Föstudaginn
14. maí kl. 20.00 og sunnudaginn
16. maí kl.
17.00 ætlum við að vera með VORHRISTING
Sýnd verða nokkur stuttverk,
gjörningur og flutt tónlist:
AFTUR Á SVIÐ eftir
Fríðu
Bonnie Andersen í leikstjórn Árna
Salomonssonar. Leikarar eru: Hekla Bjarnadóttir,
Hanna Margrét Kristleifsdóttir,
Stefanía Björk Björnsdóttir, Þröstur
Steinþórsson, Ásdís Úlfarsdóttir,
Silja Kjartansdóttir, Tobias Hausner
og Margrét Lilja Arnarsdóttir.
SNEMMA BEYGIST
KRÓKURINN eftir Nínu
Björk Jónsdóttur,
leikstjóri Árni Salomonsson. Leikarar eru: Guðríður Ólafsdóttir,
Sóley Björk Axelsdóttir og Kolbeinn Jes Vilmundarson.
Flutt verður 4. þáttur úr nýrri íslenskri óperu
REKÖLDIN eftir Dag Sigurðarson og Einar
Melax. Leikstjórn: Einar
Melax og Gunnar Gunnarsson, Gunsó. Leikarar eru: Kristinn Sveinn Axelsson,
Sólberg R. Haraldsson, Tobias Hausner, Daníel Þórhallsson
og Rúnar Sigríðarson.
Prinsinn Páskar fremur gjörning og verður með uppistand sem
hann kallar PRINSINN PÁSKAR PARTÝ PINNAST
Dúettinn CONDUCTIVE sem hinir margfrægu
Tobbi og Danni skipa, flytja tónlistaratriði.
FREDDY segir
okkur sögur úr símaklefa
Eitthvað ljúffengt verður
með kaffinu í hléi
Miðaverð er 1200 kr. og kaffiveitingar
innifaldar.
UPPSELT er á báðar sýningarnar
|