Trúðaskólinn
eftir Friedrich Karl Waechter
í þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar
frumsýnt 17. apríl 1999 |
| |
 |
| |
Sýning Halaleikhópsins á Trúðaskólanum
var flutt í útfærslu enska
leikhúsmannsins
Ken Cambell á þessu vinsæla
barnaleikriti. Campbell fæddist í Ilford á Englandi árið 1941
og er leikari að mennt. Hann hefur starfað jöfnum
höndum sem leikari, leikstjóri og höfundur.
Einleikir hans hafa vakið mikla athygli, James
Vu heitir einn þeirra sem fékk m.a.
Evening standard verðlaunin fyrir gamanleik
og hlaut tvær tilnefningar til Oliver verðlaunanna.
Nýjasti einleikur hans er Violin Time, sem
notið hefur mikilla vinsælda. Barnaleikrit
Campbells eru m.a. Old King Cole, Skungpoomery,
Peef and Frank ´n´ Stein og Trúðar í skólaferð.
Íslenska þýðingu á Trúðaskólanum
gerði Gísli Rúnar Jónsson. |
|
| |
Um höfundinn
Höfundur Trúðaskólans
er Friedrich Karl Waechter, fæddur árið 1937
og hefur að mestu alið manninn í Frankfurt.
Hann er teiknari að mennt, sérgrein
hans eru skopmyndir og teiknimyndasögur. Waechter
hefur verið afkastamikill í leikhúsinu
og hefur samið mörg vinsæl barnaleikrit.
Einnig hefur hann samið leikverk uppúr
sígildum ævintýrum og árið 1983
fékk hann Grimmsbræðra verðlaunin
fyrir sagnagleði sína. Waechter hefur
haft náið samstarf við Ken Campbell,
sem þýddi og útfærði
Trúðaskólann á ensku, því Campbell
samdi annað verk um sömu trúða,
Trúðar í skólaferð,
og þýddi Waechter leikinn á þýsku í eigin útfærslu
sem hefur verið flutt víðsvegar í heiminum. |
| |
Persónur
og leikendur: |
| |
|
| Prófessor Blettaskarpur: |
Kolbrún Dögg
Kristjánsdóttir |
| Lævís: |
Sigríður Ósk
Geirsdóttir |
| Belgur: |
Jón Þór Ólafsson |
| Bóla: |
Guðný Alda
Einarsdóttir |
| Dropi: |
Halla Lúthersdóttir/Árni
Salómonsson |
|
|
| Leikstjóri: |
Elfar Logi Hannesson |
| Aðstoðarleikstjóri: |
Margrét Edda Stefánsdóttir |
| Lýsing: |
Vilhjálmur Hjálmarsson/Jón
Eiríksson |
| Ljósmyndari: |
Jón Tryggvason |
| Teikning plakats: |
Stefán Sigvaldi
Kristinsson |
| Hönnun plakats: |
Hitt Húsið |
| Kaffiteríugengið: |
Bergþóra
Guðmundsdóttir, Jón Stefánsson, |
|
Helga S. Harðardóttir,
Guðný B. Harðardóttir |
| |
|
Um
leikstjórann
Leikstjóri Trúðaskólans,
Elfar Logi Hannesson, eða bara Logi, fæddist á Bíldudal árið 1971. Þar
komst hann fyrst í kynni við leiklistina
með Leikfélaginu Baldri og eftir það kom
lítið annað til greina. Árið 1995
fór hann í víking til
Danmerkur og nam þar leiklist í The
Comedia School í Kaupmannahöfn.
Að námi loknu hefur Einar Logi komið víða
við, var kynnir Morgunsjónvarps
barnanna, lék í Einstakri uppgötvun
eða Búkollu í nýjum
búning hjá Möguleikhúsinu,
raddskúlptúrnum Ævintýr
eftir Magnús Pálsson og í gamanleiknum
Kómedía ópus eitt sem
hann samdi ásamt Róbert Snorrasyni.
Leikstjórnarverk Einars Loga eftir útskrift
eru m.a. Götuleikhús Hins Hússins,
Fjallabúarnir og sæbúarnir á Akranesi,
Trúðasirkusinn í Stykkishólmi
og Skvaldur á Egilsstöðum.
Einnig hefur hann haldið fjölda trúða-,
látbragðs- og leiklistarnámskeiða.
Að lokum er rétt að geta útvarpsþáttanna
Hér leika trúðar um völl þar
sem Logi rak sögu trúðalistarinnar
og fjallaði um minnisstæða trúða í gegnum
tíðina. |
| |
|

Guðbjörg Björnsdóttir
og María Geirsdóttir útbúa
trúðahatta |
|
| |
| Fleiri
myndir má finna hér |
| |
| Úr
Morgunblaðinu 17. apríl 1999 |
| Gagnrýni
um sýninguna |
|
|
| Sérstakar þakkir
fá: |
|
| Sjálfsbjörg,
landssamband fatlaðra |
|
| Reykjavíkurborg |
|
| Öryrkjabandalag Íslands |
|
| |
|
|
Síðast uppfært
9. júní 2008 |