
haldið og lokapartý með hefðbundnu
sniði.
Við sendum út fréttabréfið Halafréttir
9 sinnum á starfstímabilinu, í júní,
júlí, sept. okt. des. mars, apríl.
og tvisvar í maí. Auk þess
sem við vorum í sambandi við félagsmenn
gegnum tölvupóst o.fl.
Töluverð vinna stjórnar fór í að reyna
að afla styrkja og skipuðum við sérstaka
styrkjanefnd sem í sátu: Kristín
R. Magnúsdóttir, Kristín M.
Bjarnadóttir og Ása Hildur Guðjónsdóttir.
Róðurinn er ansi þungur núna í þessu árferði, því er
mikilvægt að allir félagsmenn
leggist á árarnar og hjálpi
til eftir öllum tiltækum ráðum
að afla fjár til að greiða leikstjóra
og leggi á sig aukna sjálfboðavinnu,
svo kostnaður við það sem við tökum
okkur fyrir hendur verði sem allra minnstur.
Geta má þess að við erum m.a.
með dósa- og flöskusöfnun,
margt smátt gerir eitt stórt. Og
tökum við framlögum í hann
með gleði.
Við fengum Miðlun til að safna auglýsingum
og styrktarlínum í leikskrá og á vef
félagsins eins og undanfarin ár.
Okkur til furðu gekk það ekki síður
en í fyrra. Sem segir okkur það að við eigum
trygga bakhjarla víða að.
Stjórn hélt á starfstímabilinu
26 reglulega stjórnarfundi auk þess
sem mikil samskipti fóru fram gegnum tölvupóst.
Tveir félagsfundir voru haldnir 11. sept.
2008 og 26. mars 2009
Opinn stjórnarfundur var 21. ágúst þar
sem Þröstur kynnti fyrihugað námskeið og
hugmyndir um Sjeikspírs Karnivalið.
Við héldum Kaffileikhús 21.
maí sl. þar sem sýnd voru 3
stuttverk: Bara Tjilla. eftir Jónínu
Leósdóttur, Miðvikudagur í helvíti,
eftir Ármann Guðmundsson, og Tvíleikur
fyrir höfund og leikara, eftir Benóný Ægisson.
Hjólastólasveitin var með uppistandið Kókósbollu
hó ó pónó, og fjórar
hljómsveitir spiluðu nokkur lög. Það voru
Tobias og Daníel, Lister, Nafla-Jón
og Dúó Gísla blikk. Fullt
var út úr dyrum og fékk tiltækið góðar
umsagnir gesta. Því var ákveðið að hafa
aukasýningu 1. júní og vonumst
við til að sjá ykkur sem flest þar.
Eitt mál stendur út af borðinu,
sem við gátum ekki klárað en það er
Rafmagnsvandamálið mikla. Sem er rafmagnstruflun
hér í húsinu sem truflar tónmöskvakerfið og
ekki hefur fundist lausn á.
Starfið framundan er bjart. Halafélagar ætla
að endurgjalda húsaleiguna með því að hjálpa
til við að sýna húsið á 50 ára
afmæli Sjálfsbjargar lsf. Og vera
með ýmislegt hullumhæ og er óskað eftir
sjálfboðaliðum til að aðstoða þann
dag. Við stefnum á að hafa hefðbundinn
Krikadag í sumar og Ágústa
er að vinna að gerð nýrrar leikgerðar
um Svartfugl, eftir Gunnar Gunnarsson. Stefnt er
að því að hafa æfingatímabilið svipað og
tvo síðustu ár.
Stjórn vill þakka félagsmönnum
fyrir þátttökuna í þessum
verkefnum öllum og hlakkar til að fá nýja
meðlimi í stjórn og nýja
strauma.